Án þess að gera lítið úr Fréttablaðinu og öllu því góða fólki sem þar starfar, verð ég nú að viðurkenna að blaðaúrklippa dagsins í dag hlýtur öllu fallegri ramma en Fréttablaðs"frétttin".
Flennistór mynd af mér birtist á baksíðu South China Morning Post þar sem ég sat fyrir svörum á blaðamannafundi sem haldinn var í gær þegar dregið var í riðla í Hong Kong Sevens Rugby tournament. Við erum þarna einar 7 á myndinni með rúgbýbolta og í landsliðsskyrtunum og skælbrosum allar. Versta var náttúrulega sjónarhornið en það vissi ekki ljósmyndarinn að undirhakan mín skín sínu skærasta þegar tekin er mynd frá gólfinu upp.
Við lentum í ferlegum riðli og keppum á móti heimsmeisturunum frá því í fyrra sem og þeim sem lentu í 3ja sæti. Þetta eru víst allt stórar og stæðilegar stelpur sem kunna að berja frá sér svo innst inni í mér situr skelfd stúlka sem vonar að ég komist ekki í liðið. Annars er ég ekki áhyggjufull, það voru ansi margar á undan mér í mark í flestum þeim hlaupatestum sem ég var send í í gær enda hef ég engan tind klifið enn til að auka þolið. Ég verð voðalega þakklát ef ég held mínu sæti í æfingahópnum enda væri það saga til næsta bæjar ef ólöglegur innflytjandi á öðru ári í rúgbý kæmist í heimsmeistarakeppnina.
Lokahópurinn verður tilkynntur á morgun.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli