Kæru vinir og fjölskylda,
Mínar bestu óskir um gleðileg jól til ykkar allra og megið þið öll eiga farsælt og hamingjuríkt komandi ár. Að venju, rétt eins og önnur áramót, lít ég yfir liðið ár og áratugina þrjá sem ég hef nú enst með ykkar hjálp. Ánægjulegt þrítugsafmælið í faðmi fjölskyldunnar á báti við Filippseyjar í lok desember síðasta árs gaf mér nægar ástæður til að ætla að enn á ný sæti ég sátt við skriftir jólabréfsins í ár.
Nú var ég flugfreyja í ein 3 ár hjá Flugfélagi Íslands en aldrei hef ég þó fleiri flugmílur lagt að baki en á árinu 2007. Hjá FinanceAsia sé ég um okkar viðskiptavini í Kóeru, Indónesíu og Singapore svo líklega yrði það löng og leiðinleg lesning ef ég listaði allar utanlandsferðirnar í ár eins og ég hef áður gert. Ég læt það því ógert en skjalfest skal það að ég eyddi tæpum þriðjungi ársins að heiman. Hafi ég ekki verið það áður, er ég nú orðin sérfræðingur í að pakka niður og taka upp úr töskum. Foreldrar og aðrir nákomnir hafa löngu misst sjónar af ferðalögum okkar systkinanna og er það gjarnan fyrsta spurning hvers símtals „Hvar í veröldinni ertu núna stödd?“
Vinnan gengur vel og ég er ánægð með mitt starfsval. Ég ræð mínum tíma mikið sjálf og er send til Íslands reglulega á vegum vinnunnar. Þótt stoppin séu oftast stutt er með einbeittum vilja og skipulagningu hægt að koma fyrir innliti til flestra sem sakna mín sárast. Ég lét mig að sjálfsögðu ekki vanta í 10 ára stúdentsafmælið menntskælinga en það vissi ég eitt fyrir 10 árum að í MA yrði ég stödd 16.júní 2007. Oft var á það minnst við þessa endurfundi að stúlkurnar þættu þroskaðari og öllu myndugri ef eitthvað var, en karlpeningurinn var í anda eins, í útliti aðeins farinn að láta á sjá. Og endalaust gaman var það.
Af öðru sem ég hafði fyrir stafni á árinu: Ég fór í augnaðgerð sem leiðrétti sjónskekkju upp á -7.5 svo fullkomlega að ég er næstum skyggn. Þá fór ég í keppnisferðalag til Guangzhou í Kína og spilaði rúgbý í gríðarlegri rigningu og eldingum. Urðum blautar og aðeins skítugar. Ég lærði söng í tvo mánuði, tók einn kennslutíma í tennis og varð slarkfær á bæði brim-og sjóbretti en ég sótti námskeið í báðum greinum. Við Justin keyptum okkar fyrstu íbúð saman í hjarta bæjarins og erum í augnablikinu upptekin við að flytja inn og koma okkur almennilega fyrir. Ég stóð við stóru orðin úr síðasta jólabréfi og komst í landsliðið í rúgbý, lærði kínverska þjóðsönginn (að hluta til) og skoraði tvö mörk fyrir Hong Kong. Ég keppti í strandablaki og lærði undirstöðuatriðin í krikket. Það var lítið legið í leti á árinu.
Petra systir flutti til Kína á árinu og stundar kennslu í alþjóðlegum skóla, hálf-íslenskum. Við erum því öll systkinin komin austur og bara eftir að sannfæra þau gömlu. Þau eru sem betur fer enn spræk til langferða og kíkja á okkur allavega einu sinni á ári, stundum oftar. Aðrir gestir eiga hér leið um reglulega og flestir hafa vit á að taka með sér ost. Íslenska samfélagið í Hong Kong hefur stækkað töluvert en Landsbankinn hefur nú opnað skrifstofur sínar hér og hélt stórglæsilega veislu til að marka þennan áfanga. Það hrærði sálartetrið að sötra íslenskt brennivín undir „Þorparanum“ uppi á þaki með háhýsi Hong Kong borgar í bakgrunni – íslenskum myndum úr landbúnaði og fiskvinnslu skjávarpað á vegginn.
Ekkert yljar mér þó meira en orð að heiman, heimsóknir og stuttar ferðir á klakann. Ég vona að árið 2009 verði ykkur öllum gæfuríkt og gleðilegt frá áramótum til áramóta – ég hlakka til að hitta ykkur öll sem fyrst. Ég eyði þessum jólum á Nýja Sjálandi en hugsa heim til andfætlinganna og ykkar hinna sem dreifð eru um heiminn.
Jólaknús og kreistur,
Bekka
Árið 2007 lærði ég að telja á maori
Árið 2007 var Greys Anatomy og Prison Break bestu þættirnir í sjónvarpinu
Árið 2007 hlustaði ég mest á Mika og lærði að meta Red Hot Chilipeppers
Árið 2007 var ég aðallega á háum hælum, í dragt og með vaselín á vörunum
Árið 2007 var hárið ljóst, niður að herðum, oftast bundið aftur í stert
Árið 2007 flutti ég aðeins einu sinni en átti þó þrjá samastaði
Árið 2007 fór ég til Bali í fyrsta skipti og var rænd
Árið 2007 var sushi uppáhaldsmaturinn minn
Árið 2007 fór ég þrisvar til Íslands!
Árið 2007 færðist ást mín af baby blue yfir á túrkis bláan
Árið 2007 hljóp ég 24 kílómetra yfir fjöll og hæðir, vatnslítil í 32ja stiga hita og sól
Árið 2007 spilaði ég minn fyrsta landsleik sem íþróttafréttadeild Sjónvarpsins lét afskiptalausan
Árið 2007 fór ég á 2,5 mánaða söngnámskeið en hef enn ekki komið opinberlega fram
Árið 2007 flutti Strúlla til Hong Kong
Árið 2007 drakk ég íslenskt brennivín í fyrsta skipti
Árið 2007 ákvað ég nöfn og fæðingarár ógetinna barna minna
Árið 2007 var ég skipulagðari en nokkru sinni fyrr
Árið 2007 einkenndist af to-do listum og outlook calendar
Árið 2007 fékk ég svæsið ofnæmi fyrir köttum og hef ég þó átt ketti með hléum síðustu 17 árin
Árið 2007 fékk ég fjölda atvinnutilboða
Árið 2007 eyði ég jólunum í Nýja Sjálandi
Árið 2007 eyði ég áramótunum í Sydney
Árið 2007 fékk ég enga steinasteik hjá Erlu og Agli
Árið 2007 fékk ég tvö glóðaraugu
Árið 2007 varð ég fyrir aðkasti vegna kynþáttafordóma
Árið 2007 fannst mér ég ungust ever
Árið 2007 fór ég til 6 landa á 7 dögum
Árið 2007 stóðst ég hérlent ökupróf og hætti því að brjóta umferðareglurnar
Árið 2007 var ég stoppuð af lögreglunni fyrir „dangerous driving“ þegar ég einokaði vinstri akgreinina
Árið 2007 fór ég í go-kart í fyrsta skipti
Árið 2007 eyddi ég páskunum í bikini á múslímskri sólarströnd (þar sem konur eru annars hafðar í kuflum)
Árið 2007 uppgötvaði ég Google Earth og festist yfir því
Árið 2007 lærði ég undirstöðuatriðin í myndbandagerð og klippingu
Árið 2007 stofnaði ég gönguhóp „Hike – I like“ sem dó í fæðingu
Árið 2007 var besta myndin Borat með Sasha Cohen
Árið 2007 hætti ég að sofa á maganum
Árið 2007 var dreginn úr mér síðasti endajaxlinn
Árið 2007 var gott ár.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli