þriðjudagur, janúar 31, 2006

Batnandi mönnum er best....

Bróðir Bjarki hefur ekki dvalist lengi á Íslandi. Hann talaði um "niðurgang" og "botnhæð" í gær og hristi svo bara hausinn þegar ég missti næstum þvag af hlátri. Hann átti við stiga sem lá niður á við og jarðhæð. HAHAHAHA!

Hong Kong í fréttum

Var að skoða mbl.is sem er svo sem ekki í frásögu færandi, geri það 4x á dag, flesta daga. Í dag voru þrjár greinar á forsíðunni sem tengdust Hong Kong og verð ég nú að viðurkenna að ekki man ég eftir miklum fréttaflutningi héðan frá áður en ég flutti hingað út. Ætli það sé vegna þess að HK er meira í fréttunum eftir að þrír Kópaskersbúar, Patreksfirðingur og einstaka Sunnlendingur álpuðust hingað eða hjó ég kannski ekki jafn mikið eftir Hong Kongískum fréttum fyrir flutninga?

Íslenska ríkið hefur ekki sent neitt til staðfestingar á því að þeir viti að ég sé ekki lengur á meðal þeirra íbúa/ábúenda/residents. Þeir kannski gætu sett það í blöðin, mbl.is, svo ég geti sofið róleg.

Það má bara koma með fréttum morgundagsins takk.

Global warming

Its New Years Day in Hong Kong, the Year of the Dog has officially arrived. South China Morning Post reported huge increases in prices of dogs which can be expected to remain high throughout the year. I cant say I recall particularily high prices of roosters last year, in fact, poultry has sold at rock bottom prices ever since H51N hit Honkers.

We get our fair share of global warming in this part of the world. It is now 23degrees outside, sunny and lovely when it should be the coldest couple of months in Hong Kong. I am tucked away at the office, weblogging and supposedly working, however inefficiently. When the rest of the country is at halt due to the CNY holidays, I am trying to work a little to catch up with the pace I have been unable to keep up the last few weeks. I blame it on too few hours in the day, but probably should look more into time management.

To my delight, brother Bjarki is moving in to a flat around the corner from me. He will have a car park space as well and when sister Hulda gets a new car, we get the old battered one to take for rides on weekends. Yippee! Only thing is that we need to get driving licences first, ehemm!!

Right, back to the accounts!

föstudagur, janúar 27, 2006

Kung Hei Fat Choi

Its New Years again. The year of the dog is about to take off and I have to admit I am not entirely sure which year we are seeing the back end of! Kung Hei Fat Choi is the appropriate greeting these days and should be followed by a little red envelope containing crispy fresh dollars to unmarried people, children, doormen, cleaning staff etc. The more you give away, the more successful you are going to be in the new year. Riiiiggght.

I will unlikely get any despite being unmarried still. I will however give out a few, and possibly be a little more generous this year than last year when I didnt have any money to give. I have bonded tremendously with some of the doormen at Jarrads place and will gladly donate some cash to them and their families. I can feel the wave of success hitting me already.

Its good how in Hong Kong you are constantly given the opportunity to feel good about yourself. For entirely selfish reasons, you agree to foster a puppy or a batch of kittens for a few weeks from the Preventing-Animal-Cruelty people. Whilst accepting the free food and litter they come with, you feel sooo good and genuinly think you have today become a better person. By giving half a percentage of your monthly salary to people doing your dirty work, you positively grow as a person. Riiiiggght.

I am a hypocrite.

fimmtudagur, janúar 19, 2006

Wintertime

Just as I had informed Jarrad that I wouldnt be shaving my legs for the next 2months due to wintertime temperatures, it started warming up again and has been absolutely beautiful weather for the last couple of weeks. Instead of wrapping myself in a blanket at home and drinking hot tea all the time, I am running around with my new Ray Ban shades and in t-shirt. I hope this luck wont backfire later on and bring cold weather in April.

Word is that the 7s outfits will be sexier yet than the Xena ones from last year. Final decision to be made, but with 7s only 2 1/2 months away, we better start planning!! It is such great fun and it will be my brothers first here in HK so I hope to get him with me to watch the mad fun this world famous rugby competition is.

At the hairdressers now. Hulda gave me a voucher for one of the most expensive places in town and certainly one that I wouldnt have gone to myself but she had had enough of me complaining about horrible experience with local barbers. This lovely English homosexual has now informed me that the locals dont have to study at all to get a job as a hairdresser, its sort of a learn-on-the-spot kind of trend. Which, to be fair, does explain a lot!!! I still miss Mr. Man though who had a better working relationship with my bob than anyone ever did in Iceland.

My friend Gunnhildur from Iceland called me yesterday, turning 30 on the 21st of January. Asking if I wasnt coming home for the big celebration and with my recently cancelled NZ trip, I was SO tempted!!! Called a few travel agents this morning, no flights available on the days I can fly - well, out of my budget anyways. It would be such a Rebekka thing to do though, just showing up on the day, wouldnt it!?

All good in Honkers, busy as usual but having fun. Laterz........

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Flightseeing

Brother's 30th birthday last Sunday. Us siblings together with Hulda's kids, went flightseeing - in a helicopter!!! Yes, hired one of those weird things that fly beyond anyones understanding up and down, sideways, diagonal, vertical, north and south, one circle around HK island. It was great to see the island from above, made me miss my days at Air Iceland when I knew nothing better than doing a low pass over the Icelandic glaciers and highlands. Unfortunately I lost/misplaced my brand new camera somewhere and didnt therefore take any pictures.

My NZ trip has been cancelled due to Jarrads participation in HK rugby squad training camp. I'm sure we will have plenty of opportunities to go to NZ, it aint going anywhere! I am quite busy myself these days so its actually not such a bad thing after all.

I have signed a lease for an office space in Sheung Wan together with a friend of Jarrads and last night we went to renovate it, Hulda, Bjarki and me. We are raised in a DIY culture where people dont have helpers, handymen and drivers to do the dirty work for us, so naturally we can shock the locals quite easily when we turn up with paint and ladders and plasters and tool kits. Even Jarrad was a little intimidated when he saw the blue collar version of me, scraping the window sill and plastering it afterwards like I'd done nothing else. Now the rest of the renovation is up to the Indian dude who just informed me he had never done this before. Go figure.

Otherwise, all is good in Hong Kong. Sun is shining and warming us up to 23 degrees this week, highly unusual for January but I wont complain!! It did go down to 6 degrees the other day when it was 8 in Iceland so I shut people up properly when they were mocking me for being cold all the time. I am warm today and want to go out and play.............

mánudagur, janúar 09, 2006

Weblog in English - finally


As promissed, I have started blogging in English for friends and family in all different countries. I dont promise any regular updates but try and touch base every so often. A few pictures might be aired from time to time, again...no promisses!



Now to the important stuff!

The 300.000th Icelander was born just now!
Arent we great to be able to tell that accurately.
Also, slightly more worrying, is that Bjork, our almost-only artist/singer in the world, just got selected as the most eccentric/weird artist in the world according to some English miserables, beating Ozzy Osbourne and some other local weirdos to the top place.

We are 3rd tallest nation, the least corrupted nation, the most beautiful nation (women) and we usually win any comparison if measured per capita.

Finally, we are apparently 5th happiest nation in the world. I bet the survey wasn’t done during winter.

I, for one, am cold, but happy, not so tall but ever so beautiful, slightly weird – per capita.

Rebekka

þriðjudagur, janúar 03, 2006

Hið herrans ár 2005

Árið 2005 eyddi ég aðeins 5 dögum á Íslandi
Árið 2005 hóf ég sambúð með Jarrad nokkrum Brownlee
Árið 2005 át ég súkkulaði á hverjum degi
Árið 2005 passaði ég börn, stofnaði fyrirtæki, stofnaði annað og bjó til tölvuleiki
Árið 2005 var baby blue uppáhaldsliturinn minn
Árið 2005 fór ég 2x til Tælands
Árið 2005 hlustaði ég enn á Where is the love en Robbie Williams var þó í uppáhaldi
Árið 2005 las ég ævisögu Victoriu Beckham, David Beckham, Robbie Williams og Britney Spears
Árið 2005 grét ég yfir Sex in the City og Ally McBeal
Árið 2005 eignaðist ég, og eyddi, meiri pening en ég hef nokkurn tímann áður gert
Árið 2005 var ég fósturmamma fyrir 2 litla kettlinga í nokkrar vikur
Árið 2005 komst ég í buxur sem ég hafði aldrei komist í áður en voru keyptar á sínum tíma sem markmiðsbuxur (þóttu alltaf frekar óraunhæfar en sko mig!)
Árið 2005 skildu Bjarki og Silvija eftir 7 ára samband
Árið 2005 var ég í landsliðinu í ruðningi
Árið 2005 var ég mikið í fjölmiðlum án þess að hafa margt merkilegt að segja
Árið 2005 var ég með ljóst, dökkt, appelsínugult, fjólublátt, grænleitt og grátt hár
Árið 2005 fór ég út að hlaupa að gamni mínu í fyrsta skipti í mörg ár
Árið 2005 flutti Bjarki bróðir til Hong Kong þrátt fyrir hættu á óþægilega nánum samskiptum við okkur Huldu systur
Árið 2005 lærði ég að elda ungbarnamat
Árið 2005 eignaðist ég tengdafjölskyldu í fyrsta skipti í 5 ár
Árið 2005 varð ég ónæm fyrir ýli og grenjum barna
Árið 2005 var ég fyrirliði stúlknaliðs Aberdeen í ruðningi
Árið 2005 var ég ástfangin og værukær
Árið 2005 reyndi á fjölskylduböndin meira en oft áður
Árið 2005 rúntaði ég um á nýjum Mercedes Bens
Árið 2005 var ég enn bílprófslaus
Árið 2005 færðist ég fjær því að langa í börn
Árið 2005 fannst mér ekki nóg um ferðalög
Árið 2005 vann ég utanlandsferð með öllu í happdrætti
Árið 2005 gerðist Hulda opinber stílisti minn
Árið 2005 bjó ég í penthouse íbúð á besta stað í bænum
Árið 2005 endurnýjaði ég kynnin við gamla skólafélaga og æskuvini
Árið 2005 skildu Bolli og Svava
Árið 2005 varð ég 29 ára og því bara eitt ár eftir í fertugsaldurinn
Árið 2005 missti ég mörg kíló og sá lítið eftir þeim
Árið 2005 hélt ég jólin á Sri Lanka
Árið 2005 fékk ég hundaflær
Árið 2005 var þroskandi og fjölbreytilegt ár en ég tek 2006 fagnandi!

