þriðjudagur, maí 29, 2012

Eintóm lúxusvandamál

Ég hef það ansi gott og þarf oft að minna sjálfa mig á það.  Flest mín vandamál eru lúxusvandamál og varla um þau skrifandi.  Í dag er ég pirruð því hjálparinn notaði olíu þegar hún steikti eggin mín.  Í ofanálag var hún búin að ganga frá bókum sem ég hafði sett á stofuborðið í gærkvöldi svo ég myndi muna eftir að taka þær með í vinnuna.  Vegna þess að hún vaknar á undan mér (jú, til að elda morgunmatinn minn), þá var hún búin að ganga frá bókunum þegar ég vaknaði og ég gleymdi því að taka þær með.   Svo áttar maður sig á eigin hræsni og heldur kjafti yfir pirringnum. 

En bloggar um hann. 

Engin ummæli:

Skrifa ummæli