Ég er komin heim í heiðardalinn, mengun og muggu, trallallaaalllaalaa.
Fríið var frábært. Hæfileg blanda af leti og verkefnum, fjölskyldu, vinum og quality time, gott veður og mikið gott að borða.
Afmælið gekk svona líka vel. Ég gerði ráð fyrir að þetta yrði bara kvöldveisla eins og afmælispartý á klakanum eru en mér var svo skipað í sparispjarir um miðjan morgun, rétt eftir vöknun!!! Ég hafði farið með hvíta kjólinn í hreinsun nokkrum dögum áður en nú voru góð ráð dýr því hreinsunin hafði týnt gallanum!!! Ég hafði þess vegna þessu fínu afsökun fyrir að fara í verslunarferð sem endaði á að ég keypti mér enn eitt bikiniið og sitthvað fleira sem hreinsunin hafði aldrei komið nálægt né týnt. Voða gott!
Um hádegi var ég þvegin og strokin, tilbúin til að taka á móti gestunum. Ég sat með tengdafjölskyldunni (karlar fremst, konur á öftustu bekkjum auðvitað) fyrir utan marae og hlustaði á margar margar ræður á maori, sem fóru fram á tilþrifamikinn hátt með hrópum, köllum, sérstæðum valhoppum og spjótbendingum á alla gestina sem mér fannst svona á að líta ekkert sérstaklega welcoming, en þetta er víst allt partur af programmet og svo var sungið. Eftir hverja ræðu skal söngur sunginn af þeim sem stendur upp og talar yfir hópinn svo ég var heppin að hafa ekki tekið saman nokkur orð á maori eins og mér datt í hug eitt miðnættið í svefngalsa.
Þegar öllum þessum hrópum og söngli var lokið kom hersingin yfir túnið (heimamenn við annan endann og gestir hinum megin við túnið, líklega ástæða þess að ræðurnar voru svona háværar!) og nuddaði saman nebbunum en þannig heilsast márar.
Þegar öllu þessu var lokið og allir voru orðnir sárir á enni og nefi, var sest til matar sem kominn var á borðin. Og hvílíkt og annað eins. Þetta var eins og þrjúhundruðmanna fermingaveisla þar sem kræsingarnar voru svo þéttlagðar á borðin að hvergi var pláss til að setja niður gaffal, nema helst í feitan kjötbita væri. Ég get ekki ímyndað mér að grænmetisætur gætu lifað lengi í þessu samfélagi en sem betur fer kann ég kjöt og fisk að meta og át á mig gat. Allt var hrikalega gott, ýmsir fiskréttir og heilmikið úrval af lambi, grís og nauti. Það spurðist út að á Íslandi ætum við stundum hrossakjöt svo frameftir kvöldi kom fólk upp að mér og spurði hvort ég væri þessi hrossaæta sem allir væru að tala um. Maður hefur nú orðið frægur fyrir minna.
Yfir matnum voru um 5 klukkutíma ræðuhöld sem öll fylgdu sama munstrinu, eftir ræðu kemur lag. Allt var á maori fyrir utan eina einustu ræðuna sem reyndar var nokkuð vel flutt og fyndin svo ég vaknaði aðeins aftur en annars dormaði ég í mínum íslenska heimi og skildi fæst sem fram fór. Það var svo sem í lagi, Juddy litli skildi víst fæst af því sem fram fór í brúðkaupinu Bjarka og Strúllu og ekki er ég alveg viss um að hann hafi skilið allt saman þarna heldur!
Og svo var dansað. Hljómsveitin tók við af ræðumönnunum, öllum borðum var ýtt út í horn og allir fóru á flug eftir gólfinu. Vinir Justins sem ég hitti um jólin komu í partýið og úr þessu varð þessi mikla skemmtun. Nýsjálenska rúgbý liðið vann mikilvægan sigur á Áströlum sama kvöld og allir voru því í góðu skapi. Mikið fjör sem gerði afmælisbarnið voða glatt, eins og öll afmælisbörn eiga að vera. Með því kveð ég, því Hulda systir sem einmitt er afmælisbarn í dag er farin að bíða með kvöldmatinn og það gengur ekki.
Sagan af Kóreu ferðinni kemur á næstu dögum.
föstudagur, september 19, 2008
fimmtudagur, september 11, 2008
Maorified!
Jæja, blogg frá suðurhöfum til að skjalfesta ferðina fyrir jólabréfið í ár.
Við hjónaleysin flugum á föstudagskveldi til Ástralíu þar sem bróðir Justins á heima. Sól, sumar og heitur vindur tók á móti okkur í Brisbane og flugvélafötin (þykk peysa og ullarsokkar) fóru beint í bakpokann og sandalarnir komu uppúr í staðinn. Við ætluðum að taka út lífshætti þeirra Aubreys og Mellissu sem alla sína ævi hafa búið í litlum márabæ á norðureyju Nýja Sjálands með dætur sínar tvær.
Þau reyndust vera búin að koma sér vel fyrir í flottu einbýlishúsi, með tvo bíla og allt sem þau vantaði í nágrenninu. Bæði fengu þau vinnu á stuttum tíma og þótt launin megi gjarnan vera hærri, eru lífsgæðin betri og þau vinna nú í því að fá foreldra sína yfir líka. Á Gold Coast er gott að vera, mikið um garða og opin græn svæði en við Justin fórum nú samt ekki í húsnæðisleit að svo stöddu. Líður vel í HKG og langar ekkert burt, allavega ekki strax.
Við fórum á ströndina, í golf, í ræktina þar sem mér tókst að detta af hlaupabrettinu með látum, í búðir og á markaðinn. Gott fólk, góður staður, ætlum að koma aftur.
Núna erum við hjá tengdó í Rotorua eða Rotten Rua eins og ég vil kalla þetta því hér er brennisteinsfnykur yfir öllu og meira að segja ég finn hann. Í miðjum bænum er hverasvæði eins og Námaskarð og breiðir yfir bæinn þennan líka dásemdarstink. Hingað erum við komin til að fagna 60 ára afmæli Aubrey Senior eða Toko eins og hann heitir á Maori. Ég hef síðustu tveimur dögum eytt í að mála 'marae' sem er samkomuhús Máranna en við höfum leigt eitt slíkt til að halda 350 manna veislu fyrir gamla. Hann er ætthöfðinginn og búist er við fjölda fólks en nákvæmlega hversu mörgum veit ekki nokkur maður. Það yrði til að æra óstöðugar kvenfélagskonur á klakanum að reyna að skipuleggja svona veislu því það er ekki márunum í blóð borið að senda boð á undan sér. Boðskort í veisluna eru send manna á milli, allir eru velkomnir og flestir heyra af hátíðunum frá öðrum gestum sem láta boðin ganga á milli sín. Margir eru atvinnulausir, símalausir, internetlausir og í það heila heldur sambandslausir en ferðast þó á milli bæja og fá þannig fréttir af fríum drykkjum og mat. Xtra large fólk sem flest er tattóverað og tannlítið hefur komið við á marae þar sem við höfum setið við málningavinnuna og allir kyssa mann, fæstir segja til nafns. Ég bara kyssi á móti og brosi til allra því allt er þetta gæðafólk þótt í það vanti tennurnar. Sumir koma með potta með sér, í dag kom einn með belju sem skotin var fyrir partýið og á morgun er mér sagt að annar komi með grís sem fórnað var í gær. Ekki fékk ég að drepa hann þótt Justin litli hafi enn og aftur lofað mér grísaveiðiferð sem vitanlega ekkert verður úr héðan af.
Í gær fórum við í bíó. Ég hitti frægt fólk með heila tanngarða sem Hollywood kanski borgaði fyrir. Frægastur var Jake the Muss, sá frægi maður sem verstur var í myndinni Once were warriors sem um alla eilífð mun sverta ímynd allra Mára í huga siðmenntaðra Vesturlandabúa. Hann og fleiri höfðu gert heimlidamynd um Tuhoe, ættbálk Justins sem var alveg sérstaklega áhugaverð að horfa á. Fyrir mig, græningjann, var alveg einstakt að sjá hvernig þessi þjakaði þjóðstofn hefur lifað og þróast síðustu 100 árin og bara það eitt að bera saman aðstæður afa hans Juddys og okkar líf í Hong Kong er nóg til að fá mann til að hugsa - og það lengi. Konan sem myndin var um eignaðist 14 börn og endaði aðeins með eitt þeirra sem var þroskaheft og ósjálfbjarga. Fólkið hennar barðist við að gera upp á milli kristinnar trúar og gamalla bábilja um vættir, anda þeirra fráföllnu og bölvana sem hvíldu á þeim sem ekki stóðu sig í stykkinu á einn eða annan hátt. Allir áttu börn með öllum, menn áttu upp í 12 konur sem allar voru í þrælavinnu og svo bakbognar af erfiðisvinnu að erfitt var að trúa að myndin átti að hafa gerst í kringum 1917. Rafmagn og rennandi vatn í héraðinu þar sem afi hans Justins, og pabbi, áttu heima og ólust upp, var ekki til fyrr en 1975. Þá var Aubrey, pabbi hans Justins reyndar fluttur að heiman og byrjaður að búa til sín eigin börn en í síðustu ferð fór ég þangað uppeftir og sá hversu frumstætt allt er þarna uppfrá þar sem föðurbróðir Justins býr enn og nokkur barna hans.
