Jájá, ég skal svo sem viðurkenna að ég er enginn tækniséní og ekkert svakalega er langt síðan ég byrjaði að leika mér á Google Earth og You tube. Áður skoðaði ég bara myndbrot sem mér voru send og svoleiðis en nú er ég sem sagt búin að fatta hvernig ég get hlustað á tónlist á jútjúb án þess að nota eitthvað limewire og torment og allskonar svona sem ég veit ekki. Þar sem ég man aldrei hver syngur hvað og hvað lögin heita er það lítilsvert fyrir mig að kunna á einhver svona niðurhals forrit. En í dag henti ég inn einhverju lagi og svo var þetta fína jútjúb forrit svo duglegt að stinga upp á fleiri lögum í sama dúr sem ábyggilega væru eftir mínu höfði og *búmm* ! ég var húkkt.
Ekki leið á löngu þar til ég var komin í að skoða allskonar eldgamalt efni og nú er þetta komið í favorites : http://www.youtube.com/watch?v=r2QZW1mexhQ
Jólin eru því komin í bæði hjartahólfin mín og allt er í uppáhaldi sem er með mörgum söngvurum (syngjendum? hmm...)
Annað sem ég hef hlustað á nokkrum sinnum í dag (já, ég er ein af þeim sem hlusta aftur og aftur á sama lagið, og aftur, repeat er vinur minn), er 'Hjálpum þeim' og 'We are the world' http://www.youtube.com/watch?v=jzw6GiqZyD0&feature=related
og Do they know it is Christmas http://www.youtube.com/watch?v=8jEnTSQStGE&feature=fvw
Ég sé á facebook sem er mín helsta tenging við tíðarandann á Íslandi að ég er ekki ein um jólaskapið, margir farnir að versla gjafir. Talandi um tíðarandann, ég var semsagt eftir mikla leit að komast að því hvað þetta 'essasú´ er sem reið íslenskum facebook röftum lengi. Það voru mikil vonbrigði að þetta var bara vodafonefroskur. Ég sem hélt kannski að þetta væri næsti smellurinn Dorritar.
þriðjudagur, október 27, 2009
mánudagur, október 12, 2009
Skemmtilegur leikur
Var að skoða gamlar færslur og fann skemmtilegan leik sem ég setti inn fyrir 4 árum. Hef breytt honum örlítið.
Kvittaðu með nafni hér að neðan (í comments) og ég :
1. segi þér hvað ég dái mest í fari þínu
2. segi þér hver er uppáhalds minningin mín um þig
3. segi þér hvað við höfum þekkst lengi
4. segi þér hvaða 3 lýsingaorð mér detta fyrst í hug þegar ég heyri nafnið þitt
5. spyr þig að einhverju sem mig langar að vita um þig
6. skora á þig að senda mér það sama um mig

Veðurfréttir
Hér er farið að hausta. Í síðustu viku datt hitastigið niður og rakinn er bærilegri. Þetta er besti tíminn í Hong Kong, Kína er í viku fríi fyrstu vikuna í október og mengunin er á meðan í minnsta lagi. Wunderbar.
Enn eru einhverjir fellibylir á ferðinni og ekki allir jafn ákveðnir í hvert þeir eru að fara ! Steini mágur myndi segja að þessi væri eins og stefnulaus rolla í móum - vesalings Flipparnir í Filippseyjum fengu þennan í hausinn tvisvar og var nú nóg um dauðsföll, flóð og aðrar hörmungar eftir að hann fór yfir nyrsta partinn í fyrsta skiptið! Svarta línan sýnir semsagt hvert hann er búinn að fara.

Þótt fellibylirnir fari ekki allir yfir Hong Kong þá fáum við skítaveður þegar þeir eru í nágrenninu, rigningu og vind en ekkert í líkingu við veðrahaminn á Íslandi ef DO og félagar á mbl.is segja satt frá.
22-27 gráður og sól framundan en ég keypti mér 2 þykkar peysur til öryggis í gær. Ég verð líklega alltaf kuldaskræfa.
mánudagur, október 05, 2009
Klettaklifur
Ég fór í klettaklifur um helgina, fyrsta sinn. Sænsk samstarfskona mín dróg mig með í þetta sport
sem hún sagði myndi lækna mig af allri lofthræðslu. Ekki vil ég nú meina að ég sé læknuð en fæturnir skulfu töluvert minna í seinni ferðinni minni en þeirri fyrri og ég komst alla leið upp á topp í tilraun númer tvö. Nokkuð stolt af því. Þetta var klifurveggur en stundum bókar þessi hópur í klifur úti á alvöru klettum svo kannski kemst ég í svona alvöru fljótlega. Litla hjartað mitt var alveg að springa og adrenalínið fyllti allar æðar en mér fannst ógurlega gaman þegar þetat var yfirstaðið og get vel hugsað mér að fara aftur.
Hér eru nokkrar myndir.
Ég að komast á toppinn

föstudagur, október 02, 2009
Kickbox
Ég er ekki ALVEG hætt í rúgbýinu enn. Ég er hinsvegar komin á snúning í kickbox með Huldu systur og vinkonu hennar sem eru búnar að vera í þessu ati í einhver ár. Í dag fengum við í fyrsta skipti að slást almennilega og Hulda náði að boxa túlann á mér 4x! Þetta var nú bara smá pot því við máttum ekkert almennilega lemja hvora aðra en ég þarf greinilega að læra að verja mig aðeins betur. Á morgun fer ég í rockclimbing í fyrsta skipti, eldsnemma á laugardagsmorgni. Góð helgi framundan, kvöldmatur með bróður, vídeókvöld með systur, klettaklifur með samstarfskonu, rúgbý með stelpunum mínum, afmæli vinkonu, sunnudagsknús á sófa eða sigling með systur. Ég sakna Petru óskaplega.
fimmtudagur, október 01, 2009
Nú enda ég bloggæði dagsins í dag á íslenskukeppni okkar systra en ég notaði orðið 'snemmendis' sem ég er ekki alveg viss um að sé forníslenskt en Hulda toppaði mig enn á ný þegar hún sagði í óundirbúinni ræðu að hún hefði 'sólundað' einhverju.
Ég skora á fólk að leggja til einhver orð sem ykkur finnast vera sérlega íslensk.

Krækiberjaæði!
Júhúúúú!!!! ég fékk sendingu frá Íslandi og í henni voru heilu þúfurnar af krækiberjum !!! Ó ó hvað ég á góða að, Óli minn Óla skrapp vestur á firði og sat við tínslu bara fyrir mig sem ekki vill bláber. Hann lét sig ekki muna um að fylla heilan kassa af svörtum og safaríkum berjum og senda mér alla leið til Hong Kong ! Hann er bara yyyyndi!
Ég vil auðvitað ekki gera upp á milli eða taka nokkuð af Elfu og Agli sem fylltu eldhúsið af súpum, lakkrís, pulsum, bjúgum og fleiru, já eða nokkru öðru sem mér hefur verið sent í gegnum árin hingað út, en krækiber hef ég ekki borðað síðan 2002 svo þetta var alveg himnasending. Og Óli er í Texas svo ég gat ekki einu sinni hringt til að þakka fyrir mig svo ég geri það hér með og vona að kallinn lesi einstaka sinnum bloggið mitt. Mikið óskaplega er ég þakklát fyrir alla mína velunnara, þið eruð bezt !

Lúxuzvandamál
Við erum með hjálpara sem er filipínskur þrifatæknir. Við höldum að hún heiti Malou en hún sagði okkur alveg fyrst að það væri ekki réttur framburður á nafninu hennar. Við höfum samt haldið okkur við það og hún kemur þegar kallað er á hana svo líklega skiptir það ekki höfuðmáli.
Malou kemur og fer eins og henni sýnist, gerir yfirleitt allt sem ég set henni fyrir. Hún hefur þó lítinn sans fyrir því hver á hvaða föt á heimilinu og Juddy er nú kominn með nóg af því að finna mínar brækur í sínum skúffum og að finna ekki eigin skyrtur í staðinn. Það tók svo steininn úr um daginn þegar við komum heim á þriðjudegi (hún eldar á þriðjudögum) og í pottunum var kjúklíngskássa sem innihélt bæði höfuð og klær. Það þótti okkur ekki mannamatur en ekki veit ég hvað hún myndi segja ef ég syði svo svið eftir að henda kássunni hennar.
Nú viljum við senda hana í þjálfun til Huldu í von um að hún verði hálfdrættingur á við Puspu ofurhjálpara sem veit hvað maður vill áður en maður veit það sjálfur. Persónulega finnst mér að fólk sem flyst landa á milli til að þvo þvott og þrífa fyrir aðra ættu að vita að fólk vill helst vera í samstæðum sokkum en Malou litla setur bara einhverja sokka saman. Þeir eru jú flestir svartir en stærð og munstur á ekkert endilega alltaf saman. Það geta ekki allir hjálparar verið eins og Pushpa sem vonandi verður með fjölskyldunni endalaust. Hún meira að segja raðar fötum í litaröð.

Heppin !
Til að halda fjölskyldufriðinn skal ég svo sem blogga, Hulda að vinna mig núna en hún á börn til að skrifa um - mitt líf snýst mest um vinnuna og að halda karlinum góðum. Hver nennir svo sem að heyra um það endalaust.
Ég hef verið sérlega heppin þessa vikuna. Ég keyrði af stað í heimsókn til Huldu en villtst af leið þegar lögreglan setti upp vegatálma svo 100,000 manns gætu þrammað eftir hraðbrautinni í friði fyrir bílum. Einhvern veginn endaði ég þess vegna í Kowloon sem er voðalegur staður að vera á í bíl, þ.e.a.s. ef maður er sjálfur að keyra. Rötun 1.0 var mér ekki gefið í vöggugjöf svo ég sá fram á að eyða ævinni í einstefnugötum þéttbýlasta stað jarðarinnar. Ekki grín. Hvað gera bændur og Danir þá? Nú, þeir brjóta lög. Hægri vinstri, ville vek; yfir samsíða línur, yfir gatnamót þar sem ég má bara fara til hægri, u-beygjur og hvaðeina. Rétt eins og þegar maður gengur inn í casínó með einbeittan spreðvilja, gerði ég mér fulla grein fyrir að húsið vinnur alltaf þegar upp er staðið. Í þessu tilviki var Húsið sem sagt Löggan. Þótt að sunnudagsrúnturinn í Kowloon hafi kostað mig sjöþúsundogtvöhundruð íslenskar spírur gat ég ekki annað en fagnað sigri því hefði ég þurft að borga sekt fyrir öll mín brot þessar 90 mínútur, hefði veskið mitt verið 36,000 krónum léttara! Ég lít því svo á að ég hafi grætt 28,800 krónur sem er ekki svo slæmt tímakaup fyrir að rúnta. Ekki var það þó svo gott að ég væri á Ford ´57 Gunnsa mín.
Heppnin hitti mig svo aftur í hausinn í fyrradag. Þá fór ég í bankann til að taka út pénínga en Viggó Viðutan var með í för svo ég gleymdi að taka með mér penínginn þegar ég fór. Duh! Þetta fattaði ég ekki fyrr en löngu síðar þegar mig vantaði penínginn sem var þó ekki svo mikill að ég tapaði gleðinni yfir að týna honum. Nema hvað að ég fer í einkabankann á netinu og þar sitja þúsundkallarnir allir eins og enginn hefði nokkurn tímann tekið þá út - 'debited as advised' ! Viggó hlýtur að fara svona oft í bankann því nú eru þeir búnir að stilla vélarnar þannig að takir þú ekki seðlana undireins, étur tækið þá aftur og leggur þá samviskusamlega aftur inn á reikninginn þinn.
Þar sem ég var búin að ná sáttum við sjálfa mig og Viggó fyrir að týna þessum aur, fannst mér enn á ný að ég hefði grætt annan 6,400 kall í viðbót þegar ég fann peningana inn á bók ! !
Ég er svo heppin þessa vikuna að ég held ég hljóti að vinna í lottóinu á laugardaginn, miðalaus!