Við systur erum hægt og rólega að verða íþróttaálfar. Við skiptumst á að virkja hvora aðra í íþróttaafrek um helgar og hefur gengið mjög vel undanfarið. Það er margt sem drífur okkur af stað. Hjá mér snýst þetta mikið um að fá einkatíma með elstu þar sem hún er of móð til að svara símtölum um brjóstgjöf og ungbarnaútbrot en mér finnst líka ómetanlegt að komast af stað og skoða hluta af Hong Kong sem ég færi sjálf aldrei að skoða ef ekki væri fyrir skipulagningu þeirra sem að þessum hlaupum standa. Þá þykir það fín afsökun fyrir því að hanga ein heima á laugardagskvöldum að ég þurfi á fætur svo snemma á sunnudeginum til að hlaupa upp á fjöll. Hljómar mun betur en það að ég nenni ekki í sturtu og hitta fólk.
Við fórum í adventure race í fyrsta skipti síðastliðna helgi. Hulda var treg í taumi og vildi helst fara í eitthvað 3ja kílómetra spretthlaup í staðinn. Ég vildi klifra og vaða ár. Mest vildi ég bara elta einn strák sem var að fara að keppa en það verður jú hver og einn að finna sinn drifkraft og hvatningu. Elsta ætlaði að hætta við þegar henni var úthlutaður hjálmur og aftur þegar skráningakínverjinn sagði henni að hún þyrfti að hoppa fram af kletti í 8 metra djúpan hyl. Mér tókst að halda aftur af henni og af stað fórum við.
Fyrst kom í ljós að búið var að fækka vatnsstöðvunum úr tveimur niður í eina.
Síðar kom í ljós að stór hluti leiðarinnar fólst í því að vaða steinamikla ár, og að þeir voru hálir.
Þá kom það í ljós að við vorum pínu villtar og höfðum ekki farið eftir leiðbeiningum.
Þegar við komum aftur á réttan slóða var orðið ljóst að leiðin var töluvert lengri en auglýst var, jafnvel án útúrdúrsins.
Vatnið var 4 kílómetrum síðar en okkur var sagt, fjallið var hærra en Kollufjall, lofthræðsla gerði vart við sig og við urðum helst til svangar. Hnén voru að gefa sig, bakið stíft og engar pillur teknar með.
En! Fjórum klukkutímum eftir start komumst við á leiðarenda, enn hlaupandi og óheyrilega stoltar af afrekinu. Þetta voru 12,5km í heildina og stærsti hlutinn á torfæru yfirborði í töluverðum hita. Við lifum lengi á þessu hlaupi og ég er sko til í fleiri.
Ég, Hulda, tvær sem ég vinn með og strákurinn sem ég elti en slapp í burtu.