föstudagur, febrúar 04, 2005

Nýjársfögnuður Kínverja

Líður nú að áramótum hér í landi. Rauði liturinn er yfirgnæfandi, öllum til mikillar lukku. Hefðin fyrirskipar kaup á litlum rauðum pokum sem kallaðir eru lai see pakkar og skulu vera troðnir glænýjum peningaseðlum og gefnir ungum og einhleypum. Mér og öðrum einstæðingum til mikillar gremju er það kennt í trúarbrögðum milljarða manna að hamingjuna sé að finna í pörum og því ekki tilhlýðilegt að gefa minna en tvo pakka í einu. Minnsti seðillinn eru 10 dollarar svo ég neyðist til að punga út 20 dollurum (200 kalli) á alla sem ætlast er til að fái slíka læ sís frá mér. Ég gæti kannski falið mig á bak við prinsíp eins og að ég fylgi ekki kínverskum hefðum, verandi íslensk og allt, en ég bý jú við þessa menningu og finnst því mörgum þeir eigi að taka þátt í þeirra siðum. Sitt sýnist hverjum en nánösin ég gef mína læ sís með örlítið minni gjafmildi en ætlast er til. Trúin er svo sú að því meira sem þú gefur á áramótunum, því farsælli verðirðu árið allt.

Bölvaðir dyraverðirnir heima hjá mér keppast nú við að læra nafnið mitt og heilsa mér með virktum, hlaupa til að opna hurðina og eru búnir að panta lyftuna áður en ég stíg út úr leigubílnum fyrir utan húsið. Þeir eru altso einn sá þjóðfélagshópur sem græðir feitt á CNY (chinese new year). Sem betur fer er alger ósiður að opna pakkann fyrir framan þann sem gefur hann og helst á að geyma þá alla þar til 15.febrúar en þá er Afmælisdagur Allra (Everybody´s birthday). Svo kannski verða mínir pakkar komnir í bunka með öðrum sem innihalda stærri nótur en mínir.

Ef manni líður illa yfir að gefa bara 20 dollara á mann (nokkuð margir dyraverðir sko í hverju húsi, ætti eiginlega að gefa þeim öllum í skrifstofuhúsnæðinu líka) þá er hætt við að heildarupphæðin hækki ansi mikið því næsti seðill fyrir ofan 10 dollara eru 20 dollarar en alls alls ekki má gefa tvo svoleiðis því það gerir samtals 40 sem inniheldur óhappatöluna miklu, 4.
Það er ekki svo auðvelt að henda reiður á öllum þessum reglum sem í gangi eru en mér finnst ég góð að vera þó búin að kaupa pokana sjálfa. Sjáum svo til þegar nær dregur hvort ég set eitthvað í þá............


Engin ummæli:

Skrifa ummæli