Nóg að frétta eins og alltaf - ekki alltaf tími til að deila því með öllum. Fór til Kóreu, kom heim frá Kóreu. Alltaf gott að komast á Outback í öðrum löndum en HKG. Fór til Singapore, keypti enga skó, græddi fullt af peníngum og kom heim frá Singapore.
Helgarnar undanfarið hafa verið einstaklega góðar, sambland af afslöppun og gestagangi í góðu veðri. Freyjan varð 11 ára og ég fékk að halda afmælispartýið hennar heima hjá mér. Húsbóndinn á heimilinu hvarf skyndilega þegar ég var í innkaupaferð um morguninn en að öðru leyti gekk allt stórvel. Freyja fékk margar fínar gjafir, allir fengu pylsur og sundferð, nammi var slegið úr pappaskó og Saga var aðalskemmtiatriðið.
Á laugardagskvöldið var minningarathöfn um Joel sem var svo átakanleg að sterkustu karlmenn urðu einstaka tári að bráð. Sjálf skældi ég út allan kjólinn minn en það var allt í lagi, það voru um 500 aðrir jafn útgrátnir og ég. Gott kvöld í minningu um góðan mann en nú er vonandi nóg komið í bili.
Í gær streymdi heim til okkar fólk, allir áttu það sameiginlegt að hafa verið boðið í BBQ kvöldið áður. Óminnishegrinn er svona gestrisinn víst. Það var því ekki neitt annað að gera en að fíra upp í grillinu, hlaupa niður til slátrarans á horninu og kaupa pylsur. Hér er ekkert marínerað Fjallalamb í boði. Juddy svitnaði úti á svölum meiripart dagsins en ég hleypti honum nú niður í laug yfir miðdaginn til að safna kröftum fyrir seinna hollið. Sjálf setti ég met í að synda án þess að anda. Við sátum svo við spil frameftir kvöldi við hávær hlátrasköll og mikið fjör - ég verð að muna næst þegar ég hitti Kristveigu að kenna henni nokkur ný trix í Idiot.
Framundan eru fleiri gestir, afmæli spúsans og elstu, Evrópuferð og vonandi skottúr á klakann.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli