Fellibylurinn kom og fór - felldi nokkur tré og allir fengu frí úr vinnu en ég mætti samt og var dugleg. Íslendingar unnu silfur í handboltanum og við Bjarki og Kristrún horfðum á í fánalitunum. Gaupi sagði að þeir ættu þetta skilið eftir allar fórnirnar sem Snorri litli hafði fært síðustu árin, alveg sleppt sveitaböllunum greyið en það bliknar í samanburði við kínversku gullverðlaunahafana sem ekki fengu að sjá 1,5árs börnin sín í heilt ár og einhverju vöðvatröllinu var ekki sagt þegar mamman dó.
Ég verð upptekin næstu daga.
Fer til Macau á laugardaginn, Juddy er í Malasíu.
Helgina þar á eftir fljúgum við til Ástralíu og stoppum hjá bróður hans í nokkra daga.
Þá fljúgum við yfir til Nýja Sjálands í sextugsafmæli tengdapabba, verðum í tæpa viku.
Helgina þar á eftir er ég að keppa á rúgbý móti í Kóreu.
Vikuna þar á eftir er ég á ráðstefnu í Peking.
Helgina þar á eftir ætla ég að slappa af með Huldu og nýburanum sem vonandi kemur í heiminn samkvæmt mínum plönum.
Ég verð komin með flugfit í stað sundfita eftir allar þessar ferðir, ef ekki blóðtappa í báða leggi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli