mánudagur, ágúst 18, 2008

Skreppitúr - SUPPLIES!!!

Einu sinni fór ég í skreppitúr. 36 tímum, 4 flugvélum og þremur heimsálfum síðar var ég komin til Íslands með börnin hennar Huldu því það var fuglaflensa í Hong Kong. Ég stoppaði stutt, át páskalambið og flaug sömu leið í gegnum London, Abu Dhabi og Bangkok til baka.


Í þarsíðustu viku var önnur eins ferð farin, aðeins beinni leið samt og tilefnið gleðilegra. Gunnhildur vinkona var að fara að giftast sveitunga mínum og með 3ja daga fyrirvara stökk ég af stað með brúðkaupsgallann í handfarangri. Ekki var stuttur fyrirvarinn Gunnhildi að kenna því ég var látin vita af plönunum með rúmlega árs fyrirvara en ég hafði jú verið á Íslandi svo stuttu áður að ég sá mér ekki fært að mæta líka í þetta brúðkaup þótt ég glöð hefði viljað. En svo fór samviskubitið að naga mig, surprise púkinn að pota í mig og ég bókaði flugið á þriðjudegi, flaug á fimmtudegi.


Hrikalega var svo gaman! Ég mætti á föstudagseftirmiðdegi í glampandi sól og yndislegu veðri, beint á BSÍ í pulsu eins og alltaf og upp í Kópavog í sturtu og sjæn. Þremur tímum eftir lendingu var ég komin í Glersalinn í Kópavogi með órakaða leggi, illa lakkaðar tær og eilítið úfin eftir skyndiþvottinn. Alltaf glæsileg samt. Björn bóndi var með í ráðum en Gunnhildur hafði ekki hugmynd um að ég væri á leiðinni og svipurinn á henni þegar hún sá mig gerði ferðalagið allt þess virði á augabragði. Ég fékk að halda ræðu, syngja soldið með hljómsveitinni, Stebbi Hilmars söng svo ég táraðist og allt heila kvöldið var bara svo endalaust yndislegt! Ég skemmti mér svoooo vel og entist á djamminu til klukkan 6 um morguninn, eldgömul orðin!!!! Ég veit bara ekki hvernig Íslandsferðir verða nokkuð betri en þessi ? Góðir vinir, gifting, pulsa með kókómjólk, Gay Pride, Hlöllabátur, American Style, sundferð, Reykjavíkurrúntur, fleiri vinir og Extra með saltlakkrísbragði. Það segi ég og skal við standa að Íslandsferðir hér eftir verða takmarkaðar við 2ja daga stopp. Ég brosi allan hringinn bara við að rifja þetta upp.




Engin ummæli:

Skrifa ummæli