Helgin var góð og alveg eftir uppskriftinni föstudagsins. Ég fór á æfingu í miklum hita á föstudagskvöld og svitnaði eins og flóðhestur í grindahlaupi. Ég átti því góðan mat skilinn og bjórsopinn sem fylgdi slakaði á öllum mínum vöðvafestingum. Eftir matinn fór ég í nudd og svaf eins ungabarn, alein heima en bóndi var í Malasíu. Það er ólíkt betra að sofna líkamlega úrvinda og finna þreytuna leka úr öllum líkamanum samanborið við þá daga sem maður sofnar eftir langan dag fyrir framan tölvuna, illt í augum og haus eftir heilabrot dagsins.
Það var ekki lengi legið því ég átti að mæta á æfingu á laugardagsmorgunn klukkan 9. Morgunsprækjan var að drepa mig og ég spratt á fætur fyrir allar aldir, búin að sofa svona svakalega vel, blessuðum fimm prósentunum frá kvöldinu áður að þakka. Ég fór svo seinnipartinn með 10 Fransmönnum til Macau í teygjustökk og Cirque de Soleil loftfimleikasýningu. Ég tapaði einum 5 þúsund spírum í casinó en ég er svo heppin í ástum að það gerir ekkert til.
Hjálparalaus drukknaði ég í þvottinum aftur um helgina og lítur nú íbúðin út eins og í senu í þeirri frægu hrollvekju 'Invasion of the Laundry'. Skápaplássið er ekkert orðið en til að bæta gráu ofan á svart erum við stílistinn að fara að versla í kvöld. Úff úff úff, ég sem hélt ég þyrfti ekki að stækka við mig fyrr en ég eignaðist börn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli