Til að halda fjölskyldufriðinn skal ég svo sem blogga, Hulda að vinna mig núna en hún á börn til að skrifa um - mitt líf snýst mest um vinnuna og að halda karlinum góðum. Hver nennir svo sem að heyra um það endalaust.
Ég hef verið sérlega heppin þessa vikuna. Ég keyrði af stað í heimsókn til Huldu en villtst af leið þegar lögreglan setti upp vegatálma svo 100,000 manns gætu þrammað eftir hraðbrautinni í friði fyrir bílum. Einhvern veginn endaði ég þess vegna í Kowloon sem er voðalegur staður að vera á í bíl, þ.e.a.s. ef maður er sjálfur að keyra. Rötun 1.0 var mér ekki gefið í vöggugjöf svo ég sá fram á að eyða ævinni í einstefnugötum þéttbýlasta stað jarðarinnar. Ekki grín. Hvað gera bændur og Danir þá? Nú, þeir brjóta lög. Hægri vinstri, ville vek; yfir samsíða línur, yfir gatnamót þar sem ég má bara fara til hægri, u-beygjur og hvaðeina. Rétt eins og þegar maður gengur inn í casínó með einbeittan spreðvilja, gerði ég mér fulla grein fyrir að húsið vinnur alltaf þegar upp er staðið. Í þessu tilviki var Húsið sem sagt Löggan. Þótt að sunnudagsrúnturinn í Kowloon hafi kostað mig sjöþúsundogtvöhundruð íslenskar spírur gat ég ekki annað en fagnað sigri því hefði ég þurft að borga sekt fyrir öll mín brot þessar 90 mínútur, hefði veskið mitt verið 36,000 krónum léttara! Ég lít því svo á að ég hafi grætt 28,800 krónur sem er ekki svo slæmt tímakaup fyrir að rúnta. Ekki var það þó svo gott að ég væri á Ford ´57 Gunnsa mín.
Heppnin hitti mig svo aftur í hausinn í fyrradag. Þá fór ég í bankann til að taka út pénínga en Viggó Viðutan var með í för svo ég gleymdi að taka með mér penínginn þegar ég fór. Duh! Þetta fattaði ég ekki fyrr en löngu síðar þegar mig vantaði penínginn sem var þó ekki svo mikill að ég tapaði gleðinni yfir að týna honum. Nema hvað að ég fer í einkabankann á netinu og þar sitja þúsundkallarnir allir eins og enginn hefði nokkurn tímann tekið þá út - 'debited as advised' ! Viggó hlýtur að fara svona oft í bankann því nú eru þeir búnir að stilla vélarnar þannig að takir þú ekki seðlana undireins, étur tækið þá aftur og leggur þá samviskusamlega aftur inn á reikninginn þinn.
Þar sem ég var búin að ná sáttum við sjálfa mig og Viggó fyrir að týna þessum aur, fannst mér enn á ný að ég hefði grætt annan 6,400 kall í viðbót þegar ég fann peningana inn á bók ! !
Ég er svo heppin þessa vikuna að ég held ég hljóti að vinna í lottóinu á laugardaginn, miðalaus!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli