Í dag fékk ég þetta í bréfi: “It has always been a dream for me to become a full-time forex trader"
Merkilegt hvernig ég hafði enga slíka brennandi drauma þegar ég pillaði rækjur á Kópaskeri. Ég held ég hafi mest talið niður mínúturnar í næstu kaffipásu.
Annars er kominn vetur í Hong Kong. Ég svaf í fyrsta sinn í haust án loftkælingar og fór í lokuðum skóm í vinnuna. Ég er í rúllukragapeysu en svitnaði reyndar aðeins á leiðinni heim úr ræktinni, það eru víst 20 gráður yfir hádaginn. En napurt er það á morgnana og vissara að taka fram trefil fljótlega.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli