miðvikudagur, mars 26, 2008

Ekki fréttir





Hversu mörg skópör getur einn maður átt!???










Juddy og pabbi vel vopnaðir









Pabbi með yfir umsjón með verkinu










Juddy að búa til eldhúsborðið....







Mikið að gera og bloggheimurinn útundan þess vegna.


Svo stiklað sé á stóru:


- mamma og pabbi voru í heimsókn í viku og komu með páskaegg, ost, pönnukökupönnu og fleira gott. Mikið borðað, slappað af, farið á nýju bátana, skroppið til Kína osfrv. Pabbi, Juddy og Bjarki litli bjuggu til rúm fyrir drottninguna sem varð svo glöð að hún bakaði köku.





- ég keppti í rúgbý og er nú með horn á enni, glóðarauga á hægra, svarbláa vinstri hönd (handarbak) og haltra af verkjum sem flestir eru bara strengir.





- Petra systir flutti heim til Danmerkur eftir 8 mánaða veru í nágrenninu. Sniff Sniff





- Rugby 7s er um helgina sem er stærsta ferðamannahelgin Hong Kong á árinu og allur bærinn er eitt karnival.





- Ég bókaði ferð okkar Justins til Nýja Sjálands í september, aldeilis skipulögð.





- Bjarki og Strúlla tilkynntu trúlofun sína og fyrirhugaðan brúðkaupsdag.





- Ég sem enn hugsa allt í krónum er í hæstu hæðum yfir gengisfalli íslensku krónunnar en ég hef nú hækkað um 20% í launum á einni viku.





- 98 heimsóknir á þriðjudaginn í síðustu viku, flest frá Kópaskersbúum grunar mig.





- annað gott, ég er stabíl.

fimmtudagur, mars 20, 2008

Fjármálamarkaðir eru á yfirsnúningi og allir frekar taugaveiklaðir. Bear Stearns seldur á brunaútsölu og Lehman á leið í niðurfallið líka - báðir kúnnar hjá mér svo jólabónusinn er í hættu.
Börn eru send heim úr skóla í tvær vikur eftir að fjögur þeirra fengu flensu og dóu.
Raðmorðingi gengur laus en hann er búinn að grisja hóruhúsin undanfarna daga, ein skækja á dag í fjóra daga.

Það er synd að segja að lífið sé lag í Hong Kong í dag. Nema laglaust væri.

miðvikudagur, mars 12, 2008

Vinnugleði

Ég réði mér aðstoðarkonu til tveggja vikna í nýja starfinu til að sinna ýmsum smáverkefnum s.s. að stafrófsraða skjölum, koma lagi á nafnspjöldin, grafa upp upplýsingar um samkeppnisaðilana og svona mætti lengi telja. Hún hefur á tveimur vikum verið veik tvisvar, aldrei mætt á tíma og í dag tilkynnti hún að hún væri hætt án þess að klára það sem á borðinu hennar var því hún mætti bara ekki í morgunsárið. Þegar við náðum á hana, sagðist hún vera komin með aðra vinnu.

Ég hef nú mikla reynslu af starfsfólki með vafasaman metnað til vinnu en það er engu lagi líkt hvað veikindi hrjá verkalýðinn hér. Ritarinn minn er búin að fara 3x til læknis á 5 dögum, einu sinni út af bakinu, einu sinni út af ökkla og nú í dag því hún var með hor í annari nösinni. Hún hefur ekki mætt til vinnu á réttum tíma í rúma viku en það hefur nú meira með það að gera að yfirmaðurinn er ekki í bænum heldur en heilsuleysi held ég. Ég var alin upp við mikinn metnað til vinnu, sama hvaða laun væru í boði eða hversu smálegt verkið væri. Aumingjar og ónytjungar eru eitur í mínum beinum og nú sýður í deildarstjóranum sem þarf að druslast til sýslumanns sjálf að borga hraðasektir hins helmingsins. Hún hefði einmitt verið góð í það, hún Clara litla Kwong.

mánudagur, mars 10, 2008


Petra systir hafði vinninginn (mig) þessa helgina en ég fór í heimsókn til hennar í stað þess að horfa á Beckham og Galaxy félagana spila. Ástarpungurinn kom með mér og lærði á ný að meta lystisemdirnar sem við búum við í Hong Kong versus hina hráu Kína. Sú yngsta var með sprækara móti og fór með okkur í gönguferðir, golf og nudd.

