Hér er ég búin að vinna í rúmlega 8 ár. Framan af var ég orkurík og uppfull af hugmyndum sem ég hafði bæði drifkraft og áhuga á að fylgja eftir. Ég vann til verðlauna fyrir sölustörf og stöðuhækkanir voru í samræmi við væntingar. Launin eru yfirdrifin fyrir fólk eins og mig og frídagar fleiri en fólk í Hong Kong á að venjast.
En nú er ég útbrunnin. Næstum hvern einasta dag hugsa ég um að hætta. Ákveðið óþol hefur myndast gagnvart einstaka samstarfsmanni og ég er orðin sú í vinnu sem ég hef minnstu virðinguna fyrir. Bubbi Byggir dóði.
......
6 mánuðum síðar,
......
Nú hef ég sagt upp. Ég ætla að fara í frí, fara í sauðburð, fara til Íslands. Síðasti dagurinn verður í mars einhvern tímann og ég byrja á að fara með Petru litlu í brjóstagjafafrífrí. Síðan verður framtíðin að ráðast svolítið af sjálfu sér.
Aaaaahhhhh. Það er gott að anda frá sér.