Svaf lítið í nótt. Ég er illa farin af strengjum og get suma útlimi takmarkað hreyft. Hausinn er fastur í framstöðu og armarnir neita að lyftast meira en 90 gráður sem vissulega takmarkaði fataval í morgun. Ég keppti í rúgbý um helgina og skoraði mark, fór á 2x landsliðsæfingar og andaði inn mold niður í lungnatotur. Það er ljúfsár kvöl að vera íþróttakona.
Í gær var góður dagur. Ég spratt á fætur eftir 3,5 klst svefn til að fara á æfingu og fór svo beint heim í bólið aftur. Um kvöldið fundum við veitingastað á ný sem ég hef leitað að í næstum fjögur ár! Mikil gleði með það og ég tók 3x nafnspjöld svo ég gleymi aldrei aftur hvar hann er. Við átum yndislegan tælenskan mat og fórum vel belgd að sofa. Veðrið var með besta móti um helgina og við tókum nokkra klukkutíma í að flatmaga á ströndinni. Þó má sjá á hitatölum að haustið nálgast, gráðurnar ná ekki lengur 30-markinu en 23-27gráður er enn viðunandi í októberlok. Eftir strandaferðina fórum við á rúntinn upp til Gold Coast þar sem ég bjó fyrstu mánuðina í Hong Kong og reyndum að komast á hestbak. Hér er ekki hægt að ganga inn á næstu hestaleigu og fá að skreppa á bak eins og á Íslandi. O seisei nei, þú þarft að fara í mat hjá reiðkennara sem dæmir hvort þú sért hæfur til að stjórna hesti og jafnvel þá, þótt þú standist prófið, færðu ekki að taka hestinn út fyrir girðinguna og gengur þess vegna bara í hringi sem varla ná meira en 500 metrum frá upphafi til enda. Hestarnir eru stórir og stæðilegir, líkari Fagra Blakk en íslenskum gæðingum svo ég var svona eftir á að hyggja ekkert sár þótt ég kæmist ekki á bak. Fjölskylda Justins á nokkra hesta og hann er búinn að leggja til 4ra daga hestaferð um jólin.
Hnykkur komst á húsnæðismál þegar okkur var sagt frá 800þús ISK greiðslu sem gleymst hafði að segja okkur frá en hún er á eindaga eftir 4 vikur. Sem betur fer er Bekkan skipulögð þegar kemur að fjármálum og þessu var reddað eftir nokkur svitaköst og Excel æfingar. Ekki skemmir fyrir að kærastinn er endurskoðandi og skilur mikilvægi fjármálalegrar reiðu.
Hlökkum til að fá Hulduna heim, vonandi með lakkrís og ost.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli