þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Nágrannaerjur

Ég skil nú hvernig kringumstæður geta boðið upp á styrjöld á milli nágranna. Þegar ég mætti í morgun var karlanginn búinn að setja glænýjan rósóttan bolla á ganginn sem í voru tveir sígarettustubbar. Ég hef grun um að þetta sé aðeins upphafið að löngu stríði á milli mín og ljóta Kínverjans. Ég er farin að æfa mig í að skjóta mér undan skothríð því Kínverjar eiga það til að hrækja á mann þegar þeim misbýður.

Ég hef reyndar sjálf einu sinni hrækt á búðarborð þegar mér misbauð, en það er nú önnur saga. Þá var ég búin að búa í Hong Kong í 18 mánuði, var bara að spila eftir þeirra reglum.

Ég er farin að finna hamar á bollann hans...........

Engin ummæli:

Skrifa ummæli