fimmtudagur, maí 29, 2008

Ýmsar smáfréttir


Mikil vinnutörn að undanförnu hefur sett mark sitt á bloggið mitt - en nú skal úr því bætt.


Hér hristist og skelfur jörð eins og á Íslandi en sem betur fer í öruggri fjarlægð frá mér. Kína er í sárum eftir stórkostlega skjálftahrinu og enn sér ekki fyrir endann á hörmungum þeirra sem í öllu þessu lentu því nú eru flóð og aurskriður, hungur og sjúkdómar meðal þess sem þau þurfa að takast á við í miðri sorginni yfir að hafa misst allt sitt, systkini, börn og foreldra, nágranna og nærstadda. Allt snýst um að bjarga því sem bjargað verður og þá er ekki verið að tala um að kippa myndaalbúmunum með sér út úr brennandi húsinu, heldur eru hundruðir þúsunda bornir á brott ef þeir ekki geta hlaupið sjálfir undan áframhaldandi hættu. Stíflur eru að gefa sig, auskriður mynda stöðuvötn þar sem stöðuvötnum var ekki ætlað að standa og nú bíða allir eftir fréttum af flóðum og öðru hryllilegu.


Enginn hefur haft samband við mig til að athuga hvort það sé í lagi með okkur Íslendingana þrátt fyrir bloggleysið en það er nú líklegast frekar íslenskri bjartsýni um að kenna/þakka. Einhverjir af íslensku kyni voru þó nær skjálftamiðju og hef ég komið símanúmerum og netfangi viðkomandi til fréttastjóra 24ra stunda þar sem allar fréttir skulu birtast fyrst með skörung við stjórnvölinn.


Gunnhildur Arna gefur 'fyrstir með fréttirnar' alveg nýja þýðingu en hún sendi mér fréttaskeyti í sms formi um fæðingu dóttur sinnar á meðan verið var að mæla stærð og þyngd barnsins! Geri aðrir betur!


Ég hef sjálf verið mikið í sviðsljósinu. AsianInvestor hélt árlegan kvöldverð fyrir elítuna í fjármálaheiminum í Asíu og flugu stórlaxarnir inn frá öllum hornum Asia Pacific. Ekki þó í einkaþotum, það gera bara Íslendingar. Ég var uppi á sviði með brosið frosið fast að afhenda 85 verðlaun til þeirra sem stóðu sig best á liðnu ári.



Fáum mynd.









Þessi ágæta kona gerði sér ekki grein fyrir að þetta var 'black tie' dinner en hún mætti til leiks heldur tjásuleg.


Ég var náttúrulega beib í gala kjól.




Saman söfnuðum við einum 2 milljónum íslenskum til hjálparstarfs Rauða krossins í Kína og vonandi verður einhverjum eða einhverju bjargað fyrir þá aura.
Ég fer til Kazakhstan á sunnudaginn en í dag var staðsetningu mótsins breytt einu sinni enn. Fyrst áttum við að fara til Taldykorgan og rétt þegar ég var búin að læra þetta langa nafn, var mótið flutt til Almaty. Þá gladdist Bekkan og gekk frá nokkrum fundarboðum í fjármálahverfinu. Í dag var okkur sent email með einni línu : the tournament has been moved to Taraz. Eina sem ég finn á netinu um þennan góða bæ er að hann er voða gamall. Þetta verður meira og meira spennandi, ég segi nú ekki annað.
Nú er ég of sein á æfingu - again! - og því betra að drífa sig.
Ég læt frá mér heyra fljótlega. Á meðan bloggið þið hin.








þriðjudagur, maí 13, 2008

Veðurfar


Í dag: Sól, heiðbjart, 28 gráður
Á morgun: Sól, skýlaust, 29 gráður
Á fimmtudag: Endalaus sól, 28 gráður
Á föstudag: Sól, mistur seinnipartinn, 29 gráður
Á laugardag: Einstaka skúr, annars sól og 29 gráður.

Ég tók mér sólbaðsfrí úr vinnunni fyrripartinn og drattaðist bara til vinnu kl. 2.
Sama geri ég á morgun.
Og kannski fimmtudag.

Mánudagurinn var frí því Búdda átti afmæli.

Aaaaahhhhhhh :)

mánudagur, maí 05, 2008

Nú er sumarið komið til Hong Kong með blankalogni, sterkri sól og sundlaugardögum. Hrikalega á ég eftir að leggja mig við sundlaugina heima hjá mér allar helgar sem ég get enda var hún ástæða þess að við ákváðum að kaupa í þessari byggingu. Sundlaugar í Hong Kong eru ekki upphitaðar og því lokaðar 8 mánuði á ári en mín opnaði 1 maí og er vonandi opin fram í október. Það er hins vegar til að æra óstöðugan (sem ég er) að fá botn í opnunartímann. Hún opnar klukkan 9 á morgnanna en lokar klukkan 12 í þrjá klukkutíma. Frá 12-1 eru lífverðirnir í mat og næstu tvo tímana eru þeir að þrífa laugina. Eh?!? Þá opna þeir í aðra þrjá tíma, til klukkan 6 en þá þurfa þeir 1klst í kvöldmat. Hún er svo opin frá 7-9 um kvöldið, þar til þeir þurfa kvöldkaffið sitt. Ég fékk 6 ára vinkonu í heimsókn um helgina sem var alveg furðu lostin á þessum opnunartíma sem segir sitt um hversu fáránlegt þetta er - meira að segja 6 ára barn sér það.

Ekki verður því nú neitað að sundlaugin hækkar endursöluverð íbúðarinnar. Nú þegar alla langar í sund í sumarhitanum, eykst eftirspurnin eftir íbúðum í blokkinni og var mér í gær sagt af fasteignasala að veldi ég hann til að selja fyrir mig fermetrana mína skildi hann glaður garantera einar 55 millur í söluverð. Ég varð gráðug í augnablik og langaði að selja á staðnum því ég græði ekki oft 14 milljónir á 4 mánuðum en sá svo að mér enda í bikininu enn eftir sundlaugarferð morgunsins. Hvernig þætti ykkur að borga 5,500ISK fyrir fersentimetrann, milljón á meterinn? Það er eins gott að maður er grannur - ég tek bara 250þús króna pláss uppistandandi.