- Home sweet home!! Áttundu ferð minni á milli Íslands og Hong Kong er lokið, ég er komin heim í heiðardalinn - sem reyndar er útsettur í skýjakljúfum J. Átti ótrúlega ljúfa daga á Íslandinu góða, yfirgaf landið með söknuði sem Gunnhildur vinkona nefndi á leiðinni út á völl að hún hefði ekki séð áður. Ég vitanlega hafði minni tíma til að gera nánast allt sem ég ætlaði mér en held ég hafi náð að hitta flesta, borða Fjallalambslæri og horfa upp á fjöldaslagsmál unglinga. Annars var það svefnleysi og viðvarandi hungur sem einkenndi ferðina. Á fimm dögum náði ég aðeins þremur (!!!) máltíðum ef ég voga mér að telja ekki SS pylsur og kókómjólk með sem máltíðir. Annars drap ég sárasta hungrið með snakki í öllum heimsóknunum sem voru svo þéttskipaðar að ekki þótti tími fyrir almennilegan mat. Þeir sem elduðu ofan í mig fá stórt knús fyrir enda íslenskur matur það sem ég sakna einna helst hér í Hong. Amma gjörsigraði mig í yatsi en bætti það upp með flatbrauði með hangikjöti og harðfisk. Nammibindindið hélt að mestu og mér til mikillar ánægju var það með öllu áreynslulaust. Kannski ég sé laus við nammifíknina? Vonandi...
- Eins og mín er von og vísa varð ég að koma fólki á óvart sem ekki vissu af ferðum mínum á klakanum. (Merkilegt hvað margir lesa EKKI bloggið mitt...!) Árdís vinkona útskrifaðist á laugardeginum frá Tækniskólanum og hélt veislu í tilefni þess. Ég náttúrulega varð að fá mína tilsettu athygli svo ég var gerð að leynigesti sem var þó ekki leynilegri en svo að þegar Heiða tilkynnti að komið væri að því að kynna sérstakan gest, galaði Árdís “ER ÞAÐ REBEKKA!!!??!?”. Ég tísti úti í horni og kom þar með upp um mig. Kannski þessi þörf fyrir surprise sé orðin að þreyttum brandara í vinahópnum.... :-Þ
- Síðustu nóttinni eyddi ég svo í góðs vins hópi (getur maður ekki sagt það?) á Hótel Loftleiðum enda mjög mikilvægt að enda ferðina með stæl. Ég fór þreytt, en sæl og svolítið leið með Flugleiðum til London, British Airways til Hong.
- Langar að lokum að ítreka við alla sem heima eru að tilboð Virgin á flugmiðum til Hong Kong er enn í gildi, 379 pund (ca. 42þús) fyrir ferðina fram og til baka. Þá kostar mínútan bara 7 krónur ef hringt er með Heimsfrelsi eða Atlasfrelsi, jafnvel þótt hringt sé í gemsa, eins og t.d. þetta númer: +852 9052 8645....hint hint....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli