miðvikudagur, júní 27, 2007

Jaxlalaus

Þá er ég komin aftur heim til Hong Kong eftir frábæra ferð til Íslands, jaxlalaus. Hundruðir netpósta bíða mín og haugur af verkefnum svo ferðasagan verður stutt:

Mestum tíma ferðarinnar eyddi ég fyrir norðan en stoppaði þó stutt í Reykjavík þar sem ég fór á vinnutengda fundi og stutta vinkonuhittinga. Ég rétt náði kaffi og köku með flestum en eins og venjulega var lítill tími fyrir langar setur yfir heimsmálunum. Ég hafði skipti á íbúðinni minni í Hong Kong og bílnum mömmu og pabba svo ég brunaði norður á jeppanum, opnum vegi í dúndrandi sólskini. 22 voru teknir þennan dag fyrir of hraðan akstur í Húnaþingi en ekki náðu þeir þó í skottið á mér.

Bekkjarhittingurinn á föstudeginum var yndislega nostalgískur og allir litu betur út en í MA fyrir 10 árum. Ég sýndi vídeóið mitt og allir voru nokkuð ánægðir með eigið framlag til þess. Óli Magg spilar í lottóinu alla daga eftir vísbendingum frá þeim sem giskuðu réttast á framtíðina. Ásgeir kann enn ekki tékknesku. Veislan á laugardeginum enn betri, allir sprækir og Jónsi fór á ostum. Gið skreið undir borð af skömm yfir skemmtiatriði sem dissaði Jónsa okkar og nú er fær AB engin jólakort. Arfaslakt.

Vikan leið í sól og hita í Akureyrarlaug, Skagafirði og bakgarðinum Tóta og Siggu. Ég sólbrann, borðaði pylsur, hitti fólk, fór í sund og undirbjó brúðkaupið Petíar og Hlyns. Það tókst stórvel, allir sögðu já á réttum stöðum og ég stamaði frá mér stuttri ræðu. Til lykke elsku hjón.

Hef ekki tíma í meira í bili, myndir uppfærast við fyrsta tækifæri. Bekkan

mánudagur, júní 11, 2007

Nirfill!!!!!!

Jæks!! Ég finn gamla góða nirfilinn ryðjast upp á yfirborðið með látum nú þegar líða tekur að Íslandsferð. Ég hringdi á nokkra staði til að bóka hárblástur sem ég fer nú að venju í uþb. 2-3x í mánuði hér í Hong Kong og var sagt af tyggjósmjattandi gelgju að það kostar 3600 íslenskar spírur að láta blása á sér hárið!!!

3600ISK!!

Og LOKAÐ á laugardögum! Hér eru hárgreiðslustofur opnar til miðnættis alla daga vikunnar og kostar 550krónur að blása sig og slétta. Ég þarf að taka marga djúpa anda áður en ég fer til Íslands.

mánudagur, júní 04, 2007

Helgarrapport



Helgin var góð. Átti góðan fund með indónesískum kúnnum á föstudagskvöldið, tveir múslimskir karlar sem báðir vildu kynna mig fyrir múslimskum sonum sínum í næstu ferð minni til Jakarta. Þeir reka bílaleigu og ég hef nú frían bíl og bílstjóra til umráða í hvert sinn sem ég kem til Indónesíu sem verður fínt í Balíferðinni eftir mánuð. Hvorugur drekkur áfengi svo ég kom heim seint um kvöld uppfull af mangósafa og Peking önd. Var eftir kvöldið vel upplýst um hverskonar ferli þarf að til að skipta um trú ef ske skyldi að mér litist á annan hvorn soninn...





Á laugardaginn var touch tournament og ég fór í slæmu ásigkomulagi að keppa með mínu liði. Töpuðum leiknum 2-1 í 32ja stiga hita og glampandi sól. Hrikalega verður gaman þegar ég er komin í almennilegt form aftur og get hlaupið meira en 50 metra án þess að springa. Á laugardagskvöldið fór ég út að borða með Bjalla, Strúllu, Kristjáni og Lenu en endaði í Lan Kwai Fong með stelpunum úr liðinu til að fagna tapinu og horfa á aðeins meiri rúgbý. Juddy var að skemmta sér með sínum vinahóp svo ég lék Cupid og paraði flesta í huganum, suma í alvöru.





Sunnudeginum var eytt í að þrífa og flytja Juddy úr Happy Valley yfir í Causeway Bay. Hann býr nú í japanskri svítu við hliðina á Outback svo stutt verður í að við Hulda fáum upgrade úr VIP status yfir í Premier Status á Outback. Það er allt í lagi fyrir mig sem helst vil bara house salad en öllu verra með Huldu sem alltaf heimtar Aussie Cheese Fries og þær eru ekki sérlega hollar. Fyrsta nóttin að baki í nýju íbúðinni - sveitt og svefnlítil þar til við finally fundum út úr leiðbeiningunum á loftkælingunni um fimmleytið. Allt í allt, voða góð helgi en ferlega leiðinlegt blogg. Bætum úr því síðar..............................

föstudagur, júní 01, 2007

Menningarárekstrar

Það tekur stundum á að vera í Asíu. Menningarárekstrar eru daglegt brauð, sérstaklega hjá óumburðarlyndum eins og mér. Enn og aftur snýst málið um klósettferðir. Rétt í þessu, á finum business lounge Cathay Pacific þurfti ég á snyrtinguna og tók með mér tölvu og veski svo ekki væri ég rænd í indónesískri spillingunni. Lagði bæði hæti frá mér og tók mig til við að pissa. Ekki veit ég af fyrr en að kellíngin í krybbunni við hliðina á mér fer að spúla á sér rassinn með sturtuhaus svo upp um veggi frussast mín megin. Yfir tösku og tölvu, fætur og andskotann út um allt! Þetta afturendaspúl hef ég aldrei skilið og enn ekki látið eftir mér að prófa badeng eða hvað þetta nú heitir sem finnast víða, jafnvel á 5 stjörnu executive svítum. Er ekki fólk sem hefur efni á 30þús króna næturgistingu yfir það hafið að húka klofvega yfir rassvask og sturta sig eftir góða skitu?

Ég eyði nú ekki einu sinni orðum í að lýsa aðförum konunnar í dragtinni sem setti smá pappír á bekkinn við hliðina á vasknum í Bank Bukopin í gær, rykkti upp pilsinu og klifraði upp á til þess að þvo á sér tásurnar. Vinkona hennar tannburstaði sig við sama vask, skyrpti og skolaði þegar færi gafst á milli þvottar þess hægri og vinstri. Yak!