Gleðilegt ár!!!

Jólabréfið í ár

Gleðileg jól!!!

Dagur að kveldi kominn, árinu að ljúka. 2005 var ánægjulegt ár, viðburðaríkt að venju og tími mikilla breytinga.

Árið hófst á að ég steig fyrstu skrefin í viðburðastjórnun sem lagði grunninn að stofnun BEX, sem er einkahultafélag í minni eign. Við það hef ég unnið alla daga síðan en leigi minn tíma út til annarra stærri fyrirtækja eftir því sem þurfa þykir. Þá setti ég á laggirnar ráðningarþjónustu fyrir fóstrur og uppeldissérfræðinga (e. nanny agency) en starfsemi hennar hefur vaxið hægt og sígandi út árið allt. Líklega var það þó besti díllinn sem ég gerði þegar ég réði sjálfa mig í hlutastarf við barnfóstrustörf og fékk prósentur af mánaðarlaununum í laun fyrir að finna hæfan starfskraft (mig) ! Þá hef ég unnið síðan í september sem verktaki í frönsku fyrirtæki sem heitir Lexibook og framleiðir tölvuleiki og leikföng og selur um allan heim. Vinnuvikurnar eru því allar ólíkar og oft mikið pússl að koma öllu fyrir. Ég næ að ráða mínum tíma nokkuð sjálf á þennan hátt og er stolt af því að geta bætt mínu við í fyrirtækjaeign Iðugarðs- fjölskyldunnar sem nú telur ein 5 slík.

Félagslífið blómstraði á árinu eins og oft áður. Ég var gerð að fyrirliða í rúgbýliðinu mínu og sett í stjórn rúgbýklúbbsins alls. Það hefur reynst heilmikið starf sem ég hef haft gaman af. Það hvatti mig enn frekar til að mæta á allar æfingar og spila alla leiki sem mögulegt var og árangurinn lét ekki standa á sér. Ég léttist um 8 kíló á árinu og var valin í landsliðshóp Hong Kong liðsins í rúgbý. Ég æfði með þeim í nokkra mánuði en komst því miður ekki í keppnisferðalag til Tælands vegna vinnu og því fékk önnur minn stað í liðinu. Ég mun þó væntanlega reyna aftur á næsta leiktímabili og hlakka mikið til. Á meðan æfi ég 2-3x í viku með Aberdeen liðinu mínu sem reyndar stendur í fallbaráttu í deildinni.

Gestagangur var mikill á árinu og fjölbreytnin þar í fyrirrúmi. Mamma og pabbi komu einna fyrst og pabbi kom svo aftur einn stuttu síðar. Petra systir skellti sér í stutta ferð og daginn sem hún fór komu Bjarki og Silvija frá Ástralíu. Þannig hittumst við systkinin öll í fyrsta skipti í 2 ár – í heila 4 klukkutíma! Elfa frænka og Egill komu í annað skipti í heimsókn en í þetta skiptið með tvo af sínum strákum með sér. Aðrir gestir dreifðu sér svo jafnt á þá mánuði sem eftir voru, samstarfsfélagi frá Flugfélaginu, æskuvinkona frá Kópaskeri, samnemendur úr MA, samnemandi frá HR, Erla úr sendiráðinu í Peking og svona mætti lengi telja. Allir fóru vonandi sáttir heim til sinna landa þótt ekki hafi alltaf verið tími til að sinna öllum nógu vel.


Einkalífið var í miklum blóma þetta árið en ég féll í ást sem ég er enn í. Hann heitir Jarrad Brownlee og er Nýsjálendingur fæddur og uppalinn í Hong Kong. Hann er lögfræðingur og samkvæmt nýjustu tísku er hann nokkrum árum yngri en ég. Sambandið hefur nú náð krítískum 6 mánaða reynslutíma og stendur á nokkuð föstum fótum. Hann hefur lært nokkur mikilvæg íslensk orð og orðasambönd sem takmarkast enn við: knús ástin mín, þú ert æði og bless. (Hann ruglast stundum og vill endilega bæta þ-i fyrir framan æði sem í framburði kemur út eins og þú ert sæði. Kannski ég verði að kenna honum annan betri frasa þegar hann grípur þörfin til að dásama mig).

Ferðalög tóku sinn toll af árinu eins og svo við var að búast. Ég skrapp í stutta ferð til íslands í lok janúar og náði að koma nokkrum á óvart. Vegna anna var ekki hægt að stoppa lengi en ég hef nú lofað að stoppa aðeins lengur í júní 2006

þegar næsta Íslandsferð er fyrirhuguð. Þá fór ég tvisvar til Tælands á árinu, fyrst í 2ja vikna frí með kanadískri vinkonu minni og því næst í vikulanga ferð vegna vinnu. Ég skrapp í keppnisferðalag með rúgbýliðinu til Singapore í júní og verslaði ein 5 pör af skóm eins og fyrirséð var. Mánuði seinna fór ég til Peking í 5 daga og stundaði reifdans á Kínamúrnum í eina 7 klukkutíma með Erlu og Þorgerði sem þar búa (í Peking, ekki á múrnum). Þær voru höfðingjar heim að sækja og ég borgaði fyrir mig með Séð og Heyrt blöðum sem orðin eru gengishá í vöruskiptum Íslendinga erlendis. Ég fór hinar venjubundnu ferðir til Shenzen og Macau í Kína en bætti Zuhai í reynslubankann þar sem Bjarki bróðir og Steindór mágur reka sitt fyrirtæki. Minnstu munaði að við keyptum okkur húsnæði á staðnum en því miður var allt saman uppselt. Þegar þetta er lesið mun ég vera á sundlaugarbakka eða strönd í Colombo, Sri Lanka í jólafríi með Jarrad.

Fjölskyldan er eins og fyrri daginn, dreifð um allan heim. Mamma er á Ísafirði og pabbi skýst á milli Ísó og Reykjavíkur eftir því hvar hans er þörf hverju sinni. Petra systir hóf nám í kennslufræðum í Danmörku og Bjarki bróðir kláraði sitt MBA nám í Melbourne. Hann og Silvija komu hér við á bakaleiðinni til Svíþjóðar en hann hefur hvergi farið síðan. Hún kom aftur út til Hong Kong eftir sumarið í Svíþjóð og Makedóníu en nú hafa þeirra leiðir skilið og hún komin aftur heim í Svíaveldi sem er mikill missir fyrir fjölskylduna. Hulda og Steindór, Freyjan og Starri eru flutt í stærra hús og búa nú í sveitasælu við Hreinvatna Flóa (e. Clearwater Bay). Þau eru minn fasti punktur í Hong Kong tilverunni og ómetanlegt að hafa þau í kallfæri, sama hvort er að mig vanti skó að láni, stað fyrir jólakökubakstur eða andlegan stuðning.

Ég flutti aðeins 2x á árinu sem er framför út af fyrir sig. Næstu flutningar eru vitanlega fyrirhugaðir nú þegar en munu ekki eiga sér stað fyrr en um páskana 2006. Ég fór frá Trevor á Robinson veginum yfir í kommúnulíf í Norður Punkti (e. North Point) en hef nú nýlega flutt megnið af mínu hafurtaski yfir í Gleði Dal (e. Happy Valley) þar sem hann Jarrad litli á heima. Við búum þar í óstöðugu samlyndi við kettina hans tvo, Pogo og Mörshu sem eru illa upp aldir og erfiðir við stjúpmæður. Jarrad bætir þó allt með brosi og ómældu knúsi.

Samskipta- og sinnuleysi gagnvart vinum og vandamönnum setti mark sitt á árið en þýðir þó ekki að ekki hafi verið hugsað heim. Ég sakna ykkar allra og hef reynt að halda úti fréttaflutningi í gegnum bloggið mitt sem er www.rebekkainhongkong.blogspot.com. Mörgum afmælisdögum og öðrum merkisdögum hef ég gleymt en vona að allt verði fyrirgefið á endanum.

Elsku vinir og velunnarar, ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Vonandi hitti ég sem flesta í júní og vitanlega eru allir velkomnir í heimsókn eins og alltaf áður. Ég hlakka til að sjá ykkur á nýju ári og þakka liðnar stundir.

Jólaknús,
Bekka