laugardagur, febrúar 26, 2005

Bid-for-a-bachelor(ette) !

Áhugavert gærkvöldið. Tók að mér að hjálpa til við árlegt uppboð á piparsveinum til styrktar langveikum börnum. 16 hraustir menn höfðu kjark til verksins og ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um þegar ég var beðin um að hjálpa til við skipulagninguna. Það væri nú saga til næsta bæjar ef ég neitaði boði um að mingla við 16 einhleypa karlmenn í blóma lífsins.

Allt gekk vel og hver piparsveinn var seldur á 30-100þúsund íslenskar krónur. Smápeningar fyrir aðalinn í Hong Kong. Þegar allt var yfirstaðið og karlagreyin sem höfðu áður verið sveittar taugahrúgur fengu kjarkinn á ný (ekki slæmt fyrir egóið að vera boðinn upp á 100þúsund kall!), ákváðu þeir að draga okkur skipuleggjendurna upp á svið og bjóða okkur upp. Fimm saman vorum við seldar á 250þúsund kall til þriggja kínverskra karla. Framundan er því spennandi deit.

Ég reyndar hafði meira upp úr krafsinu þetta kvöldið því einn piparsveinninn ætlaði bara ekki að komast yfir bláma augna minna og nú er framundan deit með honum á morgun. Hann er portúgalskur sjarmör, leikari / model og vakti mig í morgun með símtali til að staðfesta dagskrána á morgun. "I do you awake?" spurði hann á krúttlega bjagaðri ensku og ég bara flissaði stelpulega. Rómans í uppsiglingu?

Engin ummæli:

Skrifa ummæli