mánudagur, júní 30, 2014

Sunnudagur

Ég finn hvernig ég leita að þér með augunum og eyrunum hvert sem ég fer á sunnudögum.  Í bakaríinu, sundi, úti á torgi, alltaf.  Undarleg en primal árátta.

Og aftur skal af stað haldið

Þá skal bloggað á ný.  11 ára bloggafmæli og alltaf jafn gaman að lesa hvað einu sinni var.  Ef það bara væri ekki 15 mínútna vafstur að finna leyniorð og urlin sem til þarf.

Bríet Tinna er nú altalandi úng kona sem skipar fyrir jafnt á ensku og íslensku.  Hún sérhæfir sig í samningatækni en lætur sig ekki svo auðveldlega ef prúttunin er ekki henni í hag.  Það er gott að kunna að standa á sínu.  Hún er nú í sundi og fimleikum og dansi og fótbolta, skóla suma daga og mikið að leika sér með frændsystkinum sínum svo það er full dagskrá hjá þessu litla sponsi. Hún fer reglulega í heimsókn til pabba síns og gistir þar einu sinni í viku sem þykir hæfilegt.  Það hefur nóg gengið á til að koma þessu í fastan farveg og ekki er slagurinn úti enn.

Sumarfríið er framundan, afslöppun og andleg ró á Fejö í Danmörku.  Stundum er systurleg þögn allt sem þarf.