fimmtudagur, nóvember 01, 2012

Vika breytinga í lífi Bríetar.  Hún lærði að ganga og fer nú eins og vindurinn á milli mín og Chamali óstudd.   Hún hætti að taka tvo dúra á dag og sefur núna í staðinn bara einn dúr í hádeginu.  Það þýðir að hún er líka hætt að koma til mín í hádeginu eins og hún hefur nú gert í næstum heilt ár.  Hún er samt enn á brjósti en lætur duga að sjúga sig fasta kvölds, morgna og miðjar nætur ef henni sýnist svo. 

Þá er hún víst að fara í fleiri ferðalög - pabbinn vill fara með hana í frí en ekki enn vitað hvert og hvenær.  Það kemur í ljós eins og annað. 

Hún á afmæli í næstu viku, IKEA kjötbollur með brúnni sósu í matinn fyrir fjölskylduna. Enn ein klisjan sem ekki á við mig en það heyrist oft, mjög oft, frá mæðrum að þær bara skilji ekki hvert tíminn hafi flogið, að það sé eins og það hafi gerst í gær að þær kreistu út barnið......en ekki ég.  Mér finnst heillangt síðan Bríet fæddist og bara nokku sammála dagatalinu um að það séu næstum 365 dagar síðan.  Svo er nú önnur saga að mér finnst tíminn yfirhöfuð líða hratt, barnlaus eða mæðruð. 

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Aha, afmælisveisla, jú, jú það er víst fljótt að líða. kv. Elfa

Skrifa ummæli