Af bloggun
Ég fylgist gjarnan með hverjir eru að heimsækja bloggið mitt. Sérstaklega áhugavert er að skoða hvaðan þeir gestir koma en einn fítusinn býður manni upp á það. Ef þú ferð á google.com eða svipaða leitarsíðu og finnur mína síðu eftir þeirri leið skráist það og skjalfestist á tracker systeminu mínu sem ég skoða reglulega. Eftir nokkra mánuði í bloggheiminum hafa eftirfarandi leitarorð skilað fólki inn á Bekkublogg:
Hot sex in Afreka
Kennedy Town AND Hong Kong AND porn
Logi Bergmann
Orsakir sjálfsvíga
Pizza delivery boy having sex
Kvartanir á hóteli
Þetta finnst mér áhugavert. Ef vel er að gáð er hægt að finna orsakasamband á milli leitarorðanna. Skoðið vel....
fimmtudagur, nóvember 27, 2003
miðvikudagur, nóvember 26, 2003
mánudagur, nóvember 24, 2003
Það er alltaf hægt að stóla á Svíana!!
Hef tekið gleði mína aftur, komin úr buxunum Damians og búin að kaupa rafhlöðu á gamla góða hlunkinn minn svo nú gleðst ég við Diggilúú Diggilei í hvert sinn sem síminn hringir. Þessi sími hefur fylgt mér í rúm þrjú ár og eru margar minningar honum bundnar. Heldur verra að ég var heldur orðin háð víbríngnum í hinum.....

sunnudagur, nóvember 23, 2003
Varla á það bætandi...
Suma daga á maður bara ekki að fara út úr húsi. Úrslitaleikur heimsmeistarakeppninnar í rúgbý í gærkvöldi og bésvítans Tjallarnir unnu. Varla á montið bætandi - útmálaðir og sjálfumglaðir Englendingar áttu bæinn í alla nótt, gaulandi ví ar ðö tsjampíóns framundir morgun. Ég og aðrir Ástralir tókum tapinu með jafnaðargeði, ég líklega meiru en margir þar sem tapið minnti óþægilega mikið á frammistöðu íslenska handboltaliðsins fyrir nokkrum árum þegar allir leikir töpuðust á síðustu sekúndunum.
Jafnt var í leikslok og því flautað til 20 mínútna framlengingar. Englendingar skoruðu á sjöttu mínútu en Ástralir jöfnuðu í seinni hálfleik 3 mínútum fyrir lok framlengingarinnar. Allt leit út fyrir bráðabana en 40 sekúndum fyrir leikslok sparkaði Jonny Wilkinson, aðalhetja Englendinga, tuðrunni á milli stanganna af fáránlegu færi. Ég fékk tvö væg hjartaáföll á þessum tveimur tímum, táraðist, faðmaði ókunnan mann í ástralska landsliðsbúningnum, hoppaði upp svo bjórglas og pizzusneið fór á verri endann og allt þetta án nokkurra deyfilyfja. Ég hafði nefnilega búið mig undir 12 tíma skrall hvort sem Oz næðu sigri eða Tjalland og hafandi aðeins lagt mig 4 tíma nóttina áður þótti mér viturlegra að halda mig við blávatnið þessa nóttina.
Vaknaði því stálslegin og í góðu jafnvægi sem þó yrði raskað innan skamms. Fór í nýju buxurnar sem verslaðar voru í Shenzen stuttu áður en þegar ég steig inn í leigubíl klukkustund síðar vildi nú ekki betur til en svo að saumarnir gáfu sig á 20cm í klofinu! Orðin of sein í hádegismat uppi á Peak mátti ég skipa taxanum heim til Damians til að fá lánaðar aðrar buxur. Í flýtinum gleymdist nýji gemsinn minn hjá leigaranum sem gerði sér nú lítið fyrir og rauk af stað og stoppaði ekki þótt ég hlypi á eftir honum því ég áttaði mig á missinum á innan við 5 sekúndum. Ég fékk lánaðan gemsa hjá vegfaranda og hringdi í sjálfa mig með það sama en hann tók sig til og skellti á mig og slökkti svo bara á símanum!!! AAAaaaarrrg!!! Einmitt hafði ég þakkað fyrir að hafa ekki tapað símanum þegar ég var rænd fyrir réttri viku því í honum eru allir afmælisdagar og öll símanúmer en það dugði nú skammt.
Ég er nú veskislaus, símalaus, allslaus og í buxum af Damian. Sniff....

miðvikudagur, nóvember 19, 2003
Megrun og magaummál
Ég er í fínni megrun núna. Hún felst í því að vakna seint og gera sem minnst svo matarlystin er lítil sem engin. Best að borða ekkert fyrr en í fyrsta lagi um hádegi og drekka nóg af vökva eftir kl. 7. Markmiðið er að maginn minnki niður í litla baun sem ekkert kemst í og þá kemur önnur rýrnun af sjálfri sér. Atkins hvað??

Slypp og snauð
Ég hef bara ekki haft efni á að blogga undanfarið. Af hverju? Jú, ég var rænd. Rænd eins og heimskur túristi, rupluð eins og ég ætti fulla vasa af fé. Fór til Kína í lokasnúninga jólaundirbúningsins og á heimleiðinni náði einhver heimamaður veskinu mínu úr bakpokanum með öllum mínum péningum og kortum í. Lögreglan sem stóð í 4ra metra fjarlægð hreyfði ekki legg né lið, heldur horfði á mig með þreytulegum þorsksaugum og hálfopinn munn. Hann var ábyggilega andfúll líka.
Nú, ég var helst til umkomulaus, seint um kvöld og ég ekki einu sinni með aura fyrir farinu heim. Gat ekki sótt spjarirnar til skraddarans og hvað gera Íslendingar þá? Jú, þeir setjast á stétt og grenja. Og ekki bara hvar sem er heldur á tröppurnar á Shangri-La hótelinu þar sem viðskiptamenn eiga gjarnan leið um. Innan skamms var ég komin með góðhjartaðan fyrirtækjaeiganda upp á arminn sem gaf mér nokkra seðla svo ég mætti komast yfir landamærin. Hann meira að segja gaf mér nokkrar Evrur ef ske kynni að ég væri komin með svo nóg af landi og þjóð að ég vildi bara flýja alla leið heim til Íslands aftur. Svo sorgmædd var ég nú ekki en þáði evrurnar til öryggis.

mánudagur, nóvember 17, 2003
miðvikudagur, nóvember 12, 2003
Allir vita hversu mikill tímaþjófur Internetið getur verið. Í nokkuð landamæralausri tímaeyðslu minni undanfarna daga hef ég eytt klukkutímunum saman á vefvafri, mistilgangsmiklu. Það virðist sem annað hver maður sé farinn að blogga og þannig er hægt að tapa heilu sólarhringunum við að lesa mismerkilegar frásagnir af lífi hins almenna Jóns.
En þegar dagarnir fara í að lesa tilgangslausar vefdagbækur, þar sem hátindur helgarinnar var að kellíngin byrjaði á túr og kallinn setti í vél, settar fram á málfarsmyglaðri og illa stafsettri íslensku er nú fokið í flest skjól. Ég held mig við vini og kunningja í framtíðinni.

fimmtudagur, nóvember 06, 2003
Nú er það svart
Júbs, vaknaði í morgun með annað augað í regnbogalitum og rauðleitar rákir frá nefbeini niður að augnpokanum miðjum á hinu. Engin von um að ég sé aðlaðandi fyrir deitið en vonandi næ ég að sníkja út smá samúð að minnsta kosti. Önnur rugbýæfing í kvöld og vonandi mætir sá sem barði mig niður á þriðjudaginn svo hann fái horft framan í afleiðingar gjörða sinna. Bölvaðir tuddar þessir Kanadabúar.
Helgin framundan og ég með þéttskipaða dagskrá að venju. Á föstudaginn er ræst í 100km göngu sem haldin er árlega til styrktar ýmsum málefnum. Í 4ra manna liði er þrammað og hlaupið í u.þ.b. 25 klukkutíma viðstöðulítið en allir í liðinu verða að skila sér í mark svo árangurinn sé skrásettur. Ég er í fylgdarliði HSBC bankans sem felur í sér andlegan stuðning á stoppistöðvunum, nudd og sokkaskiptingar, plástrun og vaselínáburð, vatnsáfyllingar og annað tilfallandi. Damian vinur minn er í HSBC liðinu og er ástæða minnar þátttöku vitanlega. Strax eftir fyrsta stopp þarf ég að þjóta niður á eyju aftur til að horfa á Rolling Stones hrukkast á sviðinu og má gjöra svo vel að gera það tiltölulega allsgáð því fljótlega eftir tónleikana þarf ég svo aftur á næsta stoppistað að nudda og vaselína. Þeir áætla svo að komast í mark á 24 tímum en metið er 12,5 klst sem sett var af bandarískum meisturum eitt árið. Liðið mitt er no 286 og hér er hægt að fylgjast með okkur á hlaupunum frá föstudegi fram á laugardag.
Á laugardaginn er svo BBQ partý á Lamma eyju sem byrjar snemma því við erum ekki að keppa þessa helgi einhverra hluta vegna. Sunnudagur fer í afslöppun og afeitrun að venju með bátsferð, strandferð eða vídeóglápi. Góða helgi.

miðvikudagur, nóvember 05, 2003
Blá á báðum
Bólgan nær nú 5 millimetra í báðar áttir út frá nefbeininu og ég er farin að blána í báðum augntóttum. Vonandi vakna ég ekki blá á báðum augum í fyrramálið. Frestaði nefnilega hádegisverðardeiti í dag fram til morgundagsins í von um að ég verði orðin aðlaðandi aftur. Það virðist ekki ætla að rætast. Þar fyrir utan vaknaði ég öll í litlum rauðum dílum. Nú hafa þær notað eitthvað ætandi aftur í þvottahúsinu, þær taka sig stundum til greyin og hlægja ábyggilega að mér dílóttri dagana á eftir.
Ég er ekki fyrr komin heim að ég er komin aftur með njálg. Er búin að gera mitt besta við að finna far til London fyrir Katie því mér þykir nú alveg nógu slæmt ef ég þarf að eyða jólunum ein í Hong Kong, hvað þá ef ég þarf að eyða þeim með henni!! Hún er svo fín með sig að hún flýgur hvorki með Aeroflot né Gulf Air, vill hvorki í norður eða suður, bara beinustu leið takk fyrir og ekkert meira með það. Enginn vill hafa hana um borð í Virgin vélunum fyrr en í fyrsta lagi 8.janúar svo nú eru góð ráð dýr. Svo dýr að það kostar hana 140þús að fara með Business Class.
En aftur að njálgnum mínum. Hann virðist nefnilega ekki drepast við að bóka aðra en sjálfa mig í flug eitthvert. Hef nú komist að því að ég er umkringd íslenskum eðalmönnum hægri vinstri (eða suðvestur, norðaustur ef ég á að vera nákvæm). Bjarni Kærnested fluttur til Tokyo og hafa menn nú flogið til Japan fyrir minna!! Þá komst ég að fyrir frekar vandræðalega tilviljun að Baddi ofurtöffari úr Menntaskólanum á Akureyri er staddur í seilingarfjarlægð í Kuala Lumpur. Freistingarnar bíða manns því alls staðar og hætt er við að Ingi Pé sé kominn með samkeppni (bara pabbi skilur þennan...).
Líklega kominn tími á að skvera sér heim, klukkan tólf á miðnætti og ég sit með kalda falafel og kók við atvinnuumsóknir. Bið alla vinsamlegast um að taka eftir að blogg mitt er í sögulegu hámarki þessa vikuna með tvö blogg á dag!! Góða nótt.

Nefmælt og nefskæld
Er bólgin og plástruð á nebbanum sem er tvöfaldur eftir rúbbý í gær, vorum að spila við kaddlana og einn stobbaði ekki heldur dúndradist á mig beint svo úr mér blæddi. Er því nefmæld í dag og vorkenni mér agalega.
Ætlaði að klára jólagjafainnkaup og pakka inn, hálffáránlegt verkebbni í 29stiga hita og glampandi sól en verður líklega að gerast. Nýjasta hugmyndin er Phuket um jólin, einhver með??

þriðjudagur, nóvember 04, 2003
Jólaundirbúningur
Jólin nálgast og því vissara að gefa út heimilisfangið mitt til ykkar allra sem sendið mér jólakort - ég nefnilega gleymdi þessu í fyrra með hroðalegum afleiðingum. Var t.d. að fá einn jólapakkann í septemberlok. Allavega:
Rebekka Kristin Gardarsdottir
c.o. Annerley Midwives
Room 1801, Car Po Commercial Building
18-20 Lyndhurst Terrace
Central
Hong Kong
Ég veit nefnilega ekki hvar ég ætla að vera þessi jólin - eða búa reyndar heldur, því ég gæti verið að flytja um næstu mánaðarmót. Það er vissara að skjóta ekki rótum....

Um orðtök og málshætti frá Kína
Haltur leiðir blindan
Þetta orðtak á vafalaust uppruna sinn í Hong Kong. Afmyndað fólk í keng - og með kýli - staulast um göturnar og hægja á allri umferð.
Botninn varð eftir í Borgarfirði
Einhverra hluta vegna vantar botnstykkið í samfellur kínverskra barna svo í skín prívatið. Merkilegur andskoti.
Að taka sig saman í andlitinu
Þetta orðtak lýsir samanskroppnum, vinnuþjökuðum konum á áttræðisaldri að bera sandpoka í vegavinnumenn. Þær eru allar eins og einhver hafi tekið þær saman (upp) á andlitinu.
Að vera einn á báti
Hér eru margir einir á báti. Bókstaflega.
Þar hitti skrattinn ömmu sína
Hafi það einhvers staðar gerst, var það hér.
Ég er haldin illum árum í dag.

sunnudagur, nóvember 02, 2003
Shanghai
Shanghai er ágæt borg. Marflöt og kommúnísk, svínsleg umferð og lögreglan á hverju horni með flautur til að hafa stjórn á mannmergð, reiðhjólum og fávitum á bak við stýri. Flaug í faðmi China Eastern Airlines og hafði það gott með bók um Shanghai þar sem ég reyndi að ákveða hvað ég ætlaði nú að gera í þessu fríi mínu. Það er nefnilega svo ferlegt með okkur sveimhugana, við æðum bara af stað um leið og njálgurinn nagar mann án þess að vita hvað við ætlum að gera. Hentar mér bara vel.
Ég verslaði jólagjafir og tilefnislausar gjafir handa sjálfri mér. Keypti flottustu undirföt sem ég hef á ævinni átt en af virðingaskyni við "stærðin skiptir máli" bloggið ber mér að tilkynna að brjóstahaldarinn er 85A. Einmitt - A . Það hefur verið sybbinn kínverji sem skírði þessa undirfatalínu.
Eins og drottning á 5stjörnu Ritz-Carlton hótelinu lét ég stjana við mig, fór í nudd og meira nudd, svaf út og svaf lengi. Hitti fjölda Íslendinga á sjávarútvegssýningu sem var stórgaman. Um kvöldið fórum við á barinn á hótelinu þar sem hljómsveitinni var rutt úr vegi og einhverjir útvaldir íslenskir yfirtóku hljóðfærin og buðu upp á Ford fimmtíuogsjö, Spáðu í mig og fleiri góð lög. Vel virtir togaraeigendur og framapotarar gerðust kenndir og síðar fullir, sofnuðu á barnum og sýndu sínar v/bestu hliðar. Konurnar lítið skárri, drafandi og miðaldra. Usss usss usss...
Pétur Björnsson, kóngur frá Raufarhöfn, þóttist hafa fundið tengdadóttur fyrir ógiftan soninn og hringdi með það sama í Kidda sinn hjá Kaupþing. Sá var heldur tregur til enda þekkjumst við frá árum áður í MA og ekki tókust með okkur ástir þá. Ólíklega í gegnum gemsann frá Shanghai til Íslands heldur. Ég er því enn ógift.

border=1 hspace=2 vspace=2>Þetta er hann Bjarni, hann er að hjálpa mér að setja inn myndir á vefsíðuna mína. Hann er nú myndarlegur drengurinn!!