sunnudagur, febrúar 22, 2004
Sellusjeik
Já, það kom að því kæru vinir, Bekkan var lögð inn. Orðin 27 ára gömul og var lögð inn á sjúkrahús í fyrsta skipti, með allar sellur í sjokki. Var, eins og aðra laugardaga, að spila rúgbý þegar ég fórnaði mér fyrir íþróttina og fékk tuðruna í hausinn. Á fótboltaárum mínum hjá UNÞ Snerti man ég ekki betur en að ég hafi lifað slíkar árásir af en 30 sekúndum síðar eftir að hafa tæklað mótherjann og náð af henni boltanum hneig ég niður minnislaus og vissi ekki af mér fyrr en leikurinn var búinn og við búnar að tapa. Vitandi að ég væri ekki alveg með fulle fem kallaði ég á krílin hennar Huldu sem ég er með yfir helgina, og skipaði Starra að sækja móður sína hjúkkuna, mig vantaði hennar fagmanlegu heillaráð við höfuðverk og sjónskekkjum.
"En Beeekka, mamma er í Filippseyjum."
"Haa?"
"Beekka (horfir á mig eins og ég sé að grínast), þú ert að passa okkur, mamma er í Filippseyjum og pabbi í Rússlandi. Við sofum hjá þér í nótt."
"Vrövl" urraði ég á barnið "sæktu ljósmóðurina, mér líður ekki sem best".
Starri gefst upp og horfir á Katie sem kemur honum til hjálpar og útskýrir fyrir þeirri heilahristu að líklega sé best að láta tékka á mér, ég sé svona rugluð og ekki alveg með á nótunum.
2 klukkutímum síðar var ég komin á bráðamóttökuna á einum af almenningsspítulunum og snéri við á punktinum þegar ég sá stórt spjald sem tilkynnti meðalbiðtíma upp á 190 mínútur. Svo illa leið mér ekki. Minnið var meira að segja allt að koma aftur, nema 20 mínútna blackout tímabil frá því ég fékk boltann í hausinn og þar til ég rökræddi við drenginn um fjarveru Huldu Þóreyjar.
Fór þess vegna heim og lagði mig en var vakin upp af dýralækni í liðinu sem sagði mér bara að taka það rólega og sjá til þess að ég sofnaði ekki þótt ég yrði dösuð og þreytt. Viðurkenndi að ég væri nú í bólinu og indeed mjög dösuð og þreytt, jafnvel óglatt. Hann ráðlagði spítalaheimsókn og ég hringdi til Filippseyja þar sem systirin staðfesti veru sína þar og sagði mér að kíkja aftur á læknadeildina.
Kannski fá þeir ekki margar brjóstastórar ljóskur inn á borð til sín en einhverra hluta vegna fékk ég forgangsmeðhöndlun og var lögð inn með það sama á taugadeild innan um sinnisveika og sönglandi. Mínar verðlaunaæðar, sem læknanemar á 3ja ári vilja óðir æfa sig á enda stórar og belgmiklar pípur, hurfu inn í sjálfar sig. Þremur misheppnuðum tilraunum síðar til að koma í mig næringu í æð heimtaði ég að fara í sneiðmyndatöku og fá svo að fara heim, ég þyrfti enga næringu og langaði helst heim í bólið til barnanna.
Til að gera langa sögu stutta fékk ég margar myndir af heilanum sem flestar voru í lagi og mér var sleppt eftir miklar fortölur og pappíraundirritanir út á götuna kl. 11 morguninn eftir. Alla nóttina var ég vakin á klukkutíma fresti til að svara spurningum og gera æfingar sem sanna áttu að ég væri með fullu viti og meðvitund. Undir það síðasta var ég farin að rétta út arminn fyrir blóðþrýstingsmælingu án þess að opna augun þegar ég heyrði í þeim kveikja á mælitækinu og segja í einni runu "My name is Rebekka, I´m 27 years old and I know that I am in Queen Mary Hospital."
Vonandi verða 27 ár í næstu sjúkrahúsvist.
fimmtudagur, febrúar 12, 2004
Áskorun tekið
Tók áskoruninni frá Ingu og gerði kort af þeim löndum sem ég hef heimsótt. Nokkuð gott en betur má ef duga skal, bæti við Nýja Sjálandi innan tveggja mánaða.

create your own visited country map
Annað títt:
"Pétur Starrason (hamstur) er bústnaður, hann át naríur". Enn eitt klassískt dæmi um talsmátann á Huldu Þórey. Læt það nú vera að nagdýrið hafi nærst á nærfatnaði því það virðist sem gæludýr þeirrar fjölskyldu geri það að vana sínum. (Hundurinn heitinn át sig í gegnum alla haustlínuna frá Marks og Spencer áður en honum var komið fyrir "kattar"nef).
Nei, flestir hefðu bara sagt að hamsturinn væri orðinn feitur, gott og gilt (og enn í notkun) íslenskt orð. Læt þetta nægja um orðaforða stóru systur, held hún sé að ná hintinu....

mánudagur, febrúar 09, 2004
Skelfingin eina
"Traumatized" sagði eldri systirin eftir að hafa horft á þá í miðjunni leika ruðning. Angistarsvipurinn málaður fastur og hún var langt í frá jafn stolt og tilefni gaf til þegar ég var valin leikmaður dagsins eftir stórbrotnar tæklanir og aðrar leikfléttur.
"Hingað og ekki lengra Bekka, þetta gengur ekki lengur með þig."
Hún telur það nú víst að ég muni aldrei gefin manni og ekki alls kostar viss lengur um að ég hneigist til karlkyns lengur. Best ég nefni ekki við hana uppákomuna í búningsherberginu í þarsíðustu viku þegar gengið var inn á tvær ástkonur úr liði andstæðingana að skrúbba hvora aðra heldur blíðlega í sturtunum....

SSSssssssstuttklippt
Var að koma úr klippingu. Mr. Man, hinn kínverski klippari minn, gerðist full gráðugur með klippurnar og nú er ég Stuttklippt með stóru S-si. Er einhvern veginn í ætt við Gwyneth Palthrow úr Sliding Doors og vantar ekkert nema hærri kinnbein, fallegari húð, framsettari höku og beinna nef og þá er ég nálægt því jafn falleg. En það er samt gott að vera ég.
Fékk mér bláan stein í bumbuna til huggunar. Er pæja dauðans.

sunnudagur, febrúar 08, 2004
Kuldi og kafaldsbylir
Oft hef ég verið kölluð kuldaskræfa. Oft hef ég kvartað þegar öllum öðrum er heitt. Sumir ganga jafnvel svo langt að fullyrða að um mínar pípur renni fiskablóð. En í þetta skiptið hef ég rétt fyrir mér. Í Hong Kong hefur ekki verið svona kalt síðan 1885 og því eiga allar mínar gæsabólur rétt á sér og kvefið sem mig hrjáir á engar ættir að rekja til aumingjaskapar. Þó get ég ekki annað en hætt að kvarta þegar litið er á fréttir Morgunblaðsins þar sem EGS eru á kafi og björgunarsveitir á sólarhringsvöktum. Vesalings aumingjast strákarnir mínir á EGSAP sem þrátt fyrir kulda og hret skrifa mér línur og láta hvergi á sjá. Þeir hafa nottlega ekki þurft að fara í vinnuna lengi og hafa kannski ekkert betra að gera en skrifa fyrrverandi fluffum á meðan mestu skaflarnir hlaðast upp. Elsku Erlendur, Einar, Örvar, Garðar og allir hinir, við sjáumst þegar snjóa leysir!! Bekka

Það ástkæra ylhýra
Það þekkja allir Íslendingar sem brottfluttir eru eða hafa verið langdvölum erlendis að íslenskan lætur undan að nokkru leyti. Áhrifin eru mismunandi á mennina eins og þeir eru margir. Er nú svo comið að inn slæðast c í stað ká-a, óafvitandi skrifa ég thonokkur orð með th í stað þorns og vaff og eff eru jafngild orðin. Sem betur fer geri ég mér fulla grein fyrir veilunni sem mig hrjáir og í flestum tilvikum held ég að ég nái að leiðrétta sjálfa mig áður en ýtt er á "publish" eða "send."
Hulda systir er annar kapítuli útaf fyrir sig. Á meðan mín veila er nokkuð staðbundin við ritað mál hefur brottnám íslenskukunnáttu hennar snúist gegn talmálinu. Þetta kemur fram á nokkuð skemmtilegan hátt en svo virðist fræðimönnum bera saman um að nútíma íslenska hafi horfið henni í svefni. Hún ræðir um dagsins gang á forníslensku svo hrein unun er á að hlusta. "Bekka mín, finndu nú snöggvast fyrir mig dulu til að strjúka af skemlinum áður en ég sest á þennan óþrifnað". Ég hef marghótað að kaupa mér litla bók til að skrifa hennar gullkorn í. Hún er fyndin þessi elska...