Í fréttum síðustu daga fannst mér skemmtilegast að lesa um rottuna sem synti með almúganum í sundlauginni í Tsung Kwan O um helgina. Það er greinilegt að sú sundlaug er ekki þrifin í 4 klukkutíma á dag eins og mín sem lokar á milli 12-3 alla daga vegna þrifa. Enn í dag hef ég aldrei séð neinn á ferli í kringum sundlaugina á þessum tíma en það er nú önnur saga.
Í gær tók ég mér sólarfrí. Úti voru 32 gráður, mikil sól og mig langaði að grilla mig. Svo ég sendi skilaboð á skrifstofuna um að ég kæmi ekki fyrr en eftir hádegi og upphóf svo miklar olíuáberingar. Þegar ég var öll orðin glansandi fín af sólarolíu og factor 4 fór ég í bláa tiger bikininu mínu niður að laug með ipod og bók í hönd að hætti skvísa.
Þá var lokað.
Á fimmtudögum fyrir hádegi er lokað vegna þrifa var mér sagt svo að þessi auma morgun session frá 8-12 á morgnanna er ekki í boði á fimmtudögum. Bjartsýn spurði ég þá hvort ég gæti ekki komið klukkan 12 og fengið mér sundsprett, öll olíuborin eins og ég var og augljóslega búin að leggja mikið á mig til að fá krabbamein. Nei sagði sundvörðurinn, það er lokað alla daga á milli 12-3pm eins og ég auðvitað átti að vita.
Ég: Why?
Dofinn fiskihaus: For cleaning.
Ég: klíníng!!!!! Þú ert rétt búinn að segja að sundlaugin sé lokuð frá 8-12 vegna þrifa!!! varla þarf að þrífa sundlaugina í 7 klukkutíma þegar ekki sála hefur farið ofan í hana í allan heila daginn!!! (ég að missa mig svolítið en ég var jú búin að taka mér verðmætt frí!)
Dofinn fiskihaus: (blikk blikk) (horfir á mig missa mig) (blikk blikk) Erm....sorry. (blikk blikk)
Ég hundskaðist í vinnuna klukkan 1 eftir hádegi og hugsa nú að hálfir vinnudagar henti mér bara vel.
Íþróttirnar hafa aftur tekið yfir alla mína dagskrá, landsliðsæfingar hefjast á ný í næstu viku og ég fer til Kóreu eftir 3 vikur að keppa ásamt Juddy litla og 15 öðrum körlum og kerlingum. Ég geri fátt annað en að skola úr íþróttafatnaði og neita alfarið að bleyjuþvottur geti tekið mikið meiri toll en allar þessar sveittu flíkur.
Uppsögn hjálparars kom sum sé á versta tíma en hún fór aftur heim til Filippseyja og virðist hafa tekið straujárnið okkar með sér. Ég hef auglýst eftir nýrri þjónustustúlku til að þrífa, þvo og kaupa inn fyrir mig, upptekna framakonuna. Juddy heimtar að hún verði að kunna að elda og segist gefa þeim bónus ef hann getur fengið einstaka nudd frá þeim líka en þar líklega dreg ég mörkin því allar konur vita að leiðin að hjarta mannsins er í gegnum magann og óvíst hvað yrði ef hann fengi olíunudd á sófanum í ofanálag!! Vonandi finn ég hina réttu fljótlega áður en allar plönturnar deyja drottni sínum og Juddy klárar straujuðu skyrturnar í fataskápnum.
Annars er föstudagur og ég er tilbúin í átök helgarinnar. Æfing í kvöld, önnur í fyrramálið, loftfimleikasýning í Macau um kvöldið, sund á sunnudaginn og innkaupaferð. Whoop whoop!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli