Ég fór í fjallgöngu um helgina. Hópur vinnufélaga minna ákvað í ölæði á föstudagskveldi að ganga sér til heilsuhressingar engu síðar en 9 klukkutímum eftir að umræðan hófst og með það fóru allir beint heim í ból til að sofa úr sér eitrið.
Ég tróð þeim sem komust inn í BeetleBug og keyrði langleiðina til Kína með þreytta en ofurhuga fjallgöngumenn. Ég var sú eina sem
a) ekki hafði borðað morgunmat
b) var ekki með neitt nesti nema eitt Snickers
c) var ekki með bakpoka með mér
en ég var þó með tvær flöskur af vatni og mundi að maður á að ganga á fjöll í skærum litum.
Aðrir höfðu komið með kort af leiðinni.
Til að gera (ca. 20 kílómetra) langa sögu stutta, þá var það ég sem fyrst komst á tindinn og skilaði mér á rétta strönd á réttum tíma. Þeir sem voru með kortið villtust. Þeir sem voru með nesti átu ekkert nema ávextina og báru því öll aukakílóin að ástæðulausu. Ég tók bara með mér pening og keypti mér fisk og íspinna á ströndinni.
Myndirnar segja sína sögu, þetta er voða brattur tindur og gaman að klífa hann. Veðrið var yndislegt og ég skaðbrann. Góður göngutúr í góðra manna hóp. Vantaði bara Elsu.



Engin ummæli:
Skrifa ummæli