Loksins á ég barn. Bríet Tinna fæddist 9unda nóvember, 2011. Hún er voða fín og fékk eina tönn fyrr í vikunni. Ég ætla að reyna að blogga aðeins oftar, mér þykir ógurlega gaman að lesa gamla pósta. Svona eru einstaklingar sjálfhverfir í dag, ég held ég sé ekkert ein um það.
2012 verður frábært ár, ég finn það á mér. Ég finn hins vegar ekki á mér að það sé kominn miður apríl en það segir fílófaxið mér. Líklega hurfu fyrstu mánuðir ársins í brjóstaþoku. Ég er frekar mellow mamma held ég, nett kærulaus en las þó Hjallastefnubók Margrétar Pálu og var þar flestu sammála. Bríet Tinna Huiarau verður vonandi vel alið barn þótt sambland af Víkingi og Mára sé.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli