miðvikudagur, október 31, 2007

Kalt í Kóreu

Ég lenti í 8 gráðum en sól í Seoul. Gæsabólurnar létu ekki á sér standa og ég bölvaði í laumi að hafa ekki tekið stöðuna á veðrinu áður en ég lagði af stað. Enginn jakki, eyrun útstæð og óvarin, puttar í kalhættu. Það er samt hressandi að komast aðeins 'norður' reglulega og ég saknaði Íslands þegar ég horfði út um rútugluggann á leiðinni upp á hótel - allt var í haustbúningi. Ég hirti hálfgult og hálfrautt laufblað sem lá á gangstéttinni og setti í plast. Nostalgían tók yfir og í huganum er ég hvorki á Grand Hyatt né í Asíu, heldur horfi ég yfir tjörnina heima og yfir að Ási


mánudagur, október 29, 2007

Ellikelli

Ég eldist eins og aðrir. Ég merki það helst á eftirfarandi:
- Tækninýjungum. Ég er rétt búin að átta mig á DVD þegar þeir bjóða DVD-9, á MP3 þegar þeir bjóða MP4 eða 5, Playstation þegar allir spila Wii eða P2P og ég kann ekki á neitt af þessu. Um daginn fór ég með gamla góða kasettu til tæknifræðingsins míns og bað hann um að koma efni hennar á stafrænt form, en hann virtist ekki vita hvað í hulstrinu var.
- Músík. Ég horfði á einhvern hitlista í sjónvarpinu um daginn og þekkti engin bönd sem fram komu. Ég hef þó reyndar aldrei verið sterk á tónlistarsvelli en er loksins farin að fíla Red Hot Chillipeppers. Þetta tekur allt sinn tíma hjá mér en hafa ber í huga að Bon Jovi tróndi á einhverjum stalli í öll þessi ár þar sem enginn annar komst fyrir en eftir tónleikana þarsíðasta sumar er laust pláss fyrir fleiri.
- 100 metra spretti. Mig minnir að ég hafi farið 100 metrana á rúmum 14 sek hér á árum áður. Þessa dagana næ ég varla að gera nokkurn hlut á svo stuttum tíma, sérstaklega ef þeir fela í sér færslu frá A til Bé. Ég horfði á sjálfa mig í vídeóinu spila rúgbý og hélt um tíma að bölvað tækið væri fast í slo-mo.

Þeir segja að 'thirties are the new twenties' sem ég vona að sé satt. Ég treysti því bara að ég verði enn frjó á fimmtugsaldri.

föstudagur, október 26, 2007

Torrent.is

Getur einhver sent mér lykilorð á torrent.is? Langar svo í Grey´s númer fjögur og er orðin svo pirruð á hikstandi Shenzen diskum.....anybody? Sendið á rebekka.kristin@financeasia.com. Takk takk!

Borgin mín

Hér er flottur linkur á borgina mína. Staðsetjið bendilinn efst á myndina og færið músina hægt niður á við. Frá sólarupprás til sólseturs í Hong Kong - eilítið öðruvísi en sólarlagið á Kópaskeri en yndislegt samt.

http://61226.com/share/hk.swf

Bekka

fimmtudagur, október 25, 2007

Elsa kemur

Eftir 2 vikur fæ ég góðan gest en Elsa vinkona úr HR er á leiðinni til Hong Kong - yippee! Ég er búin að taka föstudaginn frá og hef skipulagt þétta dagskrá en Elsa er orkubolti með meiru. Hún mun fara á rúgbýæfingu þar sem hún þarf að tækla og taka fullan þátt, dansa uppi á borðum um kvöldið en ekki þó meira en svo að hún þoli sjóbrettaferðina næsta morgun - þá stutt hike og rúntur upp á Peak, Landsbankapartý um kvöldið og tveggja tíma nudd daginn eftir. Hún stoppar bara í 2,5 sólarhring og nú skal hver mínúta nýtt!! Ef hún er heppin fær hún að horfa á rúgbýleik en þó ekki mig, því mitt lið er í fríi þennan laugardaginn.

Hlakka mikið til, kannski hún komi með ost?

Bekka

miðvikudagur, október 24, 2007

Ég gleymdi í fyrri færslu að þakka kærlega fyrir mig öllum þeim sem fóðruðu mig og tóku frá tíma til að hitta mig í Íslandsferðinni minni sem var sérlega ánægjuleg eins og fyrri daginn. Gott veður, góður matur, gott fólk. Ég komst aldrei á Hlölla en ég lét það verða mitt fyrsta verk að borða SS á BSÍ.

Sjáumst í febrúar á næsta ári! (Nema Elsa, hún kemur eftir 2 vikur, yippee!)

mánudagur, október 22, 2007

Stirð og stynjandi

Svaf lítið í nótt. Ég er illa farin af strengjum og get suma útlimi takmarkað hreyft. Hausinn er fastur í framstöðu og armarnir neita að lyftast meira en 90 gráður sem vissulega takmarkaði fataval í morgun. Ég keppti í rúgbý um helgina og skoraði mark, fór á 2x landsliðsæfingar og andaði inn mold niður í lungnatotur. Það er ljúfsár kvöl að vera íþróttakona.

Í gær var góður dagur. Ég spratt á fætur eftir 3,5 klst svefn til að fara á æfingu og fór svo beint heim í bólið aftur. Um kvöldið fundum við veitingastað á ný sem ég hef leitað að í næstum fjögur ár! Mikil gleði með það og ég tók 3x nafnspjöld svo ég gleymi aldrei aftur hvar hann er. Við átum yndislegan tælenskan mat og fórum vel belgd að sofa. Veðrið var með besta móti um helgina og við tókum nokkra klukkutíma í að flatmaga á ströndinni. Þó má sjá á hitatölum að haustið nálgast, gráðurnar ná ekki lengur 30-markinu en 23-27gráður er enn viðunandi í októberlok. Eftir strandaferðina fórum við á rúntinn upp til Gold Coast þar sem ég bjó fyrstu mánuðina í Hong Kong og reyndum að komast á hestbak. Hér er ekki hægt að ganga inn á næstu hestaleigu og fá að skreppa á bak eins og á Íslandi. O seisei nei, þú þarft að fara í mat hjá reiðkennara sem dæmir hvort þú sért hæfur til að stjórna hesti og jafnvel þá, þótt þú standist prófið, færðu ekki að taka hestinn út fyrir girðinguna og gengur þess vegna bara í hringi sem varla ná meira en 500 metrum frá upphafi til enda. Hestarnir eru stórir og stæðilegir, líkari Fagra Blakk en íslenskum gæðingum svo ég var svona eftir á að hyggja ekkert sár þótt ég kæmist ekki á bak. Fjölskylda Justins á nokkra hesta og hann er búinn að leggja til 4ra daga hestaferð um jólin.

Hnykkur komst á húsnæðismál þegar okkur var sagt frá 800þús ISK greiðslu sem gleymst hafði að segja okkur frá en hún er á eindaga eftir 4 vikur. Sem betur fer er Bekkan skipulögð þegar kemur að fjármálum og þessu var reddað eftir nokkur svitaköst og Excel æfingar. Ekki skemmir fyrir að kærastinn er endurskoðandi og skilur mikilvægi fjármálalegrar reiðu.

Hlökkum til að fá Hulduna heim, vonandi með lakkrís og ost.

fimmtudagur, október 18, 2007

Komin heim

Langt bloggfrí - búin að vera fjarverandi í töluverðan tíma. Helstu fréttir:

Rúgbý
Heimsmeistarakeppnin í rúgbý stendur yfir og ég horfi á flesta leiki sem ég mögulega næ. Ég er orðin bónafæd rúgbýbulla og fæ hraðan hjartslátt, svitaköst og stressútbrot í spennandi leikjum. NýjaSjáland féll úr keppni eftir hörkuleik við Frakka sem er náttúrulega sérstaklega sorglegt því Frakkar eru jú hataðir á alheimsvísu.

Sjálf æfi ég og spila rúgbý 5x í viku og er nú komin í landsliðið á ný. Þrekæfingar á sunnudagsmorgnum klukkan 8 koma í veg fyrir partýhald um helgar og vonandi skila sér í fegurri botni og spengilegri leggjum. Ég er ekki enn orðin eins fit og ég hefði viljað - óska eftir að forsvarsmenn Boot Camp komi sér upp starfstöðvum hér.

