mánudagur, febrúar 18, 2008

Kvabb úr kuldanum

3ja vika í kulda. Spáir hlýnandi 14-19 gráðum.

Ég er enn á lífi því ég þiðnaði aðeins í Singapore í síðustu viku. Ó sú sæla að liggja í flennistóru baðinu á Ritz Carlton, borða mat frá herbergisþjónustunni og raka lappirnar án þess að flaka gæsahúðina sem á mér er föst alla daga í Hong Kong. Ég var öll svo mjúk að ekkert vantaði nema elskhugann til að dást að mér.

Ferðin gekk vel og ég daðraði alla upp úr skónum. Segir mér nú svo hugur að AsianInvestor verði voðalega vel lukkað blað með einstaklega vel seldum greinum og auglýsingum um árið allt. Ég verð gríðarlega eftirsótt og vel mér atvinnu að tveimur árum liðnum eins og fiskimaður með nót á eftir síldartorfu. (fann enga betri lýsingu, hugsaði töluvert lengi)

Íbúðin er nú í uppgerslu eða kannski að niðurrif sé betra orð þar sem enn er bara búið að brjóta niður veggi? Gólfið farið af hálfu alrýminu og fyrsta eftirsjáin komin á sinn stað. Allt partur af programmet. Hjónaleysin eru sem betur fer með svipaðan smekk á húsgögnum og nýtingu rýmisins sem er af skornum skammti og leyfir ekki ósamræmanleg sjónarmið. Hann vill þó langborð a la víkingastíl sem skemmtilegt nokk er eins og márasamfélagið hélt matarveislur. Ég gaf mig með þetta en setti lengdarhámark á borðið, 1.2m. Áhugavert rannsóknarefni hvenær menn fóru að saga í sundur bekkina sem víkingar/márar/ábyggilegafulltaföðrum sátu við og búa til stóla ætlaða fyrir aðeins einn. 1. 1 í einu. En i ene.

Næst á dagskrá er að eyða mánaðarlaununum í húsgögn sem verða sérpöntuð frá Macau og afhent heim að dyrum. Mahogony og appesínugult verða aðallitirnir og meira að segja myndlistin á veggjum endurspeglar það. Mikið verð ég fegin þegar húsið mitt verður að heimili. Það kemur allt með bókunum.

Ég er frekar sanslaus í dag. Hnykklæknir hristi hálsinn á mér í lag í dag - kannski hún hnykki höfuðstykkinu í réttan gang á morgun. Það er þó ólíklegt því ég á ekki næsta tíma fyrr en á föstudag.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli