miðvikudagur, nóvember 07, 2012

Drukknunin mikla frá Kasmír

Já, það var þetta með "drukknunina".  Ég ætlaði víst að skrifa um hana í pósti fyrir stuttu en entist svo ekki athyglin til þess. 

Ég var altso á leiðinni til Miðausturlanda barnlaus.   Chamali, hjálparinn mikli frá Sri Lanka, átti að vera á bátnum hjá Huldu með ungann á meðan en Hulda systir býr á bát úti á flóa og notar vatnataxa til að komast í og úr landi.  Þar vorum við staddar á föstudagskvöldi þegar ekki vildi betur til en að sú Srilenska lendir í sjónum.  Það varð henni margt til bjargar, þar á meðal að hún var með þrjár handtöskur af dóti sem og að Hulda stökk í sjóinn og halaði hana í land.  En í töskunum var síminn minn, iPad, sortuber, vegabréf, farmiðar, peningar - allt heila draslið sem maður tekur með sér í handfarangri í langt flug.  Bríet var sem betur fer heil á húfí í fanginu á öðrum Srílanka og ég gat ekki annað en hlegið að þessu havaríi öllu saman.  En flest rafrænt í töskunum góðu er dáið drottni sínum og ekki þess virði að endurnýja það allt.  Ég lifði af fyrstu 34 árin pöddulaus og líklega lifi lengur án hennar.  En Chamali neitar nú að fara á bátinn. 

Engin ummæli:

Skrifa ummæli