mánudagur, febrúar 07, 2005

Mánudagur í myglu

Ég var hin rólegasta á föstudaginn þótt mikil veisla stæði yfir í tilefni þess að Aberdeen strákarnir mínir urðu Hong Kong meistarar í rúgbý. Ég átti sjálf að keppa á laugardeginum og haskaði mér heim eftir að hafa skálað fyrir strákunum í vatni.

Ekki held ég að ég hafi hlaupið af mér margar fitueiningar því eftir 15 mínútna leik var ég rokin í sturtu og keyrði kolólögleg aftur yfir í Central til að ná ferju til Kína með Huldu systur. Við misstum af fyrstu ferjunni. Hulda reiknaði þá út að næsta færi klukkan hálf fimm frá Kowloon svo við fórum í stutta ferjuferð yfir og fengum okkur Makka. Þar biðum við rólegar þar til tími var til að hlaupa í næstu ferju. Við misstum af henni líka. Þá var lítið annað að gera en að gera grín að öllu saman og kaupa miða í næstu ferju þar á eftir! Klukkan korter í sjö um kvöld komumst við klaufabárðarnir upp til Shekou þar sem Hulda átti að sinna nýfæddu barni. Mæltum okkur mót fyrir utan Walmart (Worma kínverskri ensku) klukkutíma síðar, báðar símalausar. Einum og hálfum tíma síðar kom Hulda, sveitt og stressuð en ég sat hin rólegasta og eignaðist tævanska vini á róluvellinum. Það reyndist ekki mikill tími fyrir frekari sightseeing í Shekou svo Hulda stökk inn í súpermarkaðinn til að versla fáeinar nauðsynjar. Þegar stutt var í að ferja færi, ákvað hún að kaupa eitt hæti í viðbót, stærðarinnar vatnsvél (water dispenser) sem tæki bara 8 mínútur að versla. Til að gera langa sögu stutta, misstum við af síðustu ferjunni heim til Hong Kong og fórum á næsta hótel. Heldur var þykkt í þeirri yngri sem var að missa af enn einu partýinu svo Hulda gerði allt til að hressa mig við. Við leigðum okkur sérkennilegt hjól og keyrðum í hláturskasti á næsta nuddstað þar sem 90 mínútna nudd bætti upp allar ferjuferðir og partý. Komumst heim á handahlaupum með vatnsvélina í eftirdragi með ferjunni klukkan 10.30 morguninn eftir, með næringarríkan MacMorgunmat í poka.

Til að bæta mér upp helgina fór ég með spilastokka á Kangaroo barinn og sat þar við bjórdrykkju og spil fram eftir nóttu. Margir komnir í viku frí vegna áramótanna framundan og því þéttsetið á barstólunum. Eftir eina fötu af Carlsberg var ég farin að trúa að Kínaferðin hefði ekki átt sér stað og ég væri að fagna laugardagskvöldinu....

Engin ummæli:

Skrifa ummæli