fimmtudagur, febrúar 28, 2008

Íbúðin


Hér er nokkrar myndir af íbúðinni fyrir Huldu litlu sem er á Íslandi og er gráðug að vita hvernig til tókst án hennar í ráðgjafahlutverki. Ég fer um helgina með litlu systur og læt búa til nýtt áklæði á sófann, rústrauðan langar mig helst í svo allar ábendingar eru vel þegnar ef það telst ekki til góðrar hugmyndar!

Dökkbrúni veggurinn hans Juddys litla kom svona feikivel út og ég er bara ánægð. Þegar húsgögnin öll eru komin á sinn stað, verður þetta bara alveg agalega huggulegt held ég.

miðvikudagur, febrúar 27, 2008

Kaupa kaupa - eyða eyða

Ég lifi hátt þessa dagana og hef eytt gríðarlegum fjármunum undanfarið. Ekki var ég þó að bruðla um efni fram eða í óþarfa, heldur voru versluð húsgögn í nýja slotið, vetrarkápa til að klæða af sér vetrarhörkurnar, nýjar dragtir a la deildarstjóri, sólarstrandaferð til að bronza kroppinn, afmælisgjafir fyrir nánustu og svona mætti lengi telja. Ein 250þúsund voru straujuð fyrir vini og vandamenn og nú er ég vonandi komin í VIP hópinn hjá Visa.

Við Juddy hönnuðum saman húsgögnin okkar og ég fór til Macau að panta. Eftir heimsóknir til húsgagnasmiða í bænum tók ég stefnuna á O Porto sem er uppáhalds veitingastaðurinn minn í Macau og pantaði mér þann mat sem ég alltaf panta, vanaföst að venju. Verð að viðurkenna að ég varð bara draugfull af rósavínsflösku sem ég keypti með matnum og drakk alein mér til heiðurs fyrir vel unnið dagsverk. Ég svaf þessvegna eins og steinn alla leiðina heim í ferjunni sem var eins gott því maðurinn við hliðina á mér var agalega ljótur.

Annars sér fyrir endann á þessum endalausa vetri. Sól og allt að 19 gráður í dag, spáir hlýnandi. Vetrarkápan var nýtt 7x.

Í lokin frétt af Mbl.is

Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga fjórtán ára stúlku sem var að gæta tveggja sona hans í maí á síðasta ári. Var hann einnig dæmdur til að greiða stúlkunni 750 þúsund krónur í miskabætur og rúma eina milljón í sakarkostnað.

Hann s.s. borgaði meira í sakarkostnað en í bætur til fórnarlambsins.

fimmtudagur, febrúar 21, 2008

Margrómuð syndug


Er með syndróm - Thoracic outlet syndrome. Öðru nafni músarveiki sem er írónískt heilkenni að hafa á ári rottunnar. Ég las mér til að ein lækningin felst í að sprauta botox í mig svo ef ekkert skánar á næstu vikum er víst að ég fari í svoleiðis læknisleik og læt þá bæta aðeins í nipplur og varir.

Af góðum fréttum er það helst að ég fékk tvo auka daga í frí á árinu fyrir að halda tryggð við vinnuveitendur mína í meira en ár. Í hverfulleik nútímans telst ár til langtímaskuldbindingar.


Annars er ég svo glöð alla daga núna að ég ætti fyrst og fremst að greinast með up syndróm. Þennan brandara fatta víst fæstir - nema Petra því hún fékk forskot á fattið.




mánudagur, febrúar 18, 2008

Kvabb úr kuldanum

3ja vika í kulda. Spáir hlýnandi 14-19 gráðum.

Ég er enn á lífi því ég þiðnaði aðeins í Singapore í síðustu viku. Ó sú sæla að liggja í flennistóru baðinu á Ritz Carlton, borða mat frá herbergisþjónustunni og raka lappirnar án þess að flaka gæsahúðina sem á mér er föst alla daga í Hong Kong. Ég var öll svo mjúk að ekkert vantaði nema elskhugann til að dást að mér.

Ferðin gekk vel og ég daðraði alla upp úr skónum. Segir mér nú svo hugur að AsianInvestor verði voðalega vel lukkað blað með einstaklega vel seldum greinum og auglýsingum um árið allt. Ég verð gríðarlega eftirsótt og vel mér atvinnu að tveimur árum liðnum eins og fiskimaður með nót á eftir síldartorfu. (fann enga betri lýsingu, hugsaði töluvert lengi)

Íbúðin er nú í uppgerslu eða kannski að niðurrif sé betra orð þar sem enn er bara búið að brjóta niður veggi? Gólfið farið af hálfu alrýminu og fyrsta eftirsjáin komin á sinn stað. Allt partur af programmet. Hjónaleysin eru sem betur fer með svipaðan smekk á húsgögnum og nýtingu rýmisins sem er af skornum skammti og leyfir ekki ósamræmanleg sjónarmið. Hann vill þó langborð a la víkingastíl sem skemmtilegt nokk er eins og márasamfélagið hélt matarveislur. Ég gaf mig með þetta en setti lengdarhámark á borðið, 1.2m. Áhugavert rannsóknarefni hvenær menn fóru að saga í sundur bekkina sem víkingar/márar/ábyggilegafulltaföðrum sátu við og búa til stóla ætlaða fyrir aðeins einn. 1. 1 í einu. En i ene.

Næst á dagskrá er að eyða mánaðarlaununum í húsgögn sem verða sérpöntuð frá Macau og afhent heim að dyrum. Mahogony og appesínugult verða aðallitirnir og meira að segja myndlistin á veggjum endurspeglar það. Mikið verð ég fegin þegar húsið mitt verður að heimili. Það kemur allt með bókunum.

Ég er frekar sanslaus í dag. Hnykklæknir hristi hálsinn á mér í lag í dag - kannski hún hnykki höfuðstykkinu í réttan gang á morgun. Það er þó ólíklegt því ég á ekki næsta tíma fyrr en á föstudag.

þriðjudagur, febrúar 05, 2008

Who's the boss?

Í dag fékk ég fyrsta tölvupóstinn frá yfirmönnum mínum stílaðan á 'department heads'. Ég er orðin deildarstjóri!! hahaha!! Ég ræð!!! Ég er að sjálfsögðu í skýjunum yfir þessu.

Mér var það í sjálfsvald sett hvort ég leysi undirmenn mína frá störfum klukkan 1 á morgun fyrst það er "gamlárskvöld" hér í Kína/Hong Kong. Ég hef í augnablikinu aðeins einn mann í vinnu en ég fæ að ráða hvenær hann fer heim að borða. Hvílík völd!!!

Ég er alsæl (eins og sést á öllum upphrópunarmerkjunum)

mánudagur, febrúar 04, 2008

Komin heim í kuldann

Það er kalt í Kína og nágrenni, kaldasti vetur í 50 ár og um milljón manna fastir í Guangzhou einni saman, rétt hinum megin við landamærin. Slík er mannþröngin að fólk sem veikist, óléttar og aðrir komast ekki í gegnum mannhafið svo á það ráð var tekið að lyfta slösuðum/veikum upp yfir alla og fólk þannig handlangað mann frá manni að sjúkraliðum. Ekki myndi ég vilja vera þar þótt það hafi alltaf heillað mig að bodysurfa á Ýdalaböllunum forðum....

Í Hong Kong er voðalega kalt líka og í 8 gráðum, með einfalt gler í gluggum og engan ofn er ekkert annað að gera en að liggja í baði og inn á milli kúra undir sæng. Það er því lán í óláni að drengurinn liggur flatur með brjósklos og hreyfist ekki án þess að stynja og gretta sig. Hann hefur nú séð 6 sérfræðinga, étur 5 mismunandi lyf sem nú hafa gefið honum magasár og á heilli viku hefur ekkert skánað. Það er voðalegt að horfa á hann svona kvalinn og lítið sem ég get gert en ég elda og nudda og stuða hann með raftæki og allt annað sem vonandi hjálpar á einn eða annan hátt.

Flugið heim frá Kóreu var hefðbundið. Fólk andaði að sér matnum í hávaðasömum hryglum, karlarnir voru of stuttir til að loka farangursgeymslunum svo freyjurnar urðu að hjálpa þeim, economy var yfirfull en enga fékk ég uppfærsluna...phew.

Þessi vinnuvika er stutt, þrír dagar í nýjársfögnuðinn en ár svínsins er að renna sitt skeið og rottan tekur við völdum á fimmtudaginn. Ég hef ekki enn lesið mér til hvað það mun boða í efnahagslífi og á öðrum vettvangi en vonandi fæðast ekki allir heimskir á rottuári eins og á ári apans....eða var það hundsins? Æi,þetta er allt jafn vitlaust.

Það er greinilegt að kuldinn lamar í mér húmorinn eins og önnur mikilvæg líffæri. Ég tek mér stutta pásu þar til líkamhiti nær 37 gráðum á ný.