miðvikudagur, júní 27, 2007

Jaxlalaus

Þá er ég komin aftur heim til Hong Kong eftir frábæra ferð til Íslands, jaxlalaus. Hundruðir netpósta bíða mín og haugur af verkefnum svo ferðasagan verður stutt:

Mestum tíma ferðarinnar eyddi ég fyrir norðan en stoppaði þó stutt í Reykjavík þar sem ég fór á vinnutengda fundi og stutta vinkonuhittinga. Ég rétt náði kaffi og köku með flestum en eins og venjulega var lítill tími fyrir langar setur yfir heimsmálunum. Ég hafði skipti á íbúðinni minni í Hong Kong og bílnum mömmu og pabba svo ég brunaði norður á jeppanum, opnum vegi í dúndrandi sólskini. 22 voru teknir þennan dag fyrir of hraðan akstur í Húnaþingi en ekki náðu þeir þó í skottið á mér.

Bekkjarhittingurinn á föstudeginum var yndislega nostalgískur og allir litu betur út en í MA fyrir 10 árum. Ég sýndi vídeóið mitt og allir voru nokkuð ánægðir með eigið framlag til þess. Óli Magg spilar í lottóinu alla daga eftir vísbendingum frá þeim sem giskuðu réttast á framtíðina. Ásgeir kann enn ekki tékknesku. Veislan á laugardeginum enn betri, allir sprækir og Jónsi fór á ostum. Gið skreið undir borð af skömm yfir skemmtiatriði sem dissaði Jónsa okkar og nú er fær AB engin jólakort. Arfaslakt.

Vikan leið í sól og hita í Akureyrarlaug, Skagafirði og bakgarðinum Tóta og Siggu. Ég sólbrann, borðaði pylsur, hitti fólk, fór í sund og undirbjó brúðkaupið Petíar og Hlyns. Það tókst stórvel, allir sögðu já á réttum stöðum og ég stamaði frá mér stuttri ræðu. Til lykke elsku hjón.

Hef ekki tíma í meira í bili, myndir uppfærast við fyrsta tækifæri. Bekkan

Engin ummæli:

Skrifa ummæli