miðvikudagur, janúar 30, 2008

Austurland að Glettingi....

Hér sé kalt. Voðalega kalt! Ég er frosin inn að beini en lungun svo yfirfull af yndislegu fersku loftinu að frostið skiptir næstum ekki máli. En bara næstum. Hér er því miður enginn snjór. Úrkomu var reyndar spáð í dag og ég var eins og unglamb á jólum þegar ég spíttist að glugganum í morgun til að sjá snjókomuna en vonsvikin skreið ég aftur undir sæng og langaði ekkert lengur á neinn af þeim fimm fundum sem ég átti í dag.

Ég er í sárri þörf fyrir nýjar dragtir og viðskiptaföt en stílistinn var kallaður til Kína í bátamálningar í staðinn fyrir skipulagða systrastund í búðum. Ég er þess vegna eins og slitinn sláturkeppur í gömlum fötum sem eitt sinn hnepptust að og renndust upp án rembings en í dag er lífið ekki svo ljúft. Ég færist fjær áramótaheitinu um Lundarvigtina en þetta hlýtur allt að renna af eins og smjör í maraþonhlaupinu eftir 3 vikur. Við ætlum reyndar bara 10 kílómetra en Strúlla skráði okkur í spretthlaupshópinn bölvuð svo eitthvað hlýtur að gefa eftir, fitan eða þolið.

Ég hendist milli Kóreu og Kína.....

Engin ummæli:

Skrifa ummæli