Ef það er ekki uppgangur í Gleði Dal þessa dagana þá veit ég ekki hvað. Klukkan 16.21 í gær fór allt að smella og gleðitíðindunum skolaði á land í massavís. Flest var vinnutengt sem kannski vekur ekki áhuga ykkar en nægði til að halda mér hressri frameftir öllu. Ekki var svo verra að fá inngöngu í landsliðið í rúgbý en ég er hér með orðin bonafied atvinnumaður í íþróttum. Og það á kvennafrídaginn!
Þarna sannar sig helst að sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær.
Á meðan aðrar kellíngar þrömmuðu í kröfugöngu fékk ég þessa fínu aukavinnu og ekki víst að öllum þyki hún sérstaklega kvenleg. Ég fæ nú borgað fyrir að mæta á æfingar (eins gott, þær eru á sunnudagsmorgnum!) og er send á mót um víða veröld á ekki ómerkilegri staði en Tæland (9-12nóvember), Kunmin - China í desember og Kaszakstan er í spilunum en óstaðfest eins og er. Ég verð þó að standa mig áfram því eftir hvert mót er valið endurskoðað og ég því langt í frá komin með brottfararspjaldið til Fjarkinistan í febrúar.
Neyðist ég nú líklega til að segja upp þeirri vinnu sem ég hef minnstu yfirráðin yfir og fara þar fín laun forgörðum en ég vonandi bæti það upp með einhverju uppbyggilegra. Verst ég fæ ekki borgað pr meter hlaupinn í rúgbýinu...!
Að lokum, einn bráðfyndinn sem er alveg til að rifta þindinni í hverjum þeim sem hefur búið í Asíu. Vona að þið hin náið húmornum.....
Tælendingur, Íslendingur og amerikani voru fastir á eyðieyju og einn daginn fengu þeir nóg og amerikaninn sagði: I'm gonna build a shelter og síðan við íslendinginn sagði hann: You go get water og við tælendinginn: You go get supplies
Seinna kemur íslendingurinn með vatnið og amerikaninn búinn að byggja risa stórt hus þeir voru að pæla hvar tælendingurinn væri eiginlega og fóru að leita að honum.. Svo allt í einu upp úr þurru hoppar tælendingurinn nakinn fram ur runna og öskrar: Supplies!! AHAHHAHAHAHAHAHAHAHAAHHAAHHA!!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli