þriðjudagur, febrúar 08, 2005

Mennskur banani

Í rúgbýliðinu mínu er meiriparturinn kínverskur. Í Kína má maður velja sér enskar útgáfur af nafninu sínu sjálfur og skipta reglulega um ef manni sýnist svo. Sumar heita voða venjulegum nöfnum. Aðrar ekki. Ein heitir Human. "Pass the ball, Human!" Hljómar ekki rétt eða hvað finnst ykkur?? Önnur heitir Banana. Samt vita þær hvað human og banana þýðir, þykir það bara töff. Hárgreiðslumaðurinn minn heitir Man. Einn af nemendum vinkonu minnar heitir Beckham. Hann öfunda ég mest. Önnur börn heita Drill, No No, Sir, Rainbow, Milk, Kiddy, Season, Rain og þetta er bara börnin í 17 manna bekknum hennar Chrissy vinkonu. Ég vildi ég hefði fæðst í Kína svo ég gæti heitið Mannlegur Banani Beckham.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli