Ef það er ekki uppgangur í Gleði Dal þessa dagana þá veit ég ekki hvað. Klukkan 16.21 í gær fór allt að smella og gleðitíðindunum skolaði á land í massavís. Flest var vinnutengt sem kannski vekur ekki áhuga ykkar en nægði til að halda mér hressri frameftir öllu. Ekki var svo verra að fá inngöngu í landsliðið í rúgbý en ég er hér með orðin bonafied atvinnumaður í íþróttum. Og það á kvennafrídaginn!
Þarna sannar sig helst að sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær.
Á meðan aðrar kellíngar þrömmuðu í kröfugöngu fékk ég þessa fínu aukavinnu og ekki víst að öllum þyki hún sérstaklega kvenleg. Ég fæ nú borgað fyrir að mæta á æfingar (eins gott, þær eru á sunnudagsmorgnum!) og er send á mót um víða veröld á ekki ómerkilegri staði en Tæland (9-12nóvember), Kunmin - China í desember og Kaszakstan er í spilunum en óstaðfest eins og er. Ég verð þó að standa mig áfram því eftir hvert mót er valið endurskoðað og ég því langt í frá komin með brottfararspjaldið til Fjarkinistan í febrúar.
Neyðist ég nú líklega til að segja upp þeirri vinnu sem ég hef minnstu yfirráðin yfir og fara þar fín laun forgörðum en ég vonandi bæti það upp með einhverju uppbyggilegra. Verst ég fæ ekki borgað pr meter hlaupinn í rúgbýinu...!
Að lokum, einn bráðfyndinn sem er alveg til að rifta þindinni í hverjum þeim sem hefur búið í Asíu. Vona að þið hin náið húmornum.....
Tælendingur, Íslendingur og amerikani voru fastir á eyðieyju og einn daginn fengu þeir nóg og amerikaninn sagði: I'm gonna build a shelter og síðan við íslendinginn sagði hann: You go get water og við tælendinginn: You go get supplies
Seinna kemur íslendingurinn með vatnið og amerikaninn búinn að byggja risa stórt hus þeir voru að pæla hvar tælendingurinn væri eiginlega og fóru að leita að honum.. Svo allt í einu upp úr þurru hoppar tælendingurinn nakinn fram ur runna og öskrar: Supplies!! AHAHHAHAHAHAHAHAHAHAAHHAAHHA!!!!
þriðjudagur, október 25, 2005
miðvikudagur, október 19, 2005
af klukki og fleiru
Ég var víst klukkuð.
1. Aðeins fáir útvaldir fá með góðu móti að snerta á mér hárið. Þeir kallast klipparar. Aðrir skulu varast að snerta það, strjúka því og alls ALLS ekki hræra í því!
2. Eitt það besta sem ég veit er að hreinsa á mér eyrun. Óhóflega.
3. Enginn deilir með mér tannkremi. Ever.
4. Ég fékk 10 á samræmdu prófunum í stærðfræði.
5. Ég er á mörkum blindu (-7.5), heyrnarskert, þefskynslaus og bragðskynsheft.
6. Mitt kjörhitastig eru 25 gráður Celsíus. Annars er mér kalt.
7. Ég er nostalgisti.
8. Ég er hvorki sú fallega, gáfaða né góða af okkur systkinunum samkvæmt Sveinbirni á Landi. Hef ekki enn fengið að vita hvað nákvæmlega ég er.
9. Ég er samskiptasjúklingur með félagsfælni.
10. Ég hef verkað fisk, flegið kindur, skorið eistu og pillað rækjur. Allt gerir þetta mig að þeirri manneskju sem ég er í dag.
Ég klukka Steindór og Huldu.

laugardagur, október 08, 2005
Ekki vill það batna...
....ástandið sungu þeir í Ríó Tríó með sullandi fullan Raufsann í fararbroddi. Ég neyðist enn og aftur til þess að biðjast afsökunar en ég virðist hafa einum of harðorð og gagnrýnin í þarsíðustu færslu. Það sem ég hélt vera endurtekna afsökun á sambandsleysi af minni hálfu hefur nú verið illa tekið upp af ansi mörgum og orðið til harkalegra samskipta við annars ágætis fólk. Kannski ég ætti bara að gleðjast, samskipti eru jú alltaf samskipti!
Einn varð, svo hans eigin orð séu notuð, brjálaður, þegar hann las bloggið, og sendi mér þetta: Jæja vinan! Veistu þegar ég hugsa um það sem ég les á síðunni þinni um að enginn svari þér...ÞÚ SENDIR MÉR EKKI EINU SINNI. (gerði það víst, hann er búinn að skipta um netfang)
Svo hefur þú aldrei samband, full eða ekki, er alveg sama. Það er allavega samband.
Lengra var bréfið ekki.
Næstu skilaboð voru svona:
...nenni bara hreinlega ekki að skrifa þér, veit að þér finnst ekkert gaman að heyra lengur hvað er að gerast á Íslandi og ætla því bara ekkert að bögga þig....
Þá komu þessi fyrir nokkru:
ÉG HRINGDI Í JÚLÍ OG MÉR VAR ÞÁ LOFAÐ MAILI ! ! ! ! !
HVAR ER ÞAÐ ---- ÞÚ TEKUR VÆNTANLEGA EFTIR ÞVÍ AÐ ÉG SKRIFA Í HÁSTÖFUM TIL AÐ SÝNA HVERSU MIKILVÆGT ÞETTA ER MÉR OG HVAÐ ÉG ER LEIÐ YFIR AÐ VERA SVONA AFSKIPT. ÞETTA ER ALLT AÐ RENNA ÚT UM ALLAR ÞÚFUR, EKKI AÐ GERA SIG.
Til að fullkomna annars erfiða og niðurdrepandi viku, fékk ég stuttaraleg skilaboð frá Hollendingunum:
Wij hebben tot nog toe niets van jou gehoord. We vinden het nu te laat we komen niet in de herfstvakantie.
Groet wil
Sem stuttlega útleggst: við höfum ekkert heyrt frá þér. Við teljum það of seint (að ganga frá ferð til HK) og munum ekki koma í heimsókn. Kveðja Wil.
Skotin á staðnum, uppgjöfin alger. Eigið góða helgi.

þriðjudagur, október 04, 2005
Ekki minn dagur
...og ekki mín vika....
Fjöldi drukknaðra tölva = 1
Fjárhagslegt tjón vegna drukknunar tölva = 100þús
Fjöldi stolinna síma = 1
Fjárhagslegt tjón vegna stolins síma = 10þús
Fjöldi þumla úr lið = 1
Fjárhagslegt tjón vegna þumla úr lið = 3þús
Fjöldi ofurölvi kærasta um helgina = 1
Fjárhagslegt tjón vegna ofurölvunar kærasta = 850 krónur
Fjöldi marbletta á búk = 42 og fer fjölgandi...
Það er óhætt að segja að ekki hefur lukkan leikið við mig undanfarið. Ofurölva og ælandi kærastinn varð svo miður sín að mér var boðið í bíó í gær þar sem símanum var stolið og skiptir þar litlu að ég skildi hann eftir sjálf, örsnöggt, á klósettinu enda ætlaði ekkert að tala í hann á meðan myndinni stóð. Ég hef nú engin netföng eða símanúmer sem jafnvel er lán í óláni því betri afsökun get ég varla fengið fyrir afskiptaleysi í garð vina og vandamanna. Annars sendi ég fyrirgefningarbeiðni í fjöldapósti á um fjörutíu aðila fyrir alls ekki stuttu en aðeins 2 sendu svar til baka. Líklega er ég búin að tapa öðrum vináttuböndum vegna vanrækslu. Fjárhagslegt tjón ófyrirséð.
Ég sit annars og skelf á skrifstofu í fyrirtæki sem ég hef tekið að mér nokkur verkefni fyrir. Kínverjarnir eru hrifnir af loftkælingum og sitja síðan kappklæddir með sultardropann á nefinu við vinnu sína, skakktenntir gleraugnaglámarnir. Ég er líka kappklædd, en með linsur. Ein skökk.
Það er svo merkilegt með það hvernig Kínverjaóþolið eykst um helming ef annað í lífinu er í röngum farvegi. Símalaus og tölvulaus er ég á ystu nöf og má enginn gulur fyrir mér verða þessa dagana. Bjarka bróður ofbauð stundum ofstopinn í upphafinu en er nú engu skárri sjálfur. Vesalings maðurinn sem ólst upp við ofríki kvenna og dugði þar ekkert annað til en óþrjótandi þolinmæði til að lifa af, hefur nú skipt oftar skapi sl. 5 mánuði í Kína en árin 28 þar á undan. Hann er nú í Þýskalandi að þjóra bjór og kemur vonandi endurnærður til baka, tilbúinn til að takast á við næstu törn.
Yfir og út í bili.....
BEX