Hér sé kalt. Voðalega kalt! Ég er frosin inn að beini en lungun svo yfirfull af yndislegu fersku loftinu að frostið skiptir næstum ekki máli. En bara næstum. Hér er því miður enginn snjór. Úrkomu var reyndar spáð í dag og ég var eins og unglamb á jólum þegar ég spíttist að glugganum í morgun til að sjá snjókomuna en vonsvikin skreið ég aftur undir sæng og langaði ekkert lengur á neinn af þeim fimm fundum sem ég átti í dag.
Ég er í sárri þörf fyrir nýjar dragtir og viðskiptaföt en stílistinn var kallaður til Kína í bátamálningar í staðinn fyrir skipulagða systrastund í búðum. Ég er þess vegna eins og slitinn sláturkeppur í gömlum fötum sem eitt sinn hnepptust að og renndust upp án rembings en í dag er lífið ekki svo ljúft. Ég færist fjær áramótaheitinu um Lundarvigtina en þetta hlýtur allt að renna af eins og smjör í maraþonhlaupinu eftir 3 vikur. Við ætlum reyndar bara 10 kílómetra en Strúlla skráði okkur í spretthlaupshópinn bölvuð svo eitthvað hlýtur að gefa eftir, fitan eða þolið.
Ég hendist milli Kóreu og Kína.....
miðvikudagur, janúar 30, 2008
sunnudagur, janúar 27, 2008
Á ferð og flugi
Það eru greinilega ekki allir með sama húmorinn og ég fyrir færeyskunni, ehemm!
Ég verð meira og minna á spani næstu daga og vikur. Nýja starfið sér til þess. Ég þarf að hitta alla kúnnana okkar og það helst sem fyrst svo nú skal flogið af stað. Á morgun fer ég til Kóreu í 4 daga, þar er bara 8-13 stiga frost. Þá tekur við ein vika í Hong Kong þar sem ég tek á móti ári rottunnar með fjórum afslappandi frídögum. Fyrsti ársfjórðungurinn á hverju ári hér í HK er uppfullur af frídögum (áramót, kínversk áramót, páskar, ching ming festival....).
Strax á mánudegi eftir nýjársfögnuðinn fer ég til Singapore í 4 daga og þaðan beint til Malasíu. Þá er það Tævan og Indland í fyrsta skipti - svo koma foreldrarnir í heimsókn. Ekki óvíst að við stökkvum til Tælands eða Hainan með þau. Þá standa vonir til að ég komist til Ameríku með stoppi á Íslandi í apríl en lengra fram í tímann ætla ég ekki að spá. Glöðust er ég með gullkortsréttindin hjá Cathay, ætli þeir uppgrade mig núna bölvaðir?
Ísland svo aftur í ágúst.
Nýja Sjáland á ný í september.
Ég hendist milli Kópaskers og Kína...........

mánudagur, janúar 21, 2008
Forojska
Það er löngu tími til kominn að kaupa áskrift að Dimmalætting á netinu. Hvað getur glatt mann meira en færeyskur fréttaflutningur á mánudagsmorgni??
Ég er eldhuguð og sjálfstöðug eins og Björk:
»Eg ikki eri nakar serfrøðingur í føroyskum politikki, men eg haldi, at tá eg komi frá einum landi, ið hoyrdi til Danmark í 600 ár, og sum hevur verið sjálvstøðugt í 60 ár, so eri eg heldur ikki fullkomiliga óvitandi um evnið,« staðfestir íslendska heimsstjørnan Björk, sum seinasta hálvárið hevur tosað eldhugað fyri føroyskari loysing á konsertferð sínari kring heimin.
Þetta kemur fram í viðtlali í helgarblaði Dimmalættings við Björk okkar Guðmundsdóttur sem talað hefur fyrir sjálfstæði Færeyja undanfarna mánuði.

fimmtudagur, janúar 17, 2008
Jólabréfið 2007
Kæru vinir og fjölskylda,
Mínar bestu óskir um gleðileg jól til ykkar allra og megið þið öll eiga farsælt og hamingjuríkt komandi ár. Að venju, rétt eins og önnur áramót, lít ég yfir liðið ár og áratugina þrjá sem ég hef nú enst með ykkar hjálp. Ánægjulegt þrítugsafmælið í faðmi fjölskyldunnar á báti við Filippseyjar í lok desember síðasta árs gaf mér nægar ástæður til að ætla að enn á ný sæti ég sátt við skriftir jólabréfsins í ár.
Nú var ég flugfreyja í ein 3 ár hjá Flugfélagi Íslands en aldrei hef ég þó fleiri flugmílur lagt að baki en á árinu 2007. Hjá FinanceAsia sé ég um okkar viðskiptavini í Kóeru, Indónesíu og Singapore svo líklega yrði það löng og leiðinleg lesning ef ég listaði allar utanlandsferðirnar í ár eins og ég hef áður gert. Ég læt það því ógert en skjalfest skal það að ég eyddi tæpum þriðjungi ársins að heiman. Hafi ég ekki verið það áður, er ég nú orðin sérfræðingur í að pakka niður og taka upp úr töskum. Foreldrar og aðrir nákomnir hafa löngu misst sjónar af ferðalögum okkar systkinanna og er það gjarnan fyrsta spurning hvers símtals „Hvar í veröldinni ertu núna stödd?“
Vinnan gengur vel og ég er ánægð með mitt starfsval. Ég ræð mínum tíma mikið sjálf og er send til Íslands reglulega á vegum vinnunnar. Þótt stoppin séu oftast stutt er með einbeittum vilja og skipulagningu hægt að koma fyrir innliti til flestra sem sakna mín sárast. Ég lét mig að sjálfsögðu ekki vanta í 10 ára stúdentsafmælið menntskælinga en það vissi ég eitt fyrir 10 árum að í MA yrði ég stödd 16.júní 2007. Oft var á það minnst við þessa endurfundi að stúlkurnar þættu þroskaðari og öllu myndugri ef eitthvað var, en karlpeningurinn var í anda eins, í útliti aðeins farinn að láta á sjá. Og endalaust gaman var það.
Af öðru sem ég hafði fyrir stafni á árinu: Ég fór í augnaðgerð sem leiðrétti sjónskekkju upp á -7.5 svo fullkomlega að ég er næstum skyggn. Þá fór ég í keppnisferðalag til Guangzhou í Kína og spilaði rúgbý í gríðarlegri rigningu og eldingum. Urðum blautar og aðeins skítugar. Ég lærði söng í tvo mánuði, tók einn kennslutíma í tennis og varð slarkfær á bæði brim-og sjóbretti en ég sótti námskeið í báðum greinum. Við Justin keyptum okkar fyrstu íbúð saman í hjarta bæjarins og erum í augnablikinu upptekin við að flytja inn og koma okkur almennilega fyrir. Ég stóð við stóru orðin úr síðasta jólabréfi og komst í landsliðið í rúgbý, lærði kínverska þjóðsönginn (að hluta til) og skoraði tvö mörk fyrir Hong Kong. Ég keppti í strandablaki og lærði undirstöðuatriðin í krikket. Það var lítið legið í leti á árinu.
Petra systir flutti til Kína á árinu og stundar kennslu í alþjóðlegum skóla, hálf-íslenskum. Við erum því öll systkinin komin austur og bara eftir að sannfæra þau gömlu. Þau eru sem betur fer enn spræk til langferða og kíkja á okkur allavega einu sinni á ári, stundum oftar. Aðrir gestir eiga hér leið um reglulega og flestir hafa vit á að taka með sér ost. Íslenska samfélagið í Hong Kong hefur stækkað töluvert en Landsbankinn hefur nú opnað skrifstofur sínar hér og hélt stórglæsilega veislu til að marka þennan áfanga. Það hrærði sálartetrið að sötra íslenskt brennivín undir „Þorparanum“ uppi á þaki með háhýsi Hong Kong borgar í bakgrunni – íslenskum myndum úr landbúnaði og fiskvinnslu skjávarpað á vegginn.
Ekkert yljar mér þó meira en orð að heiman, heimsóknir og stuttar ferðir á klakann. Ég vona að árið 2009 verði ykkur öllum gæfuríkt og gleðilegt frá áramótum til áramóta – ég hlakka til að hitta ykkur öll sem fyrst. Ég eyði þessum jólum á Nýja Sjálandi en hugsa heim til andfætlinganna og ykkar hinna sem dreifð eru um heiminn.
Jólaknús og kreistur,
Bekka
Árið 2007 lærði ég að telja á maori
Árið 2007 var Greys Anatomy og Prison Break bestu þættirnir í sjónvarpinu
Árið 2007 hlustaði ég mest á Mika og lærði að meta Red Hot Chilipeppers
Árið 2007 var ég aðallega á háum hælum, í dragt og með vaselín á vörunum
Árið 2007 var hárið ljóst, niður að herðum, oftast bundið aftur í stert
Árið 2007 flutti ég aðeins einu sinni en átti þó þrjá samastaði
Árið 2007 fór ég til Bali í fyrsta skipti og var rænd
Árið 2007 var sushi uppáhaldsmaturinn minn
Árið 2007 fór ég þrisvar til Íslands!
Árið 2007 færðist ást mín af baby blue yfir á túrkis bláan
Árið 2007 hljóp ég 24 kílómetra yfir fjöll og hæðir, vatnslítil í 32ja stiga hita og sól
Árið 2007 spilaði ég minn fyrsta landsleik sem íþróttafréttadeild Sjónvarpsins lét afskiptalausan
Árið 2007 fór ég á 2,5 mánaða söngnámskeið en hef enn ekki komið opinberlega fram
Árið 2007 flutti Strúlla til Hong Kong
Árið 2007 drakk ég íslenskt brennivín í fyrsta skipti
Árið 2007 ákvað ég nöfn og fæðingarár ógetinna barna minna
Árið 2007 var ég skipulagðari en nokkru sinni fyrr
Árið 2007 einkenndist af to-do listum og outlook calendar
Árið 2007 fékk ég svæsið ofnæmi fyrir köttum og hef ég þó átt ketti með hléum síðustu 17 árin
Árið 2007 fékk ég fjölda atvinnutilboða
Árið 2007 eyði ég jólunum í Nýja Sjálandi
Árið 2007 eyði ég áramótunum í Sydney
Árið 2007 fékk ég enga steinasteik hjá Erlu og Agli
Árið 2007 fékk ég tvö glóðaraugu
Árið 2007 varð ég fyrir aðkasti vegna kynþáttafordóma
Árið 2007 fannst mér ég ungust ever
Árið 2007 fór ég til 6 landa á 7 dögum
Árið 2007 stóðst ég hérlent ökupróf og hætti því að brjóta umferðareglurnar
Árið 2007 var ég stoppuð af lögreglunni fyrir „dangerous driving“ þegar ég einokaði vinstri akgreinina
Árið 2007 fór ég í go-kart í fyrsta skipti
Árið 2007 eyddi ég páskunum í bikini á múslímskri sólarströnd (þar sem konur eru annars hafðar í kuflum)
Árið 2007 uppgötvaði ég Google Earth og festist yfir því
Árið 2007 lærði ég undirstöðuatriðin í myndbandagerð og klippingu
Árið 2007 stofnaði ég gönguhóp „Hike – I like“ sem dó í fæðingu
Árið 2007 var besta myndin Borat með Sasha Cohen
Árið 2007 hætti ég að sofa á maganum
Árið 2007 var dreginn úr mér síðasti endajaxlinn
Árið 2007 var gott ár.

fimmtudagur, janúar 10, 2008
Lífið er leyniorð.
13 barnalandssíður
5 myndasíður
5 bankareikningar
2 visakort
5 netföng
5 samskiptasíður/forrit
2 útidyrakóðar
og ekki er allt upptalið enn.
Hvernig á maður eiginlega að geta munað þetta allt, sérstaklega þegar aðrir (myndasíður og barnaland) ákveða leyniorðið! Hausinn á mér er orðinn stútfullur af leyniorðum, kóðum og aðgangslyklum svo eitthvað fer að bresta. Ég ætla nú ekki einusinni að byrja á að tala um lyklakippuna mína sjálfa sem í augnablikinu telur 16 lykla.
Úff úff úff, ég er þreytt á þessu. Þeir sem vilja lesa fleiri færslur frá mér vinsamlegast giskið á leyniorðið í kommentaformi.

þriðjudagur, janúar 08, 2008
Bloggað bloggsins vegna
Fátt er að frétta í dag. Jólin eru búin og hversdagurinn tekinn við. Enn er étið eins og ragnarök séu framundan, svefnmunstur er enn sveigjanlegt en færist hægt í fyrra form. Vinnuárið hófst á umræðum um stöðuhækkun sem vonandi verða kláraðar sem fyrst en einhverjar tilfæringar í starfi eru á döfinni. Elskhuginn fór beint í landsliðsbúðir og var kosinn feitasti grísinn í hópnum. Mikið átak er framundan. íbúðin skal endurhönnuð, bíllinn fer ekki í gang, Hulda er föst á Tælandi og ég er annars hugar.
fimmtudagur, janúar 03, 2008
Meira af Márum
Nýsjálensk enska er bara fyndin. Í fyrsta lagi sveigja þeir alla sérhljóða til svo að egg verður að 'igg' og svo framvegis. Þeir enda setningar að syngja upp á við og margar þeirra enda á 'aye?' sem borið er fram eins og 'æj' í spurnartóni. Ef einhver segir sögu sem þykir áhugaverð eða mikilfengleg, ótrúanleg jafnvel, er í staðinn fyrir 'í alvöru??' sagt ' Not even aow!' með fyrrnefndri sveiflu uppávið í endann. Þyrfti að setja inn hljóðprufu svo þetta komist almennilega til skila. Ef eitthvað þykir rosalega gott/flott/merkilegt er 'far out!' gjarnan sagt og flestir eru kallaðir 'Bro' eða 'Cuz'. Alls ekki svo ósvipað samskiptum blökkumanna eftir því sem einfaldur íslendingurinn gat best séð. 'Too much' þýðir 'gott mál' svo t.d. þegar við komum heim úr innkaupaferð með mjólk og brauð var þakkað fyrir þetta viðvik með 'great, too much' í hlutlausum tóni. Nýsjálenskur skemmtiþáttur sem gerir grín að þarlendum, svipaður Simpson, kallast Bro-town en þegar ég leyfði Petru systur að horfa á einn þáttinn skildi hún ekki neitt og spurði á hvaða tungumáli þetta væri. Máróskri nýsjálensku. Not even aow!
Márar heilsast með handabandi og pressa nebbunum saman svo að ennin snertast. Mikil tækni og jafnvægislist er fyrir nefstutta að komast frá slíkum heilsingum án þess að skalla mótherjann. Þá er vissara að passa að maður sé ekki andfúll og mikil mógðun er að loka augunum heldur skal horft djúpt í augun á hinum sem er ekki nema í 3ja sentimetra fjarlægð frá eigin fési þegar best lætur. Ekki gott fyrir fólk eins og mig. En ég lét mig hafa það í nafni eigin alþjóðavæðingar, menningaruppfræðslu og tenglsamyndunar við tengdafjölskylduna. Þessi kveðja kallast hongi og stundum er erfitt að vita hverja maður á að 'hongi' og hverja maður kyssir. Að halla sér fram með fyrirfram stútaðar varirnar gerði ég ekki nema einu sinni því ef hinn aðilinn hallar sér fram í hongi kyssir maður hann beint á varirnar, bláókunnugar! Ég er mjög snögg nú að lesa úr hallagráðu höfuðsins hvort hallað sé inn til kyssinga eða hongi. Ég læri eitthvað nýtt á hverjum degi.
Nóg í dag, yfir og út.

Flestir eru með tattoo. Márar kalla þau moko og hvert tattú er sérgert fyrir hver og einn, byggt á sögu þjóðflokksins hans. Juddy fékk sér stórt moko á öxlina í þessari ferð sem er byggt á verndardýrum og guðum þjóðflokkanna hans, Nga Phui og Tuhoe. Pabbi hans er háttsettur innan Tuhoe ættbálksins en er þó ekki enn með andlits-moko eins og margir ættbálkshöfðingjar eru með. Konur fá sér moko á hökuna og hitti ég nokkrar aldraðar kerlíngar með svoleiðis. Náði samt engri mynd, fannst pínu dónalegt að fá að taka myndir af þeim eins og þær myndu fatta að ég væri bara að mynda þær af því að þær eru með svartar varir og tattú niður alla hökuna. Fann þessa mynd á netinu, svona eru þær þónokkrar:
Hér er svo mynd af tattúinu hans Juddy´s. Ég fékk mér ekkert í þetta sinn, veit ekki hvað pabbi hefði sagt ef ég hefði komið heim með svartar varir!Nóg í dag, yfir og út.