Í fréttum síðustu daga fannst mér skemmtilegast að lesa um rottuna sem synti með almúganum í sundlauginni í Tsung Kwan O um helgina. Það er greinilegt að sú sundlaug er ekki þrifin í 4 klukkutíma á dag eins og mín sem lokar á milli 12-3 alla daga vegna þrifa. Enn í dag hef ég aldrei séð neinn á ferli í kringum sundlaugina á þessum tíma en það er nú önnur saga.
Í gær tók ég mér sólarfrí. Úti voru 32 gráður, mikil sól og mig langaði að grilla mig. Svo ég sendi skilaboð á skrifstofuna um að ég kæmi ekki fyrr en eftir hádegi og upphóf svo miklar olíuáberingar. Þegar ég var öll orðin glansandi fín af sólarolíu og factor 4 fór ég í bláa tiger bikininu mínu niður að laug með ipod og bók í hönd að hætti skvísa.
Þá var lokað.
Á fimmtudögum fyrir hádegi er lokað vegna þrifa var mér sagt svo að þessi auma morgun session frá 8-12 á morgnanna er ekki í boði á fimmtudögum. Bjartsýn spurði ég þá hvort ég gæti ekki komið klukkan 12 og fengið mér sundsprett, öll olíuborin eins og ég var og augljóslega búin að leggja mikið á mig til að fá krabbamein. Nei sagði sundvörðurinn, það er lokað alla daga á milli 12-3pm eins og ég auðvitað átti að vita.
Ég: Why?
Dofinn fiskihaus: For cleaning.
Ég: klíníng!!!!! Þú ert rétt búinn að segja að sundlaugin sé lokuð frá 8-12 vegna þrifa!!! varla þarf að þrífa sundlaugina í 7 klukkutíma þegar ekki sála hefur farið ofan í hana í allan heila daginn!!! (ég að missa mig svolítið en ég var jú búin að taka mér verðmætt frí!)
Dofinn fiskihaus: (blikk blikk) (horfir á mig missa mig) (blikk blikk) Erm....sorry. (blikk blikk)
Ég hundskaðist í vinnuna klukkan 1 eftir hádegi og hugsa nú að hálfir vinnudagar henti mér bara vel.
Íþróttirnar hafa aftur tekið yfir alla mína dagskrá, landsliðsæfingar hefjast á ný í næstu viku og ég fer til Kóreu eftir 3 vikur að keppa ásamt Juddy litla og 15 öðrum körlum og kerlingum. Ég geri fátt annað en að skola úr íþróttafatnaði og neita alfarið að bleyjuþvottur geti tekið mikið meiri toll en allar þessar sveittu flíkur.
Uppsögn hjálparars kom sum sé á versta tíma en hún fór aftur heim til Filippseyja og virðist hafa tekið straujárnið okkar með sér. Ég hef auglýst eftir nýrri þjónustustúlku til að þrífa, þvo og kaupa inn fyrir mig, upptekna framakonuna. Juddy heimtar að hún verði að kunna að elda og segist gefa þeim bónus ef hann getur fengið einstaka nudd frá þeim líka en þar líklega dreg ég mörkin því allar konur vita að leiðin að hjarta mannsins er í gegnum magann og óvíst hvað yrði ef hann fengi olíunudd á sófanum í ofanálag!! Vonandi finn ég hina réttu fljótlega áður en allar plönturnar deyja drottni sínum og Juddy klárar straujuðu skyrturnar í fataskápnum.
Annars er föstudagur og ég er tilbúin í átök helgarinnar. Æfing í kvöld, önnur í fyrramálið, loftfimleikasýning í Macau um kvöldið, sund á sunnudaginn og innkaupaferð. Whoop whoop!
föstudagur, ágúst 29, 2008
miðvikudagur, ágúst 27, 2008
Fellibylurinn kom og fór - felldi nokkur tré og allir fengu frí úr vinnu en ég mætti samt og var dugleg. Íslendingar unnu silfur í handboltanum og við Bjarki og Kristrún horfðum á í fánalitunum. Gaupi sagði að þeir ættu þetta skilið eftir allar fórnirnar sem Snorri litli hafði fært síðustu árin, alveg sleppt sveitaböllunum greyið en það bliknar í samanburði við kínversku gullverðlaunahafana sem ekki fengu að sjá 1,5árs börnin sín í heilt ár og einhverju vöðvatröllinu var ekki sagt þegar mamman dó.
Ég verð upptekin næstu daga.
Fer til Macau á laugardaginn, Juddy er í Malasíu.
Helgina þar á eftir fljúgum við til Ástralíu og stoppum hjá bróður hans í nokkra daga.
Þá fljúgum við yfir til Nýja Sjálands í sextugsafmæli tengdapabba, verðum í tæpa viku.
Helgina þar á eftir er ég að keppa á rúgbý móti í Kóreu.
Vikuna þar á eftir er ég á ráðstefnu í Peking.
Helgina þar á eftir ætla ég að slappa af með Huldu og nýburanum sem vonandi kemur í heiminn samkvæmt mínum plönum.
Ég verð komin með flugfit í stað sundfita eftir allar þessar ferðir, ef ekki blóðtappa í báða leggi.

fimmtudagur, ágúst 21, 2008
Fellibylur !!!

