Best að nýta sér blogggleðina sem mig þjáir þessa dagana.
Enn veit ég ekkert með landsliðshópinn en fékk bréf um æfingar og leiki næstu mánaða. Það liggur ljóst fyrir að ég hef ekki í mér þá skuldbindingu sem þeir fara fram á. Þó væri það ekki fyrir neitt annað en að það er ætlast til að við spilum leiki á heimsmeistaramótinu í rúgbý í mars sem er jafnfram ein stuðmesta helgin í Hong Kong á ári hverju. Sjá myndir hér frá því í fyrra. Veit ekki hvaða reglur þeir hafa sett um alkóhólmagn í blóði - fyrir keppendur.
Karlinn er hættur að reykja á ganginum og búið er að setja upp "no smoking" skilti þar sem ég fyrirskipaði. 1-0 fyrir mér.
Mamma og pabbi eru farin til Ástralíu en hér stoppuðu þau aðeins í 4 daga. Þau eru þó væntanleg aftur um næstu helgi og eiga samkvæmt planinu að vera hér í rúmar tvær vikur. Hulda hefur þó sett þeim fyrir svo mörg verkefni að hætta er talin á að þau yfirgefi okkur eftir stutt stopp - arflaus með öllu.
Ég áttaði mig á því í morgun að í dag er síðasti dagur febrúarmánaðar. Það þýðir að ég á að flytja út Í DAG. Þetta uppgötvaðist þegar ég fékk rafpóst frá verðandi sambýlingum um að herbergið biði mín, hreint og fínt. Ég fór heim í kaffinu og pakkaði flestu niður. Gott er að vera eignalaus.
Deitið gekk vel ágætlega. Að suður-evrópskum sið, vildi hann sífellt vera að snerta mig og faðma og skoða í mér augun sem hann er ekki að komast yfir hvað séu blá. Ég krefst a.m.k. fimmtíu sentimetra í "personal space" sem mér er illa við að ókunnugir æði inn í óboðnir svo það er ekki víst að ég þiggi heimboðið til hans í vikunni.
Farin heim að pakka síðustu hætunum, selja rúmið og mála vegginn sem ég skemmdi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli