mánudagur, janúar 26, 2015

Haymarket

Hér er ég búin að vinna í rúmlega 8 ár.  Framan af var ég orkurík og uppfull af hugmyndum sem ég hafði bæði drifkraft og áhuga á að fylgja eftir.  Ég vann til verðlauna fyrir sölustörf og stöðuhækkanir voru í samræmi við væntingar.  Launin eru yfirdrifin fyrir fólk eins og mig og frídagar fleiri en fólk í Hong Kong á að venjast.

En nú er ég útbrunnin.  Næstum hvern einasta dag hugsa ég um að hætta.  Ákveðið óþol hefur myndast gagnvart einstaka samstarfsmanni og ég er orðin sú í vinnu sem ég hef minnstu virðinguna fyrir.  Bubbi Byggir dóði.

......

6 mánuðum síðar,


......

Nú hef ég sagt upp.  Ég ætla að fara í frí, fara í sauðburð, fara til Íslands.  Síðasti dagurinn verður í mars einhvern tímann og ég byrja á að fara með Petru litlu í brjóstagjafafrífrí.  Síðan verður framtíðin að ráðast svolítið af sjálfu sér.

Aaaaahhhhh.  Það er gott að anda frá sér.