Nei, eg er ekki daud. Tolvan min do samt. Hun drukknadi i typhoon sem eg held ad se fellibylur a islensku. Mikil sorg a heimilinu thess vegna.
Margt ad fretta. Eg er afskaplega upptekin thessa dagana, her eru gestir, eg var med bornin hennar Huldu i nokkra daga a medan hun var i Thyskalandi, eg reyni ad sinna 4 vinnum og einu timafreku ahugamali og held daudataki i astaraevintyrid thess a milli. Allt gengur tho upp, gestirnir thakklatir, bornin yndisleg og buin ad endurheimta mommuna, arinu eldri en hun thegar hun for, launasedlarnir flaeda inn um dyrnar, 4 godir marblettir a badum ormum til marks um velgengni a vellinum og kaerastinn bad mig um helgina ad flytja inn til sin. Thetta er allt ad gerast semsagt.
Verd ad thjota, meir sidar.
miðvikudagur, september 28, 2005
föstudagur, september 02, 2005
Frönskunám
Nú væri gott að fá ábendingar um hraðvirkandi frönskukúrs. Ég er búin að taka að mér verkefni sem felur í sér að gera prófanir og rannsóknir á nýrri vöru sem fúnkerar á frönsku. Ég benti konunni á að ég hefði hvergi montað mig af frönskukunnáttu en hún sagði að þetta væri svo auðvelt að alls ekki þyrfti ég að vera fluent. Ég benti henni þá á að eina sem ég man úr Frönsku 101 hjá Sperlu (Sigríður Pálína Erlingsdóttir, frönskukennari í MA) var "ouvrir lu eitthvað sem átti að vera gluggi, sílvúplei" og "sju ne pa" sem þýðir "Ég er ekki"
Veit ekki hvort þessi tölvuleikur inniheldur slíkar fyrirskipanir. Þá væri nú heppilegra að muna hvernig á að segja gluggi.
Það kannski skýrir sig sjálft hér eftir að ég á erfitt með að útskýra fyrir fólki hvað ég geri hér í Hong Kong. Einn daginn prófa ég tölvuleiki á frönsku, þann næsta keppi ég í rúgbý, þarnæsta skipulegg ég fundi og ráðstefnur, enn einn útvega ég ljósmæðrum og hjúkkum vinnu og passa svo sjálf þar inn á milli. Aðallega er ég bara að hafa það gott, komast í form, knúsa börnin, eiga fjölskyldustundir og skemmta mér af hörku. Veit ekki með ykkur en það dugar mér.........