Börn hlaupa um berfætt 9 mánuði á ári, flest frekar feit með hor og fara í bað í læknum án sjampós og svitalyktaeyðis. Já, við erum langt frá upprunanum komin, hann frá Urewera Maungapohatu og ég frá Laxárdalnum þar sem við sitjum og borðum sushi í miðbæ Hong Kong.
Orðaforði minn í Maori hefur stækkað til muna og ég er farin að skilja eitt og annað í menningu Tuhoe ættbálksins. Stundum finnst mér ég vera á meðal indjána, kannski því maður hefur séð kvikmyndir um indjána en ekki svo margar um mára eða aboriginals en ég ætla að leita uppi kvikmyndir og heimildamyndir um márana því það hafa vafalaust fleiri verið gerðar en þessi sem ég sá í gær. Þar sem elsti sonur Aubreys er fluttur til Ástraliu og Justin býr í HKG, brennur sú spurning á mörgum sem eru að koma í sextugsafmælið hver tekur við forystuhlutverkinu í ættbálknum þegar Aubreys nýtur ekki lengur við. Vonandi á hann mörg ár ólifuð en en það leyfi ég mér að efast um að strákarnir hans tveir muni nokkurn tímann sinna því hlutverki sem hann er í núna. Þessi hægláti maður sem sjaldnast segir mikið heima við er í kastljósinu í hvert sinn sem fólk kemur saman, heldur ræður á maori og framkvæmir hefðbundnar athafnir við öll opinber tækifæri. Justin skilur margt en talar aldrei maori. Systir hans hins vegar er altalandi á maori en konur eru aldrei í forystuhlutverki hér svo hún verður aldrei meira innan ættbálksins annað en góð móðir og góður kokkur. Konur skulu ekki halda ræður eða hafa sig í frammi á mannamótum nema helst ef þær eru með læti í eldhúsinu. Þótt Márar búi í male-dominant menningu er Juddy litli jafnréttissinni og leyfir mér oft að tala þótt aðrir heyri.
Fleira vafalaust síðar, ég læri eitthvað nýtt hér á hverjum degi.

mánudagur, september 01, 2008
Helgin var góð og alveg eftir uppskriftinni föstudagsins. Ég fór á æfingu í miklum hita á föstudagskvöld og svitnaði eins og flóðhestur í grindahlaupi. Ég átti því góðan mat skilinn og bjórsopinn sem fylgdi slakaði á öllum mínum vöðvafestingum. Eftir matinn fór ég í nudd og svaf eins ungabarn, alein heima en bóndi var í Malasíu. Það er ólíkt betra að sofna líkamlega úrvinda og finna þreytuna leka úr öllum líkamanum samanborið við þá daga sem maður sofnar eftir langan dag fyrir framan tölvuna, illt í augum og haus eftir heilabrot dagsins.
Það var ekki lengi legið því ég átti að mæta á æfingu á laugardagsmorgunn klukkan 9. Morgunsprækjan var að drepa mig og ég spratt á fætur fyrir allar aldir, búin að sofa svona svakalega vel, blessuðum fimm prósentunum frá kvöldinu áður að þakka. Ég fór svo seinnipartinn með 10 Fransmönnum til Macau í teygjustökk og Cirque de Soleil loftfimleikasýningu. Ég tapaði einum 5 þúsund spírum í casinó en ég er svo heppin í ástum að það gerir ekkert til.
Hjálparalaus drukknaði ég í þvottinum aftur um helgina og lítur nú íbúðin út eins og í senu í þeirri frægu hrollvekju 'Invasion of the Laundry'. Skápaplássið er ekkert orðið en til að bæta gráu ofan á svart erum við stílistinn að fara að versla í kvöld. Úff úff úff, ég sem hélt ég þyrfti ekki að stækka við mig fyrr en ég eignaðist börn.