Vinnan
Ég er nýkomin heim eftir 2,5 vikna ferð til Bandaríkjanna og Evrópu. Ég fór á ráðstefnu í Boston þar sem ég hitti Ingu vinkonu yfir bjór og fékk mér svo annan á Cheers, fyrirmynd samnefnds sjónvarpsþáttar þar sem allir vita hvað maður heitir. Ég var þó ekki ávörpuð með nafni.
Eftir sól og sumargolu í Boston flaug ég til London, þá áfram til Parísar, Amsterdam, Utrecth, Osló og London á ný. Þráði mitt eigið rúm og mína sturtu þegar þessi þvælingur var farinn að taka sinn toll enda slítandi að skipta um hótel nær hverja nótt. Ég er nú komin með fleiri mílur á bakið en meðalflugmaður, svo sannarlega búin að sprengja hámarksflugtímann á mánuði hjá Flugfélagi Íslands! Annars gengur vinnan vel og ég er sátt. Náði sölumarkmiðum ársins í þarsíðasta mánuði og er því allt sem ég geri héðan af plús í kladdann og heldur yfirmanninum ánægðum.

Annað
Stærstu fréttirnar eru náttúrulega kaupin á nýju íbúðinni. Justin og ég festum kaup á íbúð saman í hjarta bæjarins og slokknar nú von í brjósti margra (?) um að ég sé á heimleið í bráð. Það hefur nú runnið upp fyrir mér að leigugreiðslur síðustu 15 ára skila sér seint í eigin eftirlaunasjóð svo ég fór á fullt að finna okkur holu sem kæmist fyrir í fjárhagsáætlunum. Hún fannst, 55 fermetrar með svölum, sameignar sundlaug, útigrillsvæði, leikvelli, pingpong sal, bókasafni, gym svo eitthvað sé nefnt. Við erum bæði stubbar svo við komumst vel fyrir í þessu rými, fólk sem aldrei er heima hjá sér nema rétt yfir blánóttina. Einu vandræðin eru að við hefðum helst þurft heilt aukaherbergi undir allan þvottinn því það eru tvö sett af sveittum rúgbýgalla á hverju einasta kvöldi sem þarf að þvo!

Nú tekur bara við hugmyndavinnan við innréttingar og önnur praktísk atriði - eitthvað sem Hulda mun ábyggilega njóta sín í.

Petra kemur reglulega í heimsókn frá Kína. Hún er svo margnudduð að skinnið á henni er orðið sútað. Það gengur bara vel hjá henni og ég held hún hafi engan nemandann barið enn. Enda eru þeir bara sjö. Voðalegt væri það ef ég væri kennari.

Hulda er komin til Íslands til að endurnýja passann. Alveg hreint ótrúlegt að Strúlla litla, hægri hönd samgönguráðherra fyrir kosningar, hafi ekki kippt þessu þjónustuleysi í laginn á meðan færi gafst. Þeir sem ekki hafa fylgst með pirrubloggum um þetta fáránlega kerfi skulu hér fræddir um það að Íslendingar búsettir erlendis þurfa í eigin persónu að fljúga til Íslands til að endurnýja passana sem í Asíu fyllast á réttum 2 árum ef maður er duglegur. Tvær vélar aukalega voru pantaðar til að sinna endurnýjun íslenskra vegabréfa og hvar var þeim potað niður?? Jú, í þeirri borg sem ég hata mest - London - og Köben!! Íslendingar i Danmörku fara líklegar heim einu sinni á ári og ferðast jafnvel meira innan Evrópu þar sem engir stimplar eða visalímmiðar fylla öll pláss, en við sem búum hinum megin á hnettinum. Þar fyrir utan kostar það þá um ISK20,000 að stökkva heim og til baka og hægt að velja úr 3 flugum á dag á meðan það er minnst 24ra tíma ferðalag hvora leið og amk. 3-4x meiri kostnaður fyrir okkur hérna megin. Hulda sigaði fréttamönnum á Steina þegar hann fór í sumar heim að endurnýja og gúrkutíðin tryggði Steina flennistóra mynd og frétt á baksíðu Moggans. Hann var þó brosandi eins og bjáni í stað þess að yggla sig yfir þessu fáránlega kerfi og tel ég víst að núverandi samgönguráðherra væri búinn að breyta öllu saman ef Steini hefði bara verið grimmur.
Hulda kannski æsir sig í staðinn í sinni ferð og sýnir þeim kick box sem hún er nú orðin gríðarlega góð í. Hún hefur enn engan barið á Íslandi svo lögreglu hefur þurft til að skakka leik - bara tími til kominn hefði maður nú haldið!

Verð víst að vinna eitthvað í dag en mestur tíminn hefur farið í að enduruppgötva Google Earth og skrifa þetta blogg. Eitthvað ætti að fæðast aftur fljótlega - góða helgi.