Sérlega góð viðbrögð mín við lærisbeiðninni hefur skilað sér í flugmiðabókun hjá Icelandair og spurning um hvort viðkomandi eigi ekki að rukka Flugleiði um prósentur af söluhagnaði.
Erna fær bónusstig fyrir að stinga upp á hangilæri og næsta víst ef hún ætti ekki heima á Akranesi að ég hefði bara rennt í eitt reykt með stöppuðum. Ég hélt fyrst að þessi trygga æskuvinkona væri orðin svona alþjóðleg en ég áttaði mig í fljótu bragði á misskilningi mínum sem stafar af eigin alþjóðavæðingu en 'hangi' er altsvo ákveðið verklag við matarundirbúning Mára. Ég staldraði svo við í stutta stund, vakti sellurnar og fattaði skensinn, auðvitað átti hún við hangi-læri. Svo nú dreymir mig um Fjallalamb og vel saltaðar kartöflur með. Ó ó.
Upprunalegt planið gerði ráð fyrir 23 klukkustundum á Íslandi sem með minni skipulagningu gæti innihaldið allt að 8 heimsóknir, en í ljósi læratilboðanna allra fór ég fram á uppstokkun fluga og niðurstaðan varð heimferð föstudaginn 28unda (lendi kl.3) og brottför af landi aftur mánudagsmorgun 1sta október. Ég flýg þá beint til Boston þar sem ég mun hitta Ingigerði HR vinkonu og fara á ráðstefnu. Eftir fimm daga stopp fer ég í viku reisu um Evrópu í boði FinanceAsia.
Hvernig mér, sem hata London meira en pestina, tókst að koma því svo fyrir að ég komi þar við 4x á 2 vikum er stórmerkilegt! En hér er s.s. ferðaplanið:
Hong Kong
London
Reykjavík
London
Boston
London
París
Brussels
Haag
Utrecht
Amsterdam
Osló
London
Hong Kong
á 15 dögum door-to-door. Lendi klukkan 1 á laugardegi, á fyrsta rúgbýleikinn 2 klst síðar. Best að pakka bara takkaskónum með til Boston til að vera tilbúin!