fimmtudagur, apríl 24, 2008

Barnfóstra á ný

Já Imba mín, það er lítið að frétta hjá mér í augnablikinu, það er bara endalaus vinna! Ekki margt hægt að blogga um það. Ég er enn og aftur grasekkja en karlinn fór til Dubai í gærkvöldi að spila meiri rúgbý. Hulda systir stökk til Danmerkur að hlusta á Bó - geri aðrir betur. Ég er því barnfóstra um helgina og í dag reyndar líka því ég tók að mér að sjá um börn þjálfarans hans Juddy´s sem fór með þeim til MiðAusturlanda á meðan konan hans er á Nýja Sjálandi.

Ég fékk bréf í dag frá rúgbýsamandinu sem ég á að gefa vinnuveitanda mínum vegna ferðarinnar til Kazakhstan. Þar biðja þeir yfirmenn að sýna því skilning að starfsmenn séu kallaðir til skyldustarfa fyrir þjóðina og ættu því að fá auka frí til slíkra ferða. Ég hlakka til að sjá hvað Haymarket segir við því. Þá kom fram í bréfinu að mótið væri haldið í Taldykorgan. Huh!! hvar í ....... er það??? Þetta Kazakhstan ævintýri verður meira og meira spennandi.

Eitt hef ég mikið spáð í. Af hverju er það kallað "common sense" eða "almenn heilbrigð skynsemi"?? Það vita allir sem búið hafa í fjölþjóðlegu samfélagi að það er ekkert almennt við hóp af fólki af ólíku þjóerni og uppruna. Og það er algerlega ekkert heilbrigt við hvernig fjöldi fólks hugsar. Ég gerði lista yfir allt sem hjálparinn minn átti að kaupa í búðinni. Ofan á hornið á listanum lagði ég tóman sjampóbrúsa og pönnukökumix. Hún skrifaði á miðann að hún hefði ekki vitað hvaða sjampó hún ætti að kaupa og í staðinn fyrir pönnukökumixið keypti hún gulrótarköku.

Á klósettinu í vinnunni eru útskýringar : 'the proper flow of handwash'.
1. Turn on the tab. (mistök, hann slekkur sjálfkrafa á sér áður en að þú nærð að ná í sápuna)
osfrv. Það held ég að nær væri að setja upp leiðbeiningar ' the proper way to pee'. Enn eru þó nokkrir starfsmenn (konur allavega) sem standa á skálinni þegar þær pissa. Sjálfsagt hafa þær alist upp við að pissa í holu eins og margir hér, en illa er farið fyrir skynseminni ef þær átta sig ekki á að ákveðin hætta steðjar að fullvaxta kvenmanni sem situr á hækjum sér á sleipu postulíninu 60cm frá jörðu - og rembist.

þriðjudagur, apríl 15, 2008

Að snúa bökum saman


Þá er ég komin heim frá Tævan og hann kominn heim frá Afríku. Heimilishald færist í fyrra horf og hversdagurinn er allsráðandi.
Við fórum systkinin þrjú sem eftir eru hér í HK saman á Duran Duran tónleika með Strúllu, Pétri og Freyju litlu. 10 ára muna víst ekki eftir bestu smellunum (sú 31 árs átti í erfiðleikum!) og sofnaði þegar tónleikarnir voru hálfnaðir. Ég skil hana vel, ég sofnaði víst sjálf - eins og frægt er orðið - á Rolling Stones tónleikunum. Næstu tónleikar eru með James Blunt sem vonandi heldur börnunum vakandi til enda, en ég fer með Starra ungling og Freyju litlu.
Hingað komu viðskiptaráðherra og hans lið og Landsbankinn bauð í kleinur og lummur að íslenskum sið. Ég hitti ráðherra en engar lummur og kleinur voru í boði. Ég fór því súr úr boði og nokkuð svöng.
Oasis fór á hausinn í vikunni og fjöldi manns brann inni með miða til London. Þótt fæstir hafi viljað ferðast með þeim fannst okkur flestum gott að hafa þá á markaðnum til að halda flugfari annarra flugfélaga í skefjum. Svipað var þetta með Íslandsflug um árið.
Eitthvað er í vatninu því barneignir eru heitasta afþreyingarefnið þessa dagana. Óléttar eða nýbornar eru margar mínar vinkonur svo á mig hefur fallið mikil pressa. Ég stend keik í tvö ár til.
Ekkert sælgætið hef ég innbyrt síðustu 14 dagana að áeggjan Óla Óla. Við erum í keppni og bæði svo þrjósk að við verðum sykurlaus næstu mánuðina/árin.
Það er, eins og ljóst er hér að ofan, ekki mikið að frétta.

mánudagur, apríl 07, 2008

Dívan í Tævan

Þá er nú Íslendingurinn (sá fyrsti ef marka má viðbrögð landamæravarða!) lentur í Tævan. Taipei heitir höfuðborgin og virðist vera alveg týpísk kínversk borg. Hér erum við hjá AsianInvestor með ráðstefnu á miðvikudaginn en ég ákvað að splæsa á mig nokkrum dögum á Grand Hyatt í miðbænum fyrir ráðstefnuna. Ég á einhverja fundi á morgun en í dag hef ég lagt mig á flennistóru rúminu, horft á sjónvarpið og svarað þeim emailum sem brýnast var að svara. Ég hefði líklega látið tælast niður að sundlauginni sem glitraði í 32gráðum og sólinni ef ekki væri fyrir sólbrunann mikla frá Kasmír sem yfirtekið hefur allan minn kropp!!

Ég fór semsagt á ströndina í gær. Fyrsti almennilegi strandardagurinn í langan tíma og ég var æst í að verða svoldið brún. Ég tók með mér olíu sem þó hefur vörn 4 í sér og hélt mig bara góða. Þar til ég kom heim og það brakaði í öllum hrukkum!! Fór í kalt bað, spreyjaði á mig after sun og bað um skjótan bata. Hann hefur ekki enn látið sjá sig en í framan er ég svona útitekin og sæt. Það er náttúrulega fyrir öllu.

Juddy litli er farinn til Afríku. Landsliðið hélt til Túnis eftir leikinn á laugardaginn þar sem þeir unnu naumlega eftir fjöldaslagsmál og hótanir frá kolklikkuðum afríkum sem flestir hétu Muhammed. Nú liggja þeir á ströndinni, fara í æfingar í kaldri sundlaug og hlaupa í sandinum til að venjast hitanum sem þeir þurfa að spila 80 mínútur af rúgbý í. Ég öfunda þá ekki mikið og ekki eru heimamenn þeir vingjarnlegustu eftir leikinn á laugardag.

Þetta er nú allt sem í fréttum er í dag!

þriðjudagur, apríl 01, 2008

Nokkrar myndir af íbúðinni


Við fengum húsgögnin um helgina og erum önnum kafin við að koma öllu fyrir áður en Juddy fer til Túnis um helgina. Víkingaborðið er enn í smíðum en flest annað komið á sinn stað.


Sjónvarpið er risavaxið a la Juddy en ég fékk að ráða speglinum í staðinn sem líka er stór. Vínskápurinn finnst okkur svakalega fínn og þetta allt saman bara.


Rugby 7s








Hér er hátíð síðustu helgina í mars á hverju ári. Hún heitir rugby 7s og trekkir 40þúsund manns að undir þeirri yfirskrift að horfa á rúgbý, nakta karlmenn hlaupa yfir völlinn, górillur á hlaupum undan laganna vörðum, bjórslag og fleira mætti upp telja. Þetta er allavega hrikalega gaman.




Ég er alveg bloggfreðin í augnablikinu og læt því bara nokkrar myndir segja sína sögu.