Hong Kong er rauða stjarnan í miðjum rauða hringnum...
Nú segja þeir þann stóra á leiðinni. Fellibylur af stærðargráðu 10, ljóst er að það verður hér skítaveður. 60hnútar á flugvellinum segir mér flugumsjón á Íslandi sem alltaf hefur annað augað á veðri í Kína.
Það væri nú ágætis tilbreyting ef það gustaði almennilega um mann til tilbreytingar - hér eru allir sendir heim í hýði ef eitthvað er að veðri en eins og ég hef áður bloggað um þá er þetta ævinlega bara hret og norðan gjóla. Að sjálfsögðu vona ég að allir séu öruggir og að enginn slasist, að bátarnir hennar Huldu og Strúllu sigli ekki burt, að grillið mitt takist ekki á loft, en ég get ekki að því gert að mér finnst bara hrikalega spennandi þegar úti er ofsaveður! Best væri ef að snjórinn næði upp á stofugluggann, litlar mýs að grafa göng og rafmagnið af. Það er líklega borin von, ef ekki aðeins fyrir það að ég bý á 27undu hæð.

mánudagur, ágúst 18, 2008
Skreppitúr - SUPPLIES!!!
Einu sinni fór ég í skreppitúr. 36 tímum, 4 flugvélum og þremur heimsálfum síðar var ég komin til Íslands með börnin hennar Huldu því það var fuglaflensa í Hong Kong. Ég stoppaði stutt, át páskalambið og flaug sömu leið í gegnum London, Abu Dhabi og Bangkok til baka.
Í þarsíðustu viku var önnur eins ferð farin, aðeins beinni leið samt og tilefnið gleðilegra. Gunnhildur vinkona var að fara að giftast sveitunga mínum og með 3ja daga fyrirvara stökk ég af stað með brúðkaupsgallann í handfarangri. Ekki var stuttur fyrirvarinn Gunnhildi að kenna því ég var látin vita af plönunum með rúmlega árs fyrirvara en ég hafði jú verið á Íslandi svo stuttu áður að ég sá mér ekki fært að mæta líka í þetta brúðkaup þótt ég glöð hefði viljað. En svo fór samviskubitið að naga mig, surprise púkinn að pota í mig og ég bókaði flugið á þriðjudegi, flaug á fimmtudegi.
Hrikalega var svo gaman! Ég mætti á föstudagseftirmiðdegi í glampandi sól og yndislegu veðri, beint á BSÍ í pulsu eins og alltaf og upp í Kópavog í sturtu og sjæn. Þremur tímum eftir lendingu var ég komin í Glersalinn í Kópavogi með órakaða leggi, illa lakkaðar tær og eilítið úfin eftir skyndiþvottinn. Alltaf glæsileg samt. Björn bóndi var með í ráðum en Gunnhildur hafði ekki hugmynd um að ég væri á leiðinni og svipurinn á henni þegar hún sá mig gerði ferðalagið allt þess virði á augabragði. Ég fékk að halda ræðu, syngja soldið með hljómsveitinni, Stebbi Hilmars söng svo ég táraðist og allt heila kvöldið var bara svo endalaust yndislegt! Ég skemmti mér svoooo vel og entist á djamminu til klukkan 6 um morguninn, eldgömul orðin!!!! Ég veit bara ekki hvernig Íslandsferðir verða nokkuð betri en þessi ? Góðir vinir, gifting, pulsa með kókómjólk, Gay Pride, Hlöllabátur, American Style, sundferð, Reykjavíkurrúntur, fleiri vinir og Extra með saltlakkrísbragði. Það segi ég og skal við standa að Íslandsferðir hér eftir verða takmarkaðar við 2ja daga stopp. Ég brosi allan hringinn bara við að rifja þetta upp.
þriðjudagur, ágúst 05, 2008
Egg, meiri egg!!! og kartöflur
Við héldum grillveislu um helgina í garðinum okkar. Juddy bauð liðinu sínu í heimsókn og tilkynnti mér á föstudagseftirmiðdegi að von væri á einum 30-40 ruðningsköppum sem allir yrðu að fá að borða. Og með það settist hann á sófann og fór að vesenast með snúrur og kapla - sagðist vera að reyna að stilla græjurnar þannig að allir gætu horft á landsleikinn á milli Nýja Sjálands og Ástralíu, erkifjandanna, hjá okkur. Það var ljóst að eldamennskann félli í minn hlut.
Ég fór í búðina með Starra litla hjálparkokk, bæði með stóra bakpoka á bakinu fyrir allar vörurnar. Klyfjuð af alskyns kræsingum komum við heim og enn voru tæknivandamálin að hrjá húsbóndann. Við Starri fórum því að brytja og sjóða og þeyta og steikja.
Þegar yndið mitt leit upp úr Tæknifræði 101, varð honum strax ljóst að ekki væri nóg af eggjum til og eitthvað værum við illa undirbúin undir gestaganginn svona kartöflulega séð. "Kauptu meira elskan" sagði hann og ég og Starri fórum aftur í búðina. Svo var soðið fram eftir kvöldinu, aðeins inn í nóttina.
Daginn eftir mættu 12 manns í grill. Kartöflusalat og egg í mæjónesi verða í kvöldmatinn hjá mínum næstu dagana því það fer fjarri mér að henda öllum þessum soðnu og steiktu jarðeplum sem ég svitnaði við að matbúa. Ég hins vegar hef enga matarlystina en ég hef nú komist að því að besta megrunin er að elda nógu andskoti mikið. Eftir að sýsla í matnum í klukkutíma langar mig ekki neitt í hann og nægir mér að drekka soldið vatn.
kv,
Rebekka 'hin danska' Atkins