Einna helst mætti halda að allir hafi haldið að á fyrri myndum hafi ég teiknað jólaseríu á fjallgarðinn þarsíðustu helgar, en þetta er altso leiðin sem við löbbuðum þann laugardaginn - svona ef það var ekki nægilega skýrt áður.

RÚV og Kastljósið láta enn á sér standa með viðbrögð við landsleiknum við Kazaksthan, maður hefði haldið að Íslendingur í ruðningi væri heilsusamlegri fréttamennska en Hillary að skjóta lítil börn í svefni. Ég er þó enginn fréttastjóri.

fimmtudagur, mars 06, 2008

Bekka í ham


Á landsliðsæfingu í gærkvöldi var fjöldi lögreglumanna á hliðarlínunni og truflaði það einbeitninguna töluvert að heyra "Beckham....Beckham" tuldrað með kínverskum framburði.
Gat það verið að hann væri á leiðinni að koma og horfa á mig spila??
Ef eitthvað er að marka það sem þessar kínversku í liðinu náðu að hlera, er von á kappanum á völlinn á föstudaginn að æfa nokkur spörk. Völlurinn heitir Kings Park - það finnst mér viðeigandi. Ég verð þar að horfa.

þriðjudagur, mars 04, 2008



Landsliðsæfingar hefjast á morgun á ný.

Mamma og pabbi fá að þann heiður að sjá mig spila landsleik á móti UCLA háskólanum en stuttu síðar tekur Hong Kong þátt í Asísku meistaradeildinni og keppir við Kína, Tæland, Singapore og Kazakstan.

Í KAZAKSTAN!!

Já, ef ég held nú ökklunum ósprungnum og mæti á æfingar eru allar líkur á að ég verði fyrstu helgina í júní að keppa við rússneska togarasjómenn í kvenmans formi í rúgbý svo hjálpi mér allir heilagir. Ég hlakka mikið til að komast á svona framandi slóðir sem ólíklegt er að ég færi á ef ekki væri fyrir boðsmiða frá Hong Kongíska rúgbýsambandinu.

Vonandi er ekki snjóþungt í Kazakstan og voða væri gott að sjá kunnuglegt andlit á hliðarlínunni að styðja okkur, Borat væri bestur. Aðrir sem eiga leið um þennan heimshluta í júni eru velkomnir á völlinn, sérstaklega RÚV.

mánudagur, mars 03, 2008

Of langt gengið?

Upp í mót...urð og grjót....upp á hæsta tindinn fór ég!


Það var nokkuð bratt af tindinum niður á ströndina!!

Beðið eftir þyrlunni!! haha!


Ég fór í fjallgöngu um helgina. Hópur vinnufélaga minna ákvað í ölæði á föstudagskveldi að ganga sér til heilsuhressingar engu síðar en 9 klukkutímum eftir að umræðan hófst og með það fóru allir beint heim í ból til að sofa úr sér eitrið.


Ég tróð þeim sem komust inn í BeetleBug og keyrði langleiðina til Kína með þreytta en ofurhuga fjallgöngumenn. Ég var sú eina sem

a) ekki hafði borðað morgunmat
b) var ekki með neitt nesti nema eitt Snickers
c) var ekki með bakpoka með mér
en ég var þó með tvær flöskur af vatni og mundi að maður á að ganga á fjöll í skærum litum.
Aðrir höfðu komið með kort af leiðinni.

Til að gera (ca. 20 kílómetra) langa sögu stutta, þá var það ég sem fyrst komst á tindinn og skilaði mér á rétta strönd á réttum tíma. Þeir sem voru með kortið villtust. Þeir sem voru með nesti átu ekkert nema ávextina og báru því öll aukakílóin að ástæðulausu. Ég tók bara með mér pening og keypti mér fisk og íspinna á ströndinni.

Myndirnar segja sína sögu, þetta er voða brattur tindur og gaman að klífa hann. Veðrið var yndislegt og ég skaðbrann. Góður göngutúr í góðra manna hóp. Vantaði bara Elsu.