fimmtudagur, ágúst 21, 2008

Fellibylur !!!


Hong Kong er rauða stjarnan í miðjum rauða hringnum...
Nú segja þeir þann stóra á leiðinni. Fellibylur af stærðargráðu 10, ljóst er að það verður hér skítaveður. 60hnútar á flugvellinum segir mér flugumsjón á Íslandi sem alltaf hefur annað augað á veðri í Kína.

Það væri nú ágætis tilbreyting ef það gustaði almennilega um mann til tilbreytingar - hér eru allir sendir heim í hýði ef eitthvað er að veðri en eins og ég hef áður bloggað um þá er þetta ævinlega bara hret og norðan gjóla. Að sjálfsögðu vona ég að allir séu öruggir og að enginn slasist, að bátarnir hennar Huldu og Strúllu sigli ekki burt, að grillið mitt takist ekki á loft, en ég get ekki að því gert að mér finnst bara hrikalega spennandi þegar úti er ofsaveður! Best væri ef að snjórinn næði upp á stofugluggann, litlar mýs að grafa göng og rafmagnið af. Það er líklega borin von, ef ekki aðeins fyrir það að ég bý á 27undu hæð.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli