Er það ekki lítilla systra siður að herma eftir þeim stóru? Hulda er byrjuð að blogga aftur, og ég hermi. Ég fór að lesa gamlar færslur á blogginu mínu og fannst það miður að geta ekkert lesið um árið 2010. Svo nú skal úr bætt og 2011 skjalfest.
Petra systir lenti í gær, ólétt eins og önnur systkini. Öll ætla þau að eiga í apríl/maí á næsta ári, nóg af barnabörnum í bili. Ágætt að engin sé pressan á mér því nú er ég sambandslaus. Það þykir þeim flestum í kring um mig að líklega þurfi ég að finna mér íslenskan mann, slíkur sé menningamismunurinn og húmorinn sérstakur að heimamann þurfi til að digga mig. Óneitanlega væri það auðveldara á margan hátt en úrval íslenskra piparsveina í Hong Kong er takmarkað við Starra systurson minn (13 ára) og aðra yngri en hann.
Jólin eru komin í Hamingjudal, ljós og kransar um alla íbúð þökk sé fjölskyldunni. Ber er hver sem ekki á bróður, systur og aðra að baki......... Ég hlakka mikið til jólanna þetta árið sem mér finnast vera byrjuð. Líklega breytast jólin í huga fullorðinna frá því að snúast um pakkana og aðfangadaginn sjálfan á æskuárum í jólaaðventuna sjálfa, lögin, smákökurnar, matinn, fjölskylduna og slíkt. Mér finnst allavega jólin standa í minnsta kosti mánuð.
Nú er best að fara að versla jólagjafirnar og skrifa jólabréfið, korteri fyrir jól eins og venjulega.
xx