mánudagur, apríl 16, 2012

Sumarið er komið, í vikunni sváfum við Bríet Tinna með loftkælinguna á í fyrsta sinn.  Við skiptum út vetrarsænginni fyrir sumarsængina ekki löngu fyrir það.  Svona skipast veður fljótt í lofti, í Hong Kong sem annars staðar.

Við fórum til Víetnam í páskafrí og áttum yndislega daga.  Það er gott að vera einn með barninu sínu og henni fannst bara fínt að vera með mér líka.  Fyrsta tönnin fannst á 5 mánaða 'afmælinu' hennar, sú birtist án verkja eða andvökunátta.   Mikið óskaplega á ég gott barn. 

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gott að þú ert byrjuð að blogga aftur, ég saknaði þess hjá ykkur. Greinilega gott frí hjá ykkur eftir myndum að dæma.
Kv. Elfa

Rebekka sagði...

:) ég var viss um að það skoðaði enginn þetta blogg lengur :D

Veit ekki hvað ég endist en vonandi sem lengst.

Skrifa ummæli