fimmtudagur, október 18, 2007

Komin heim

Langt bloggfrí - búin að vera fjarverandi í töluverðan tíma. Helstu fréttir:

Rúgbý
Heimsmeistarakeppnin í rúgbý stendur yfir og ég horfi á flesta leiki sem ég mögulega næ. Ég er orðin bónafæd rúgbýbulla og fæ hraðan hjartslátt, svitaköst og stressútbrot í spennandi leikjum. NýjaSjáland féll úr keppni eftir hörkuleik við Frakka sem er náttúrulega sérstaklega sorglegt því Frakkar eru jú hataðir á alheimsvísu.

Sjálf æfi ég og spila rúgbý 5x í viku og er nú komin í landsliðið á ný. Þrekæfingar á sunnudagsmorgnum klukkan 8 koma í veg fyrir partýhald um helgar og vonandi skila sér í fegurri botni og spengilegri leggjum. Ég er ekki enn orðin eins fit og ég hefði viljað - óska eftir að forsvarsmenn Boot Camp komi sér upp starfstöðvum hér.

Vinnan
Ég er nýkomin heim eftir 2,5 vikna ferð til Bandaríkjanna og Evrópu. Ég fór á ráðstefnu í Boston þar sem ég hitti Ingu vinkonu yfir bjór og fékk mér svo annan á Cheers, fyrirmynd samnefnds sjónvarpsþáttar þar sem allir vita hvað maður heitir. Ég var þó ekki ávörpuð með nafni.
Eftir sól og sumargolu í Boston flaug ég til London, þá áfram til Parísar, Amsterdam, Utrecth, Osló og London á ný. Þráði mitt eigið rúm og mína sturtu þegar þessi þvælingur var farinn að taka sinn toll enda slítandi að skipta um hótel nær hverja nótt. Ég er nú komin með fleiri mílur á bakið en meðalflugmaður, svo sannarlega búin að sprengja hámarksflugtímann á mánuði hjá Flugfélagi Íslands! Annars gengur vinnan vel og ég er sátt. Náði sölumarkmiðum ársins í þarsíðasta mánuði og er því allt sem ég geri héðan af plús í kladdann og heldur yfirmanninum ánægðum.

Annað
Stærstu fréttirnar eru náttúrulega kaupin á nýju íbúðinni. Justin og ég festum kaup á íbúð saman í hjarta bæjarins og slokknar nú von í brjósti margra (?) um að ég sé á heimleið í bráð. Það hefur nú runnið upp fyrir mér að leigugreiðslur síðustu 15 ára skila sér seint í eigin eftirlaunasjóð svo ég fór á fullt að finna okkur holu sem kæmist fyrir í fjárhagsáætlunum. Hún fannst, 55 fermetrar með svölum, sameignar sundlaug, útigrillsvæði, leikvelli, pingpong sal, bókasafni, gym svo eitthvað sé nefnt. Við erum bæði stubbar svo við komumst vel fyrir í þessu rými, fólk sem aldrei er heima hjá sér nema rétt yfir blánóttina. Einu vandræðin eru að við hefðum helst þurft heilt aukaherbergi undir allan þvottinn því það eru tvö sett af sveittum rúgbýgalla á hverju einasta kvöldi sem þarf að þvo!

Nú tekur bara við hugmyndavinnan við innréttingar og önnur praktísk atriði - eitthvað sem Hulda mun ábyggilega njóta sín í.

Petra kemur reglulega í heimsókn frá Kína. Hún er svo margnudduð að skinnið á henni er orðið sútað. Það gengur bara vel hjá henni og ég held hún hafi engan nemandann barið enn. Enda eru þeir bara sjö. Voðalegt væri það ef ég væri kennari.

Hulda er komin til Íslands til að endurnýja passann. Alveg hreint ótrúlegt að Strúlla litla, hægri hönd samgönguráðherra fyrir kosningar, hafi ekki kippt þessu þjónustuleysi í laginn á meðan færi gafst. Þeir sem ekki hafa fylgst með pirrubloggum um þetta fáránlega kerfi skulu hér fræddir um það að Íslendingar búsettir erlendis þurfa í eigin persónu að fljúga til Íslands til að endurnýja passana sem í Asíu fyllast á réttum 2 árum ef maður er duglegur. Tvær vélar aukalega voru pantaðar til að sinna endurnýjun íslenskra vegabréfa og hvar var þeim potað niður?? Jú, í þeirri borg sem ég hata mest - London - og Köben!! Íslendingar i Danmörku fara líklegar heim einu sinni á ári og ferðast jafnvel meira innan Evrópu þar sem engir stimplar eða visalímmiðar fylla öll pláss, en við sem búum hinum megin á hnettinum. Þar fyrir utan kostar það þá um ISK20,000 að stökkva heim og til baka og hægt að velja úr 3 flugum á dag á meðan það er minnst 24ra tíma ferðalag hvora leið og amk. 3-4x meiri kostnaður fyrir okkur hérna megin. Hulda sigaði fréttamönnum á Steina þegar hann fór í sumar heim að endurnýja og gúrkutíðin tryggði Steina flennistóra mynd og frétt á baksíðu Moggans. Hann var þó brosandi eins og bjáni í stað þess að yggla sig yfir þessu fáránlega kerfi og tel ég víst að núverandi samgönguráðherra væri búinn að breyta öllu saman ef Steini hefði bara verið grimmur.
Hulda kannski æsir sig í staðinn í sinni ferð og sýnir þeim kick box sem hún er nú orðin gríðarlega góð í. Hún hefur enn engan barið á Íslandi svo lögreglu hefur þurft til að skakka leik - bara tími til kominn hefði maður nú haldið!

Verð víst að vinna eitthvað í dag en mestur tíminn hefur farið í að enduruppgötva Google Earth og skrifa þetta blogg. Eitthvað ætti að fæðast aftur fljótlega - góða helgi.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli